05.02.1985
Sameinað þing: 44. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2645 í B-deild Alþingistíðinda. (2124)
270. mál, aukafjárveitingar
Kolbrún Jónsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég ætla að gera aths. vegna orða hæstv. ráðh. um samráð við fjvn. og lýsa því yfir að ég hef setið í fjvn. síðan í haust, en hef aðeins fengið eitt prentað plagg í septemberlok, með aukafjárveitingum, og aldrei verið spurð álits á því hvort veita skyldi þessar fjárveitingar eða ekki. Ég tel mikilvægt að þetta sé kallað réttu nafni, þ.e. samráð við fulltrúa stjórnarflokkanna. Niðurstöðutölur, ef ég man rétt, á þessu plaggi voru í kringum 200 millj. Nú eru aukafjárveitingar 421 millj. Þetta er í fyrsta skipti sem ég heyri eða sé þá tölu.
Ráðh. útskýrði það svo að m.a. lög gerðu ráð fyrir þessu. Ég man eftir einni upphæð sem stakk mig mjög þegar ég las skjalið um aukafjárveitingar. Ferðamálaráð fékk 9 millj. Ég hef oft velt því fyrir mér og reyndar minnst á það við hæstv. ráðh. hvers vegna ferðamálaráð hafi allt í einu þurft alla þessa fjárupphæð. Í öllum þeim þrengingum sem hann hefur nú lýst yfir fær Kvikmyndasjóður ekki nema 8 millj. á yfirstandandi ári. Ég hef aldrei fengið á því skýringar hvers vegna ferðamálaráð þarf svona mikið á fjármagni að halda. Það væri fróðlegt að fjmrh. hefði einhverjar skýringar á því.