05.02.1985
Sameinað þing: 44. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2617 í B-deild Alþingistíðinda. (2083)
194. mál, höfundalög
Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðsson):
Herra forseti. Ég saknaði þess að hæstv. menntmrh. var ekki við fyrr í dag þegar fyrir var tekið 1. mál á dagskrá, en það stendur að sjálfsögðu í beinu sambandi við þá fsp. sem ég legg fyrir hæstv. menntmrh. um höfundalög á þskj. 214, en hún hljóðar á þessa leið:
„Hvað líður framkvæmd á lögum nr. 78/1984, um breytingu á höfundalögum nr. 73/1972, sem samþykkt voru í lok síðasta þings?“
Nú veit ég að hæstv. menntmrh. hefur gengið fram í því að koma reglulegri skipan á það sem hennar ráðuneyti tilheyrir varðandi þessi lög. Hins vegar veit ég ekki, og ég efa að hæstv. menntmrh. viti það, hvernig eftirliti með ólöglegum myndböndum hefur verið framfylgt. Hún tók mjög fast á því að eftirlit væri með og skoðun á hrotta- og klámmyndum, en það er að sjálfsögðu algerlega marklaust starf þegar lögbrjótar, sem hafa komist upp með að starfa á myndbandamarkaði, leyfa sér að litljósmynda límmiða, sem Kvikmyndaeftirlitið hefur merkt snældur með, og þeim er síðan dreift og jafnvel falsaðir miðar jafnframt á viðkomandi snældum.
Þessar fsp. voru lagðar fram í því skyni að koma af stað umr. og jafnframt að benda á þær aðgerðir lögregluyfirvalda sem hafa mjög aukist upp á síðkastið. Ég vænti þess að það sé m.a. vegna þess að fsp. voru lagðar fram og að um málið hefur verið rætt utan þings og innan, undir öðrum dagskrárliðum m.a. Lögregluyfirvöld hafa gert sér grein fyrir því að sífelld brot hafa átt sér stað á þessum nýju ákvæðum höfundalaganna sem tóku gildi s.l. vor.
Ég sé ekki ástæðu til að vera að endurtaka þau orð sem ég fór með áðan í sambandi við fsp. mína til hæstv. dómsmrh. En staðreyndin er sú að það getur hver sem er sett á stofn myndbandaleigu hér á landi. Það eru engar kröfur gerðar til slíks reksturs. Það er mín skoðun að slíkar kröfur eigi að gera. Auðvitað á að miða þennan rekstur við venjulegan verslunarrekstur og gera eigendur myndbandaleiga bókhaldsskylda þannig að þeir falli undir sömu lög um skatta og þeir sem við skyldan rekstur vinna.
Ég benti á það, og hef reyndar bent á það áður, að þau brot sem eiga sér stað varða fjölmörg lög fyrir utan sjálf höfundalögin. Ég hef þar bent á bæði söluskattslögin, tekjuskattslögin og lög um innflutning o.fl. sem kom fram áðan í umr. um fsp. til hæstv. dómsmrh. Það hefur líka komið fram og liggur fyrir að skattalögin hafa verið þverbrotin. Það kom fram í sambandi við eina kæru sem barst á einn eiganda slíkrar leigu að hann hafi ekki greitt söluskatt af útleigðum myndum sem væri í neinu samræmi við gífurlegan fjölda myndbanda sem hann hafði til útleigu. Það var búið að koma sér þar upp, og mér er sagt að það sé víðar á þessum leigum, kerfi sem felur í sér að viðskiptamaðurinn fær kort, er skráður, og það eru aldrei fleiri en þrjár útleigur skráðar á það kort og þegar því er lokið er kortinu hent. Hvaða yfirvöld geta komið í veg fyrir þetta? Það er ekki hægt að koma í veg fyrir þetta öðruvísi en að setja reglur um þessa starfsemi og gera þær kröfur til þeirra sem reka myndbandaleigurnar að þeir uppfylli sömu skyldur og aðrir sem viðskipti reka hér á landi.