05.02.1985
Sameinað þing: 45. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2665 í B-deild Alþingistíðinda. (2150)

17. mál, Skipaútgerð ríkisins

Björn Dagbjartsson:

Herra forseti. Ég skal ekki meta það í sjálfu sér hvort það er að misnota þingsköpin að flytja þessi mörgu mál en ég óttast hins vegar að ormurinn langi verði seinunninn ef miðað er við það hvernig okkur miðar nú.

Þetta mál, sem hér er til umr., vildi ég einmitt sjá rætt til hlítar. Án þess að lengja þessa umr. mikið vil ég lýsa því yfir að ég tek undir þessa till. Ég hnaut um það í fjárlagatill. að um 40 millj. kr. styrk var að ræða til Skipaútgerðar ríkisins og var sú fjárhæð mér nokkur þyrnir í augum. Hv. flm. hefur upplýst að taprekstur Skipaútgerðarinnar hafi verið meiri og verði eflaust meiri. Ég hef saknað þess að hafa ekki séð eða heyrt meiri umr. á síðustu tímum um kaup annarra skipafélaga á Skipaútgerð ríkisins eins og þó til stóð.

Skipaútgerð ríkisins var nefnilega til sölu haustið 1983. Hún tapar stöðugt, það hefur verið upplýst. Ég minnist smíðanna í Bretlandi fyrir nokkrum árum sem fóru fram á sama tíma og skipasmíðastöðvar hér heima vantaði sjálfar verkefni og hefðu getað tekið þessi verkefni að sér. Það stóð til að þessi nýi skipakostur yrði til mikillar hagræðingar í rekstri.

Nú hef ég heyrt að til standi að breyta skipunum stórlega með ærnum tilkostnaði í frystiskip með frystilestum. Ég get staðfest það að þessi dæmisaga sem hv. flm. sagði frá kísilgúrflutningunum, er rétt. Ég veit þó ekki hvort prósentutalan er 50 eða ekki, en alla vega er mun ódýrara fyrir Hafskip að flytja kísilgúr frá Húsavík í gámum til Reykjavíkur með Ríkisskip, á því er enginn vafi, þar er um visst undirboð að ræða.

Ég get ekki sætt mig við þann málflutning að hér sé verið endilega að skerða þjónustu við landsbyggðina. Skipafélögin þrjú, sem viðræður stóðu við og gerðu einhvers konar málamyndatilboð eða a.m.k. leituðu eftir viðræðum við ríkisvaldið um kaup á hlutum í Ríkisskip, ég get ekki séð annað en að þessi skipafélög gætu fullkomlega séð fyrir þeirri þjónustu sem Ríkisskip veitir nú. Hver veit nema hún yrði betri. Ég get ekki skilið að hér sé verið að tala um að afleggja þjónustu. Mér finnst það hálfgerður útúrsnúningur.

Hitt get ég tekið undir að rökstuðningur sé ekki nógur og að það þurfi að fara betur ofan í saumana á þessu máli, eins og hv. 3. þm. Norðurl. e. sagði áðan. Þetta þarf að kanna mikið betur og ég reikna með að það verði gert og vonast til að sú könnun sé þegar í gangi þó að lítið hafi af henni frést.

Það er sem sagt alls ekki gefið, þó að því hafi verið haldið fram, að flutningar með Ríkisskip séu endilega miklu ódýrari en þeir yrðu á annan hátt. Til þess að lengja ekki málið meira vildi ég aðeins lýsa því yfir að ég hefði óskað þess að þessi till. yrði rædd að fullu og næði fram að ganga.