11.02.1985
Neðri deild: 40. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2793 í B-deild Alþingistíðinda. (2261)

289. mál, Landmælingar Íslands

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð.

Ég þakka jákvæðar undirtektir þeirra sem til máls hafa tekið um þetta frv. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum engan veginn að draga úr starfsemi þeirra stofnana sem hafa unnið að kortagerð, að vísu vegna sinna eigin hagsmuna. Eins og nú er háttað málum taldi ég ekki rétt að fara róttækara í þetta frv., en tel að áætlanagerð og verkefnaskrá sé höfuðatriðið að lögfesta. Meðan það er verið að fá þessari stofnun stað í stjórnkerfinu tel ég að verkefnaskrána á hverjum tíma og starfsáætlun eigi að leggja fyrir Alþingi og þá á að leggja fram fjármagn til að framfylgja þeirri verkefnaskrá, en ekki að telja upp of mikið í einu og láta svo skera niður verkefnaskrárnar. Það vill svo oft gleymast að viðkomandi stofnun þurfi mikið fjármagn, en best minnir sjálf verkefnaskráin á það.

Ég er ekki með neina fyrirfram gerða afstöðu um að það megi ekki breyta stafkrók í frv. og tel eðlilegt að sú nefnd sem fær frv. til meðferðar skoði efni þess og stöðu landmælinganna rækilega.