05.02.1985
Sameinað þing: 44. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2631 í B-deild Alþingistíðinda. (2105)

241. mál, starfsemi húsmæðraskóla

Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég skal reyna að stytta mál mitt mjög. Fyrst: varðandi hugmyndir og yfirlýsingar hæstv. ráðh. um skoðanir Alþb. á hússtjórnarkennslu og fræðslu almennt. Ekki veit ég hvaðan hún er komin. Ég veit ekki hvers vegna ráðh. hefur þá skoðun að Alþb. sem slíkt hafi alla tíð verið á móti hússtjórnarkennslu. Hér er um það að ræða að á Alþingi Íslendinga voru samþykkt grunnskólalög 1974. Ég hef aldrei heyrt að Alþb. hafi haft á móti því að kennsla í heimilisfræðum yrði skyldunámsgrein. Ég held að þessar skoðanir ráðh. séu alveg út í hött, ástæðulausar með öllu. Ég hef heldur aldrei verið vænd um það, a.m.k. ekki í þingflokki Alþb., að vera neitt skynsamari en þeir kollegar mínir. En það má vel vera rétt að svo sé, og ég fagna því ef svo er. Ég get hins vegar upplýst ráðh. um hvers vegna ég lít á kennslu í hússtjórnarfræðum sem algert nauðsynjamál. Það að kunna eitthvað til verka við að hirða og þrífa og fæða sjálfan sig, og auðvitað aðra ef þess gerist þörf, tel ég vera eitt af frumskilyrðum þess að einstaklingur geti talist frumbjarga.

Hér á árum áður vantaði t.d. mikið á það að karlmenn væru færir um að vera til ef þeir höfðu ekki einhvern til að annast um sig. Slíkt fólk er ósjálfbjarga einstaklingar. Í nútíma þjóðfélagi tel ég svo sannarlega að hver einasti einstaklingur verði að vera fær um að annast sjálfan sig. Og þetta þarf að kenna ekkert síður en hvað annað. En í stuttu máli er hér um það að ræða að um leið og grunnskólalögin voru samþykkt hefur síst af öllu verið unnið að því að til séu í landinu kennarar til að annast kennslu í heimilisfræðum. Um leið og grunnskólalögin eru samþykkt með heimilisfræði sem skyldunámsgrein er hver húsmæðraskólinn af öðrum lagður niður. Lögin um Hússtjórnarkennaraskóla Íslands eru meira og minna óljós og aldrei framkvæmd að öllu leyti þó að þau séu ekki eldri en frá 1975. Mig vantar gersamlega í svör hæstv. ráðh. hvað hún ætlar að gera í þessum efnum. Við getum endalaust talað um að húsmóðurstarfið sé göfugt. Ég tel hins vegar meginmálið í þessu sambandi að framfylgja lögum sem Alþingi er að setja. Þess vegna var þessi fsp. mín fram komin.

Herra forseti. Ég skal láta það verða mín síðustu orð að við komum alltaf að því sama aftur og aftur, sem margir hafa spurt um hér á hinu háa Alþingi, setningu laga um framhaldsskóla og fullorðinsfræðslu. Það eru aðeins örfáar vikur síðan hv. þm. Hjörleifur Guttormsson gerði hér fsp. um það efni. Við þessu fást engin svör, jafnvel neikvæð. Meðan svo er eru kennslumál þjóðarinnar að mestu leyti stefnulaus.