07.02.1985
Sameinað þing: 46. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2732 í B-deild Alþingistíðinda. (2200)
158. mál, rekstrargrundvöllur sláturhúsa
Egill Jónsson:
Herra forseti. Ég hef að sjálfsögðu ekkert við það að athuga og get með góðri samvisku stutt það að hér sé árlega flutt og samþykkt till. um skipulagningu og rekstur á sláturhúsum. Það er ekki neitt því til fyrirstöðu að styðja það. En ég held hins vegar að það þur6 að huga að ýmsu öðru tengdu þessum rekstri. Það er t.d. mikil ástæða að huga að því hvernig þróast hefur í þessum rekstri aukning mannafla og tilkostnaðar. Það liggja fyrir um það órækar tölur að á sama tíma og verulega hefur fækkað í landbúnaði hefur vinnuafl í slátrun og kjötiðnaði tvöfaldast.
Það er mikil spurning hvað það viðskiptafyrirkomulag sem bændur búa við í þessum efnum á mikinn þátt í breytingu á mannafla við þessa verslun og þennan iðnað. Ég verð að segja að það voru mér nokkur vonbrigði hvernig hv. frsm. fjallaði um viðskipti bændanna við sláturhúsin þar sem svo mátti á honum skilja að þessi till. væri m.a. til þess flutt að sláturhúsin gætu skilað eðlilegu skilaverði til bændanna. Það er augljóst mál að það fyrirkomulag sem nú er verður að breytast og getur ekki beðið eftir skipulagsbreytingu í sláturiðnaði. Ég hygg að hægt sé að finna þess dæmi að á s.l. ári hafi viðskipti við sláturhúsin verið með þeim hætti að á stórum svæðum hafi bændurnir ekki verið búnir að fá greiddan nema helming eða 2/3 hluta af afurðaverði sínu fyrir s.l. ár.
Stærsta og þýðingarmesta ákvörðunin og sú sem mundi vafalaust skila mestum árangri í þessum efnum væri sú ákvörðun að bændur fengju greitt fyrir sína framleiðslu um leið og hún kæmi til vinnslustöðvar hvort sem þar væri um að ræða mjólk, kjöt eða aðrar framleiðsluvörur. Það er m.a. þýðingarmikið af þeirri ástæðu að þá gæti sá er við tekur metið hvað mikið má leggja í kostnað við þá meðhöndlun sem fram fer á hans vegum. Þetta er stærsta mál landbúnaðarins í dag. Það er hárrétt, sem hefur komið fram, að framleiðslan hefur dregist saman. Það má þá ekki minna vera en að það sé greitt fyrir þá framleiðslu sem bóndinn skilar í vinnslustöð. Þetta segi ég sérstaklega vegna þess sem fram kom í máli flm. Ég hefði raunar ekki þurft að taka til máls nema af því að þetta er sá þáttur sem er alls óskyldur vinnslurekstri og skipulagningu í sláturiðnaði. Burtséð frá því verður að koma því skipulagi á í sölumálum landbúnaðarins að bændur eins og allt annað fólk í landinu fái launin sín greidd. Það er ekki hægt að bíða eftir skipulagsbreytingu í milliliðastarfseminni til að ná þeim árangri fram.