04.02.1985
Neðri deild: 38. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2598 í B-deild Alþingistíðinda. (2065)

267. mál, stjórn efnahagsmála

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Ég vil lýsa eindregnum stuðningi við efni þessa frv. og óskum okkar fulltrúa Kvennalistans að það nái fram að ganga. Það vill svo til að ég hef velt þessum málum mikið fyrir mér að undanförnu og hef unnið að till. til endurbóta á þessu greiðslukerfi, en við fyrstu athugun fæ ég ekki betur séð en að þessi lausn sé mjög góð og auðveldlega fær. Flestir eru orðnir sammála um réttmæti verðtryggingar langtímalána og viðurkenna það sjónarmið að lánardrottnum beri að fá lánsfjárhæð endurgreidda að fullu að lánstíma loknum og eitthvað að auki fyrir greiðann. Það er hins vegar ekki einfalt mál og öldungis ekki sama við hvað er miðað, eins og lántakendur hafa rækilega orðið varir nú síðustu árin.

Eins og allir vita hefur verið valin sú leið að miða verðtryggingu við lánskjaravísitölu, sem er mynduð af vísitölu byggingarkostnaðar að 1/3 og vísitölu framfærslukostnaðar að 2/3 hlutum. Hugmyndin er þá sú að fá megi jafngilt verðmæti í hlutum eða þjónustu fyrir endurgreiðsluna og upphaflegu lánsfjárhæðina, en vextir væru svo að auki. Þetta virðist eðlileg viðmiðun að því tilskildu að þróun kaupgjalds haldi a.m.k. í við þróun verðlags og framfærslukostnaðar. Því er þó alls ekki alltaf að heilsa eins og við vitum og reynsla undanfarinna mánaða kallar eindregið á einhverja breytingu í þessum efnum.

Það hlýtur að teljast með öllu ósanngjarnt að neyða fólk til að spá um verðlagsþróun til margra ára eða jafnvel áratuga til að átta sig á greiðslubyrði langtímalána með föstum vöxtum. Slíkt er raunar ógerlegt eins og komið er á daginn. Nú um nokkurt skeið hefur þróunin verið almennu launafólki afar óhagstæð og ljóst að margir eru að kikna og hafa þegar kiknað undan greiðslubyrði lána, sem hefur í mörgum tilfellum vaxið langt umfram greiðslugetu. Kaupmáttur hefur illa fylgt eftir kostnaðarþróun og einsýnt að mikið misgengi hefur myndast að undanförnu, m.a. vegna aðgerða stjórnvalda sem æ ofan í æ hafa hindrað að laun haldi í við verðlagsþróun. Af því leiðir að fólk þarf ekki aðeins að bera skertan kaupmátt á neysluvörum heldur einnig að borga af langtímalánum sínum með sífellt fleiri vinnustundum.

Eins og ég sagði áðan hef ég verið að velta þessu vandamáli mikið fyrir mér að undanförnu og við fleiri í Kvennalistanum og hafði enda lýst því yfir í Morgunblaðinu um áramótin að Kvennalistinn vildi láta miða verðtryggingu langtímalána til launafólks við vísitölu kauptaxta í stað lánskjaravísitölu. Meginhugsunin að baki slíkrar verðtryggingar væri þá sú að launafólk þurfi að vinna jafnmargar vinnustundir fyrir greiðslu lánsins og virði þess var í vinnustundum þegar lánið var tekið að viðbættum einhverjum vöxtum. Launafólk er í raun algerlega varnarlaust gagnvart ráðstöfunum sem miða að skerðingu kaupmáttar. Sala vinnu er eina tekjuöflunarleið þess og það er veigamikil ástæða fyrir því að það væri lagt til grundvallar við ákvörðun verðtryggingar lána. Launafólki væri mikið öryggi í því að vita að endurgreiðsla lána yrði alltaf svipuð í vinnustundum talið.

Þessi niðurstaða stangast hins vegar að nokkru leyti á við þá fullyrðingu að lánardrottni beri að fá lánsfjárhæð að fullu endurgreidda að lánstíma loknum. Enn fremur er ljóst að ástandið er óeðlilegt um þessar mundir og sannarlega verður að vona og ætlast til þess að almennt kaupgjald fari hækkandi og lífskjör batnandi. Að öllu samanlögðu tel ég einmitt þá leið, sem lögð er til í frv. á þskj. 445, réttu leiðina til að gera almennu launafólki kleift að taka á sig fjárskuldbindingar til langs tíma og standa undir þeim. Vel má vera að einhver vandkvæði séu á framkvæmd þessa, eins og kannske heyra mátti á hv. 2. þm. Reykv. hér áðan, en við megum einskis láta ófreistað að reyna að finna lausn á þessu vandamáli sem um þessar mundir er að raska fjárhagsgrundvelli fjölmargra heimila. Mér heyrist nú raunar á undirtektum hv. þm. að mál þetta muni fá verðuga umfjöllun og ég vil endurtaka að við þm. Kvennalista styðjum þetta frv.