11.02.1985
Neðri deild: 40. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2790 í B-deild Alþingistíðinda. (2258)

289. mál, Landmælingar Íslands

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Ég leyfi mér hér með að mæla fyrir frv. til l. um Landmælingar Íslands. Frv. er samið af starfsmönnum samgrn. í samráði við forstöðumann Landmælinga Íslands og lögmann stofnunarinnar, Jónas Aðalsteinsson hrl. Árið 1956 voru Landmælingar gerðar að sjálfstæðri stofnun en áður hafði vegamálastjóri verið milligöngumaður ríkisstj. við dönsku mælingastofnunina. Kortlagningar Dana af landinu hófust upp úr aldamótum 1800, en aðalmælingastörfum Dana og kortagerð var lokið árið 1939. Eftir stríð var haldið áfram við kortagerðina á vegum Geodætisk Institut í Kaupmannahöfn og Landmælingar Íslands fengu með samningi dags.l. febr. 1973 við Geodætisk Institut öll gögn varðandi mælingar á Íslandi og einkarétt á notkun þeirra.

Landmælingar Íslands hafa stöðugt haldið áfram því verki sem Danir unnu að, þ.e. grundvallarmælingum á landinu, endurskoðun kortanna og kortaútgáfu og loftmyndatöku af landinu vegna mælinga og kortagerðar. Meginmarkmið þessa frv. er að lögfesta starfsgrundvöll stofnunarinnar. Ekki er gert ráð fyrir miklum breytingum á störfum, skipulagi og verkefnum Landmælinga frá því sem nú er í reynd en mikilvægt er fyrir stofnunina að fá tilveru sína og hlutverk staðfest með lögum.

Frv. er skipt niður í sex kafla. l. kaflinn fjallar almennt um skipulag stofnunarinnar. Í II. kafla eru talin upp helstu verkefni Landmælinga Íslands sem eru, eins og ég greindi frá fyrr í máli mínu, grundvallarmælingar til kortlagningar af landinu, taka loftmynda vegna mælinga og kortagerðar og útgáfa almennra korta af landinu.

Rétt er að benda á ákvæði 7. gr. sem miðar að því að Landmælingar Íslands verði miðstöð mælinga í landinu. Þar er kveðið svo á að af hverjum þeim aðila, sem lætur mæla, mynda eða gera uppdrætti þannig að gögn fáist sem hafa gildi fyrir landmælingar eða vísindagreinar tengdar landmælingu, sé skylt að skila til skráningar og geymslu frumgögnum eða fullkomnum afritum ásamt kortum og uppdráttum til Landmælinga Íslands í því formi sem kveðið er á um með reglugerð.

Skv. III. kafla skulu Landmælingar Íslands gera áætlun til fjögurra ára í senn um verkefni stofnunarinnar. Samgrh. skal leggja áætlunina fyrir Alþingi og skal hún höfð til hliðsjónar við afgreiðslu fjárlaga. Með tilliti til þess að mælingar og kortagerð eru langtímaverkefni og að mikið verk er fyrir höndum í grunnmælikerfi landsins og á öðrum sviðum mælinga og kortagerðar verður að telja æskilegt að stofnunin geri framkvæmdaáætlanir til nokkurra ára í senn.

IV. kafli frv. fjallar um höfundarétt og útgáfurétt Landmælinga Íslands á því efni sem stofnunin hefur eignast, unnið eða gefið út. Er þar lagt til að með tilliti til sérstöðu höfunda og útgáfuréttar stofnunarinnar verði hann ótímabundinn.

Í V. kafla, sem ber heitið Fjármögnun, er gert ráð fyrir tvenns konar gjaldi til að tryggja fjárhagsgrundvöll stofnunarinnar, stimpilgjaldi og sérstöku gjaldi fyrir afnot af gögnum stofnunarinnar. Með þessum kafla er stefnt að því að gera Landmælingar Íslands sem sjálfstæðasta fjárhagslega einingu sem geti látið í té þjónustu við almenning og opinberar stofnanir hverju sinni.

Eins og fram kemur í aths. með þessu frv. er upplýst að á 100. löggjafarþingi 1978 var lagt fram frv. til l. um landmælingar, en eftir umfjöllun samgn. hv. Ed. var því vísað til ríkisstj. þar sem í ljós kom „að aðilar, sem nefndin taldi hafa þekkingu á málinu, voru mjög ósammála um frv.“ Frv. fjallaði aðeins lítillega um stofnunina Landmælingar Íslands, en fyrst og fremst um eignamælingar, merkjastefnur, merkjaskrár og þess háttar. Enn fremur var gert ráð fyrir landmælingastjórn sem tryggja átti samstarf þeirra aðila er að landmælingum og kortagerð vinna.

Þeir aðilar, sem þetta frv. sömdu, telja eignamælingar ekki innan verkahrings Landmælinga Íslands og er því ekki um þær fjallað í þessu frv.

Herra forseti. Ég legg til að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. samgn.