11.02.1985
Neðri deild: 40. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2787 í B-deild Alþingistíðinda. (2254)

274. mál, ávana- og fíkniefni

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Dómsmrh. skipaði starfshóp í byrjun síðasta árs í samræmi við þáltill., sem samþykkt var á Alþingi 20. des. 1983, um skipulegar aðgerðir gegn ólöglegum innflutningi og dreifingu ávana- og fíkniefna. Þessi nefnd skilaði svo áliti snemma á s.l. ári. Meðal þess, sem lagt er til, er að viðurlög við brotum verði hækkuð í allt að sex ára fangelsi. Benti starfshópurinn á að viðurlög skv. gildandi lögum um ávana- og fíkniefni geti mest orðið tveggja ára fangelsi og hafi þegar komið fyrir tilvik þar sem beita hefur þurft þeim allt að því til fulls.

Það varð að samkomulagi milli mín og dóms- og kirkjumrh., þar sem framkvæmd þessarar löggjafar heyrir undir heilbr.- og trmrn., að flytja þetta frv. um að hækka sektir og lengja fangelsisvist fyrir brot á þessum lögum. Það er einnig í fyllsta samræmi við það sem verið er að gera á hinum Norðurlöndunum, þar sem verið er að þyngja þessi viðurlög. Þau hafa þegar verið þyngd verulega, sérstaklega í Noregi, og undirbúningur þyngingu viðurlaga í þessum efnum.

Hins vegar má um það deila hvort þetta sé nógu langt gengið í þessum efnum. Bendi ég hv. þingnefnd, sem fær málið til yfirferðar, á að hugleiða hvort lengra eigi að ganga, því að eins og allir vita er það einhver ljótasti glæpur, sem framinn er í dag að ánetja börn og unglinga ávana- og fíkniefnum. Því mundi ég ekki taka því illa eða vera á móti því þó að nefndin flytti brtt. um meiri þyngingu viðurlaga í þessum efnum.

Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.