05.02.1985
Sameinað þing: 44. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2629 í B-deild Alþingistíðinda. (2103)
241. mál, starfsemi húsmæðraskóla
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Það fer vel á því að ein þeirra hv. kvenna sem sæti eiga á Alþingi skuli bera fram fsp. um starfsemi húsmæðraskóla, því að sannarlega voru þetta og eru merkar menntastofnanir. Það kom fram í svari hæstv. menntmrh. að til væru í landinu 11 skólahús af þessu tagi. Nú eru aðeins 6 skólar starfandi en 5 nýttir til annars. Dettur nú ekki einhverjum í hug: „Nú er hún Snorrabúð stekkur.“ Þá er vitaskuld ekki um annað að ræða en að nýta húsnæðið til annars ef aðsókn minnkar.
Að Staðarfelli í Dölum starfaði húsmæðraskóli í hálfa öld með miklum sóma en síðan minnkaði aðsókn mikið, svo sem víðar varð um húsmæðraskóla. Að Varmalandi í Borgarfirði starfar hins vegar húsmæðraskóli enn.
Það er til marks um þróun tímanna að aðsókn kvenna að Bændaskólanum á Hvanneyri fer stöðugt vaxandi þannig að það eru allmörg ár síðan hægt var að setja saman blandaðan kór í þeim skóla af þeim ágæta tónlistarkennara sem þar heldur á tónsprota. En ég endurtek það að vel fer á því að konur hreyfi þessu máli. Þeim fer nú, sem betur fer, allmjög fjölgandi í þingsölum. Það liggur beint við að þær hafi forustu um þessi mál. En hins vegar munum við karlmennirnir sennilega styðja þær með ráðum og dáð og þá gildir hið fornkveðna að „eigi skal skuturinn eftir liggja ef allvel er róið í fyrirrúminu.“