07.02.1985
Sameinað þing: 46. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2756 í B-deild Alþingistíðinda. (2224)
172. mál, kennslugögn í öllum fræðsluumdæmum
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Tölur sem hv. þm. nefndi hér áðan um fjárframlag til kennslumiðstöðvar vil ég leiðrétta. Í fjárlögum ársins 1985 er fjármagnið til kennslumiðstöðvar 1 millj. 126 þús. kr. en ekki 700. Enn fremur vil ég leggja á það áherslu að sú hækkun sem Námsgagnastofnun fékk á þessum fjárlögum er náttúrlega margfalt umfram það sem var um margar aðrar stofnanir og raunar flestar sem fjárlög fjölluðu um. Um þetta segja Kvennalistakonur: Ja, það má vera að það hafi orðið einhver prósentuhækkun á milli ára. Það var ómögulegt af því að við fengum ekki samþykkt til fulls þáltill. sem við lögðum fram.
Auðvitað gætum við öll sagt þetta. Við vitum hins vegar að við höfum ekki peninga í allt sem okkur langar til að hafa peninga í. Og það að láta sér fátt um finnast þegar stofnun fær aðra eins hækkun og þarna er um að ræða tel ég vægast sagt ekki vera málefnalega umfjöllun. Ef við aðgætum hver fjárveitingin var til Námsgagnastofnunar í fyrra á fjárlögum er hún 32 millj. 805 þús. Núna er upphæðin 58 millj. 807 þús. Ég held að það hljóti að þurfa meira en dökk sólgleraugu til að sjá þetta ekki. Það er náttúrlega alveg ljóst að þarna eru geysilegar umbætur. Það er hins vegar ekki von að við náum því upp á einu einasta ári, á einum einustu fjárlögum, þegar ástatt er eins og við vitum um fjárhag ríkisins. Það er ekki von að við náum því upp á þeim einu fjárlögum sem búið er að halla á í heilan áratug.