05.02.1985
Sameinað þing: 44. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2611 í B-deild Alþingistíðinda. (2077)
193. mál, framkvæmd höfundalaga
Landbrh. (Jón Helgason):
Herra forseti. Ég get tekið undir með hv. fyrirspyrjanda, 12. þm. Reykv., að það sé nauðsynlegt að fylgjast vel með þessari starfsemi og áreiðanlega betur en gert var þar í upphafi, þannig að tryggt sé að að verki sé staðið í samræmi við það sem lög kveða á um.
Hann lét þau orð falla að svo miklar kröfur væru gerðar af ríkissaksóknara að ekki væri unnt að nýta sér þann rétt sem menn eiga í þessu sambandi. Ég vil undirstrika og ítreka að það var aðeins í einu tilviki sem saksóknari taldi að ekki væru fyrir hendi nægileg gögn. Í fimm skipti höfðu menn möguleika á því að uppfylla það sem hann taldi nauðsynlegt til þess að hægt væri að fara fram á opinbera rannsókn. Mér sýnist því að ekki sé hægt að halda því fram að þarna sé um óframkvæmanlega kröfu að ræða. Reynslan hefur sannað annað.