23.10.1984
Sameinað þing: 8. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 392 í B-deild Alþingistíðinda. (219)

37. mál, fjárhagsstaða húsnæðislánakerfisins

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Eins og fram kom hjá hv. þm. Jóni Baldvini Hannibalssyni bentu þm. Alþfl. rækilega á það, þegar húsnæðismálafrv. var til umfjöllunar á Alþingi, að fjármögnun húsnæðiskerfisins væri í molum og að áætlanir um fjármögnun húsnæðiskerfisins, miðað við forsendur fjárlaga og lánsfjáráætlunar, mundu ekki standast. Í svörum hæstv. ráðh. kemur glöggt fram að allt hefur gengið eftir sem spáð var í þessu efni. A.m.k. 500 millj. kr. vantar nú í húsnæðiskerfið og verulegur dráttur er á lánveitingum til húsbyggjenda og íbúðakaupenda. Þetta hefur auðvitað valdið húsbyggjendum og íbúðakaupendum verulegu tjóni.

Hér gefst ekki tími til að ræða þetta ítarlega, en svör ráðh. hljóta að kalla á endurskoðun á öllu fjármögnunarkerfi húsnæðiskerfisins og raunar einnig endurskoðun á þeirri stefnu sem við byggjum á í húsnæðismálum. En ég vil beina einni ákveðinni spurningu hér til hæstv. félmrh.

Þegar þessi húsnæðislöggjöf var til umr. á síðasta þingi í félmn. benti stjórnarandstaðan á að þau nýju ákvæði og þær nýju útreikningsreglur sem setja átti um endursöluíbúðir byggðar fyrir gildistöku laga nr. 51 1980 væru mjög flókin og yrðu erfið í allri framkvæmd. Ég hef nú upplýsingar um að ekki hafi farið fram mat á endursöluíbúðum í marga mánuði vegna þess að enginn treysti sér til að framkvæma matið og vinna eftir þessum útreikningsreglum. Af þessu hafa skapast mikil vandræði og fjöldamargir bíða nú eftir mati á sínum íbúðum. Ég hef upplýsingar um að ekkert mat hafi farið fram vegna endursöluíbúða síðan í júní eða júlí í sumar. Ég vildi því spyrja hæstv. félmrh. að því: Hversu margir eru það sem bíða nú eftir að fá metnar sínar íbúðir, hversu lengi hafa þeir beðið og hvenær má vænta þess að mat á endursöluíbúðum geti farið fram?