05.02.1985
Sameinað þing: 45. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2658 í B-deild Alþingistíðinda. (2144)

97. mál, heimaöflun í landbúnaði

Björn Dagbjartsson:

Herra forseti. Út af orðum hv. 2. þm. Austurl. get ég upplýst að nú er í fæðingu vönduð og ítarleg skýrsla, sem samin er að tilhlutan Rannsóknaráðs, um innlenda kjarnfóðurframleiðslu og verður séð til þess að hún fái kynningu og meðferð hjá réttum stjórnvöldum þegar þar að kemur, en það er aðeins daga- eða vikuspursmál hvenær hún verður tilbúin.

Ég vil bæta nokkrum orðum við framsögu 1. flm. þessarar till. til að undirstrika þýðingu þess að hinar gömlu dyggðir, nýtni og hirðusemi, verði hafðar í heiðri í okkar höfuðatvinnugreinum. Eins og hv. þm. vita, fer gífurlegt magn af úrgangi forgörðum í sjávarútvegi, úrgangi sem er í raun og veru verðmæti á röngum stað. Þetta er allt saman úrvals fóðurefni. Það ber fyrst að telja slógið og annan úrgang frá veiðiskipum, en þar fara líka til spillis tugir þúsunda tonna af öðrum fiskúrgangi, m.a. 5–6 þús. tonn af grásleppuúrgangi, og svo í frárennsli fiskiðjuvera yfirleitt.

Það hefur verið sýnt fram á það með margra ára tilraunum og í ár hjá 2–3 útgerðarfyrirtækjum að ekki er aðeins auðvelt heldur líka stórlega arðbært að hirða slóg um borð í togurunum. Það hefur verið skrifað nokkuð mikið um þetta efni. Það hefur enn fremur verið sýnt fram á það með tilraunum undir stjórn dr. Ólafs Guðmundssonar hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins að blöndun slógmeltu í gras- eða heymjöl og köggla er ekki aðeins mikilvæg aukning á næringargildi heldur einnig á notkunarmöguleikum grasmjöls og lækkar vinnslukostnaðinn verulega. Þessi framleiðsla er ekki lengur tilraunavinnsla. Þetta er alvara sem hefur gefið góða raun s.l. sumar. Ég veit til þess að togari í Bolungarvík safnaði slógi s.l. átta mánuði eða um það bil og aflaverðmæti þess togara hefur hækkað um 3%. Það verður sem sagt 3% hærra aflaverðmæti á togaranum eftir að byrjað er að hirða slógið. Þessi slógmelta, sem kölluð er, var síðan unnin í verksmiðjunni á staðnum og seld sem fóðurbætir í verksmiðjuna í Gunnarsholti. Þetta finnst mér vera hægt að kalla virkilega innlenda fóðurbætisframleiðslu miklu fremur en þá blöndun og kögglun á innfluttu fóðri sem framkvæmd er hér og gengur undir nafninu innlend fóðurframleiðsla.

Það má segja að stórframleiðsla á slógmeltu um borð í öllum togaraflota Íslendinga sé eitt og smávegis hirðusemi og nýting á því sem til fellur við sjávarsíðuna og til sveita sé annað. Það hefur allvíða gerst á undanförnum árum að bændur hafa fengið vini og kunningja í sjómannastétt til að safna fyrir sig fiskúrgangi og slógi í tunnur og blanda með maurasýru. Mér er kunnugt um að bændur hafa hirt silungs- og laxaslóg og meltu með góðum árangri. Þeir menn hafa sagt mér að það sé ekki aðeins að þeir hafi sparað drjúgum fóðurbætiskaup með þessu móti, heldur hafi þeir einnig þóst merkja að heilsufar og þrif búpenings hafi verið með sérstökum ágætum á þessu fóðri. Þetta er svo ótrúlega auðvelt að fyllsta ástæða er til að hvetja menn til að nýta sér þessa möguleika.

Hv. 1. flm. till. skýrði nokkuð í framsögu sinni merkingu orðsins heimaöflun og hvert markmiðið er með þessum tillöguflutningi. Ég leitaði til gamans nokkurra upplýsinga um hvar notkun þessa hugtaks kæmi fyrir í eldri heimildum. Mér var bent á Búnaðarritið frá 1946–1947, þar sem Klemens Kristjánsson frá Sámsstöðum segir í skýrslunni um starfsemina á Sámsstöðum árin 1945 og 1946, með leyfi forseta:

„1945 náði bygg yfirleitt góðum þroska á Suður-, Vestur- og Norðurlandi, og s.l. ár hefur það eflaust náð ágætum þroska þar sem því var stefnt til fullrar þurrkunar. illa gengur að fá bændur og þá, sem jarðrækt stunda, til þess að taka upp kornyrkju, og hafa undanfarin ár dregið mjög úr áhuga og viðleitni bænda á þessu sviði. Ég vona, að gott mál og heillavænlegt sigri um síðir, sú komi tíð, að bændur sjái sér hag í því að framleiða mestan eða allan þann kornmat, sem þarf til skepnufóðurs fyrst og fremst. Það ætti að vera metnaðarmál fyrir íslenska bændur að framleiða sem mest af því fóðri, er þeir þurfa handa mjólkurkúm. Undanfarin tvö ár hefur aðeins 15–22% af fóðurbæti þeim, sem notaður er í kýrnar á Sámsstöðum, verið innflutt, en afgangurinn 80–85%, heimaaflað eða innlend framleiðsla.“

Með þessum orðum vildi ég undirstrika að fyrir löngu hafa menn gert sér grein fyrir því hversu þýðingarmikið það er að menn búi sem best að því sem landið getur gefið af sér og spari með því erlendan gjaldeyri og tilkostnað við búreksturinn.