05.02.1985
Sameinað þing: 44. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2611 í B-deild Alþingistíðinda. (2078)
240. mál, sjúkrasamlög
Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):
Herra forseti. Margoft hefur verið fjallað um skipulag tryggingaumboða og sjúkrasamlaga bæði innan þings og utan. Hefur sú umfjöllun jafnframt farið fram í stjórnskipuðum nefndum. Síðasta nefndin, sem um þessi mál fjallaði, var skipuð 8. okt. 1982 og átti að vinna að endurskoðun á fjármögnunar- og stjórnunarkerfi sjúkrahúsa, á fyrirkomulagi tryggingaumboða og á deildaskipan í Tryggingastofnun ríkisins. Þessi nefnd skilaði ítarlegum tillögum að ári liðnu en lítið hefur fram komið af þeirri vinnu.
Með bréfi til heilbr.- og trn. dags. 28. okt. 1977 gerði ríkisendurskoðun tillögur um breytingar á lögum um almannatryggingar að því er sjúkrasamlög og umboðsskrifstofur varðar. Bréfið er undirritað af Halldóri V. Sigurðssyni ríkisendurskoðanda og Sigurði Hermundarsyni deildarstjóra og nefndin, sem hér var getið um áðan, samþykkti að gera tillögur þeirra að sínum eigin.
Meginefni tillagna ríkisendurskoðunar er sem hér segir, með leyfi forseta:
„Ríkisendurskoðunin“ segja þeir í bréfi „leggur hér með til að sú breyting verði gerð á lögum um almannatryggingar að felldar verði niður úr lögum 37. og 38. gr. svo og önnur ákvæði er fjalla um sjúkrasamlög. Í stað lagagreina um sjúkrasamlög komi almenn ákvæði um sjúkratryggingar samsvarandi ákvæðum um lífeyris- og slysatryggingar.“
Í landinu eru núna um 40 sjúkrasamlög, og er hvert undir sérstakri stjórn. Skv. lögum fjármagna sveitarfélögin 15% en ríkissjóður 85% af kostnaði við sjúkrasamlögin. Það hefur gengið erfiðlega hjá sjúkrasamlögum að innheimta útgjaldahluta sveitarfélaga og í raun og veru eru mörg sjúkrasamlög greiðsluþrota langtímum saman vegna þess að dráttur verður á greiðslum sveitarfélaganna. Samlögin hafa auðvitað takmarkaða möguleika á skjótum innheimtuaðgerðum hjá sveitarfélögunum, og innheimtuaðgerðir leysa ekki að fullu þann greiðsluvanda sem kominn er hverju sinni. Til þess að samlögin geti staðið í skilum með greiðsluskuldbindingar sínar hefur verið mikill þrýstingur frá samlögunum á Tryggingastofnunina um aukna fyrirgreiðslu umfram skyldu.
Í reynd er ástandið orðið þannig að Tryggingastofnun ríkisins greiðir í æ meira mæli reikninga sjúkrasamlaganna og verður síðan að innheimta þá aftur, jafnframt því að leggja út fyrir því sem á vantar, standi sveitarfélögin ekki í skilum. Einkum á þetta við um greiðslur til sjúkrahúsanna fyrir sjúkrahúsdvöl, en eins og menn þekkja ber sjúkrasamlögunum að greiða fyrstu 12 mánuði sjúkrahúsdvalar en verði dvölin lengri taka sjúkratryggingar við. Hér er því um að ræða óþarfan tvíverknað og að sumu leyti næstum því skoplegan á stundum. Getur sá tvíverknaður varla verið til sparnaðar fyrir þjóðarbúið. Bent hefur verið á, m.a. í áliti áðurgreindrar nefndar, að sameining hefði ýmsa kosti í för með sér.
Einn er sá kostur talinn að öll starfsemi almanna- og atvinnuleysistrygginga færist í hendur umboðsskrifstofu Tryggingastofnunarinnar á hverjum stað. Í öðru lagi yrðu stjórnir sjúkrasamlaga lagðar niður. Í þriðja lagi að við sameiningu sjúkrasamlaga í eina sjúkratryggingu og tilkomu umboðsskrifstofa yrði létt verulega á yfirstjórn Tryggingastofnunarinnar og öll fjármálastjórn yrði miklu auðveldari og einfaldari. Í fjórða lagi að með sameiningu sjúkrasamlaga félli svæðaskipting niður og menn hefðu sömu réttindi hvar sem er á landinu og án tillits til búsetu. Og í fimmta lagi yrði létt verulega á sjúkrahúsum, lyfjabúðum, læknum og fleiri aðilum sem oft hafa orðið að senda reikninga á næstum 40 staði í stað þess að geta skipt við Tryggingastofnun ríkisins eingöngu. Og ekki alls fyrir löngu urðu hér á hinu háa Alþingi umræður um vandkvæði Lyfjaverslunar ríkisins á að fá lyf greidd frá sjúkrahúsunum. En þessi umr. er flestum hv. alþm. kunn og ég hygg að margir telji komið að því að vinna að sameiningu sjúkrasamlaga og Tryggingastofnunar ríkisins. En það er jafnljóst að einhver tregða hefur hér orðið á framkvæmd. Því hef ég leyft mér að spyrja hæstv. heilbr.- og trmrh. spurningar sem fyrir þinginu liggur á þskj. 340 og hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Hefur verið horfið frá hugmyndum um að leggja sjúkrasamlög niður og sameina starfsemi þeirra Tryggingastofnun ríkisins?“
Sem ég hafði lagt fram fsp. mína barst mér frétt sem kom mér mjög á óvart. Sú frétt var um að ráðh. hefði — mér liggur við að segja með mestu leynd — skipað nefnd s.l. haust sem enn einu sinni á að gera tillögur um endurskipulagningu á stjórnskipulagi Tryggingastofnunar ríkisins. Í þessari nefnd munu vera Helgi V. Jónsson, formaður, Ólafur Örn Ólafsson læknir, Friðrik Friðriksson framkvæmdastjóri Sjálfstfl. og Guðný Björnsdóttir lögfræðingur Tryggingaeftirlitsins. Nefndinni mun hafa verið falið að vinna hratt að sínum tillögum.
En því vakti þetta athygli mína og undrun að plagg það, sem ég held hér á í höndunum, er álit nefndar sem ég sat sjálf í og ég nefndi áðan og skipuð var 1982. Sú nefnd sat heilt ár og vann að tillögum og í það var lögð verulega mikil og vönduð vinna. Í þeirri nefnd áttu ýmsir þeir sæti sem telja mætti að hefðu allnokkra þekkingu á þessum málum. (Forseti hringir.) Ég er rétt að ljúka máli mínu, herra forseti. Þeir voru: Rúnar G. Jóhannsson rekstrarfræðingur, formaður, Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri ríkisspítalanna, Guðrún Helgadóttir, alþm. og um margra ára skeið starfsmaður Tryggingastofnunar ríkisins, Jón Ingimarsson, skrifstofustjóri heilbr.- og trmrn., Kristján Guðjónsson, deildarstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, hann er deildarstjóri sjúkratryggingadeildar, Ólafur Björgúlfsson, skrifstofustjóri í Tryggingastofnun ríkisins, Sigurður Hermundarson, deildarstjóri í ríkisendurskoðun, Sigurður Þórðarson, deildarstjóri í fjmrn. og Þórir Á. Ólafsson, starfsmaður daggjaldanefndar. Ingólfur H. Ingólfsson, félagsfræðingur og starfsmaður Tryggingastofnunar ríkisins, starfaði með nefndinni sem ritari.
Vegna upplýsinga um þessa nýju nefnd, sem nú er í raun og veru falið sama verkefni og við unnum að í heilt ár og skiluðum þessari bók að því verki loknu, hlýt ég að fá leyfi hæstv. forseta til að óska eftir skýringum hæstv. ráðh. á því, hvers vegna þetta verk okkar er til einskis nýtt og ástæða var til þess að skipa nú enn eina nefnd, og að því er mér virðist fólki, sem satt að segja hefur sáralítið að þessum málum unnið, að undanskildum yfirlækninum á Landakoti, sem ég skal ekki draga í efa að þekki nokkuð til þessara mála. En ég dreg mjög í efa að hitt fólkið hafi mikla þekkingu á þessum málum.
Ég hef áður lýst fsp. minni og þakka fyrir að hafa fengið að tala hér ögn lengur en leyfilegt er.