07.02.1985
Sameinað þing: 46. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2748 í B-deild Alþingistíðinda. (2221)

172. mál, kennslugögn í öllum fræðsluumdæmum

Flm. (Guðrún Agnarsdóttir):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um kennslugagnamiðstöðvar í öllum fræðsluumdæmum. Till. er 172. mál þessa þings á þskj. 183 og hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta kanna hvernig best væri að haga samstarfi við samtök sveitarfélaga um að koma á fót kennslugagnamiðstöðvum í tengslum við fræðsluskrifstofur í öllum landshlutum. Kennslugagnamiðstöðvar hafi það meginverkefni að lána skólum námsgögn, kennslutæki og hjálpargögn þannig að öllum nemendum verði tryggður aðgangur að fjölbreyttum kennslugögnum hvar á landinu sem þeir búa.“

Till. þessa flytja auk mín hv. þm. Hjörleifur Guttormsson,, Eiður Guðnason, Kristín Halldórsdóttir, Kristófer Már Kristinsson, Ólafur Þ. Þórðarson og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir. Till. þessi var flutt á síðasta þingi en hlaut þá ekki afgreiðslu. Hún er nú endurflutt óbreytt.

Flestum er kunnugt að verulegur munur er á aðstöðu barna til náms og kennslu hér á landi. Þessi þáltill. tekur á einum þætti þessa flókna máls, þ.e. aðstöðumun hvað varðar námsgögn, kennslutæki og önnur hjálpargögn. Skólar hér á landi eru afar misvel búnir hvað þetta varðar. Í þessu sambandi má vitna til könnunar er gerð var á vegum Félags skólastjóra og yfirkennara á aðstöðu og búnaði í skólum árið 1981, en hún var framkvæmd af Viktori A. Guðlaugssyni núv. skólastjóra í Brekkulækjarskóla á Akranesi.

Niðurstöður þessarar könnunar sýndu gífurlegan mun á aðstöðu og búnaði skóla í landinu og enn fremur að skólar í dreifbýlinu stóðu þar mjög höllum fæti. Almennt var niðurstaðan sú að litlu skólarnir voru mjög vanbúnir að tækjum og aðstöðu og á sviði verklegrar kennslu var ástandið hörmulegt.

Ég vil vekja athygli hv. þm. á tímariti sem heitir Ný menntamál og gefið er út af Bandalagi kennarafélaga. Í 2. tbl. 2. árgangs 1984 er þema um menntun og byggðastefnu. Þar er grein sem ber fyrirsögnina „Samræmd próf, jöfnuður til náms“ eftir Rósu Eggertsdóttur og Rúnar Sigþórsson. Þar kemur fram að séu skýrslur um niðurstöður þessara prófa skoðaðar, þ.e. samræmdu prófanna, er meðaltalsárangur nemenda mjög mismunandi eftir fræðsluumdæmum. Þau fræðsluumdæmi sem lakastan árangur hafa eru fámennustu og dreifbýlustu umdæmin, Vestfirðir og Norðurland vestra. Þessar niðurstöður hafa haldist í stórum dráttum frá því að samræmdu prófin voru tekin upp. Þar sést enn fremur að þéttbýlissvæði eins og Reykjavík eru vel yfir landsmeðaltali hvað varðar árangur.

Þó að slík próf séu engan veginn algildur mælikvarði á hæfni nemenda ræður niðurstaða þeirra þó miklu um framtíð þeirra og hverja stefnu hún getur tekið. Því hlýtur þessi mismunur að vekja ýmsar spurningar sem nauðsynlegt er að svara. Áleitin er sú spurning hvort aðstöðumunur nemenda í þéttbýli og dreifbýli sé slíkur að valdið geti svo marktækum mun á námsárangri.

A.m.k. er þessi munur svo mikill að fram hjá honum verður ekki litið og eitthvað hlýtur að þurfa að gera til að bæta þar úr.

S.l. sumar átti ég þess kost að ferðast í kvennarútu víða um Suðurland og Austurland og ræða við fólk. Í þessari ferð kvennarútunnar og áframhaldi hennar á hringferð um landið kom afar vel í ljós hinn gríðarlegi mismunur á aðstöðu til menntunar sem ríkir á öllum skólastigum milli þéttbýlis og dreifbýlis. Þar er ekki einungis um að ræða mismun á aðgangi að fjölbreyttum kennslugögnum heldur líka mikinn mun á því hve auðvelt eða ódýrt það reynist nemendum að sækja skóla sinn.

Heimavistir og mötuneyti eru kostnaðarsöm auk þess sem börn þurfa þá að dvelja löngum fjarri heimilum sínum. Heimanakstur bætir að vísu úr því en ber jafnframt með sér þau óþægindi að börn þurfa að eyða jafnvel mörgum klukkustundum á dag í akstur sum hver til og frá skóla. Þessir margvíslegu erfiðleikar dreifbýlisbarna gera menntun síst aðlaðandi eða auðvelda og sú mismunun, sem ríkir í þessum efnum milli dreifbýlis og þéttbýlis, stuðlar ekki að félagslegum jöfnuði í íslensku samfélagi.

Í lögum nr. 63 frá 1974, um grunnskóla, segir svo í 72. gr., og ég vitna í hana með leyfi forseta:

„Við hvern grunnskóla skal vera safn bóka og námsgagna. Að skólabókasöfnum skal þannig búið, að því er varðar húsnæði, bókakost, önnur námsgögn og starfslið, að þau geti gegnt því hlutverki að vera eitt af meginhjálpartækjum í skólastarfinu.

Í bóka- og námsgagnasafni eru bækur og annað prentað efni, kvikmyndir, myndræmur, skyggnur, glærur, myndsegulbönd og annað myndritað efni, enn fremur hljómplötur, segulbönd og annað hljóðritað efni, svo og hvers konar tæki til flutnings á þessu efni og framleiðslu í þau.“

Hér eru vissulega gefin fögur fyrirheit. En spyrja má í fullri alvöru hvenær þess sé að vænta að slík aðstaða verði komin í alla skóla í landinu. Í því sambandi er vert að minnast þess að í rúmlega 100 skólum eru nemendur færri en 100 og í rúmlega 70 skólum eru nemendur færri en 50. Við 51 af rúmlega 220 grunnskólum starfa aðeins einn eða tveir kennarar. Ljóst er að sé þetta mál skoðað raunsæjum augum er þess seint að vænta að fullkomin skólasöfn rísi við alla skóla. Þeir munu ekki í bráð eignast þau gögn og tæki sem talin eru upp í 72. gr. grunnskólalaga og til var vitnað hér á undan.

Því má halda fram með sterkum rökum að óraunhæft sé að ætla að litlir skólar eignist öll þau sömu námsgögn og kennslutæki og stórir skólar. Lítil sveitarfélög munu við óbreyttar aðstæður ekki hafa bolmagn til að búa skóla sína öllum nauðsynlegum gögnum. Engu að síður verður að tryggja þessum nemendum aðgang að vönduðum og fjölbreyttum náms- og hjálpargögnum. Þessi tillaga felur í sér leið til lausnar þess, þ.e. að litlir skólar á ákveðnu svæði, jafnvel allir skólar á sama svæði, eigi saman ýmis þau gögn, tæki og áhöld sem hverjum einum skóla reynist ofviða að eignast upp á eigin spýtur eða ekki er ástæða til að hver skóli eigi. Hér er t.d. um að ræða ýmis dýr kennslutæki og hjálpargögn sem aðeins eru notuð skamman tíma á hverju skólaári. Rétt er að finna þessum gögnum samastað í tengslum við fræðsluskrifstofurnar í hverju fræðsluumdæmi þaðan sem þau verði lánuð til skóla í umdæminu. Er við það miðað að það starfsfólk, sem þar er fyrir, muni a.m.k. að nokkru beina starfskröftum sínum í þennan farveg. Við margar skrifstofanna starfa nú þegar sálfræðingar, sérkennarar, kennsluleiðbeinendur í hlutastöðum auk skrifstofufólks og má ætla að í flestum tilvikum dugi að ráða til viðbótar t.d. einn starfsmann sem að líkindum yrði með hliðstæða menntun og skólasafnverðir.

Til lengri tíma litið má jafnframt færa að því rök að auk margháttaðs ávinnings af starfi slíkra miðstöðva næðist beinn fjárhagslegur sparnaður af rekstri þeirra. Á það ekki síst við um ráðgjöf fyrir skóla um kaup á hentugum búnaði sem fengin væri reynsla af. En nú ræður oft kylfa kasti í innkaupum skólanna hvers um sig. Einnig hefðu kennslugagnamiðstöðvarnar til útlána ýmis tæki og gögn sem einstakir skólar ella keyptu.

Með því að byggja þessar miðstöðvar upp í fræðsluumdæmunum er þess einnig að vænta að finna megi í hverju tilviki hagkvæmustu leið við að dreifa gögnum frá kennslugagnamiðstöðvum út í skólana og halda kostnaði í lágmarki. Þá er hægt að gera ráð fyrir því að kennslugagnamiðstöðvar við fræðsluskrifstofurnar veiti kennurum og foreldrum ýmsa þjónustu svipaða þeirri sem veitt er í kennslumiðstöð Námsgagnastofnunar í Reykjavík. Þar verði gagnasmiðja fyrir kennara, aðstaða til fræðslustarfs, sýninga og kynninga af ýmsu tagi. Fleiri verkefni mætti fela kennslugagnamiðstöðvum ef henta þætti. Má þar m.a. nefna þjónustu við skólasöfn og aðstoð við uppbyggingu þeirra og sameiginleg innkaup á skólavörum fyrir skólana í umdæminu.

Nokkur reynsla er komin á starfsemi kennslumiðstöðvar þeirrar er Námsgagnastofnun hefur rekið frá því í maí 1982. Meginhlutverk þeirrar miðstöðvar hefur verið kynningar- og upplýsingaþjónusta fyrir kennara. Þar er unnið að því að koma á fót gagnasafni fyrir allar námsgreinar, gagnasmiðju þar sem kennarar hafa aðstöðu til að búa til eigið námsefni. Haldnar hafa verið sýningar á námsgögnum, hjálpargögnum og skólabúnaði og efnt hefur verið til fræðslustarfsemi af ýmsum toga. Starfsemi þessi hefur mælst afar vel fyrir meðal kennara og aðsókn mörg þúsund kennara á hverju ári sannar að full þörf hefur verið fyrir þessa þjónustu. Aðeins einn starfsmaður hefur verið á kennslumiðstöðinni og hefur svo verið frá upphafi en það takmarkar vitaskuld mjög þjónustu við kennara utan stór-Reykjavíkursvæðisins.

Við rekstur kennslumiðstöðvarinnar í Reykjavík hefur og komið skýrt í ljós hversu mikil þörf er á að unnt sé að lána skólunum námsgögn. Um þessar mundir eru möguleikar kennara á þessu takmarkaðir og þá einkum bundnir við fræðslumyndadeild Námsgagnastofnunar, sendiráð og nokkrar stofnanir og félög sem halda uppi fræðslustarfsemi. Skv. lögum ber Námsgagnastofnun að sjá nemendum á skyldunámsstigi fyrir ókeypis námsgögnum. Aðstæður Námsgagnastofnunar valda því að þau námsgögn sem sú stofnun gefur út duga engan veginn ein sér til að skóli verði vel búinn námsgögnum. Hér er því sveitarfélögum ætlað stórt hlutverk en ljóst er að aðstæður þeirra til að rækja það eru afar mismunandi. Rétt þykir því að ríkið beri allan stofnkostnað af slíkum kennslugagnamiðstöðvum og tryggi jafnframt helming af rekstrarkostnaði skv. nánari reglum sem setja þarf.

Mig langar í þessu sambandi að ræða lítillega þær hugmyndir sem nýlega hefur verið hreyft um breytingar á rekstri grunnskóla. Þar er talið æskilegt að færa stjórnunarlega og fjárhagslega ábyrgð sem mest frá ríki til sveitarfélaga. Í fyrrnefndu hefti Nýrra menntamála, sem ég vitnaði til áðan, skrifar hv. 1. þm. Suðurl. grein þar sem hann segir, með leyfi forseta:

„Það er meira um það rætt en áður að efla þurfi sjálfstæði skólanna og að heimamenn fái jafnframt aukna ábyrgð á stjórn þeirra og rekstri. Fjármálaleg ábyrgð verður jafnan að haldast í hendur við stjórnunarlega ábyrgð.“

Það er sannarlega í anda þeirrar stefnu, sem Kvennalistinn fylgir, að draga úr miðstýringu ríkisstofnana, færa völd og ábyrgð út til fólksins í landinu. Við teljum að slík valddreifing muni virkja fleiri einstaklinga til þátttöku í mótun þess þjóðfélags, sem þeir byggja, og þannig stuðla að frjórra og fjölbreytilegra mannlífi. En þegar ábyrgð á stjórnun og fjárhag er þannig flutt til sveitarfélaganna, t.d. í heilbrigðis- og skólamálum, er vitanlega grundvallaratriði að því fylgi jafnframt flutningar á tekjustofnum. Skólamál og heilbrigðismál eru hornsteinar velferðarþjóðfélags og farsæl framkvæmd þeirra mála hlýtur því að krefjast samheldni og samábyrgðar þegnanna, ekki síst þar sem þetta eru mjög fjárfrekir málaflokkar. Þetta skilur hv. 1. þm. Suðurl. vel því að hann segir í grein sinni, sem ég hef áður vitnað til, með leyfi forseta:

„En auðvitað er það svo að það verður að ætla sveitarfélögunum tekjustofna í samræmi við þær kröfur sem til þeirra eru gerðar. Tilfærsla á verkefnum og ábyrgð hlýtur að haldast í hendur við tilfærslu á tekjustofnum,“ segir hv. 1. þm. Suðurl.

Ég tek undir þetta með þm. því að þetta er meginatriði.

Með þessari till. er alls ekki boðað að hverfa eigi frá því markmiði að í framtíðinni rísi skólasöfn við alla skóla. Má miklu fremur líta á kennslugagnamiðstöðvar sem mikilvægt spor í þá átt. Útlán námsgagna og kennslutækja munu stuðla að hagkvæmni við þá uppbyggingu. Í því sambandi má nefna að kennarar geta við innkaup á námsgögnum og kennslutækjum stuðst við þá reynslu sem fengist hefur og þannig metið mun betur en ella hvaða námsgögn þurfi að vera til í skólunum allt skólaárið. Það er því mikilvægt að ljóst verði að hér er um að ræða leið sem hefur í för með sér bætta þjónustu um leið og gætt er ýtrustu hagkvæmni.

Síðast en ekki síst er hér um að ræða mannréttindamál. Það er óverjandi með öllu að börn okkar skuli hafa svo misjafna aðstöðu til náms eftir búsetu sem raun beri vitni. Nútíminn og framtíðin gera æ meiri kröfur til manna, bæði um fjölbreytta og sérhæfða menntun. Það er því hvorki boðlegt börnum þessa lands að draga þau svo í dilka hvað varðar undirbúning undir lífið né heldur hefur þjóðin efni á því.

Flm. þessarar till. vilja þakka Ingvari Sigurgeirssyni, deildarstjóra hjá kennslumiðstöð Námsgagnastofnunar, fyrir góð ráð og ábendingar við gerð þessarar þáltill.

Að lokum vil ég, hæstv. forseti, leggja til að þessu máli verði vísað til hv. allshn. Sþ. að loknum umr.