12.02.1985
Sameinað þing: 47. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2814 í B-deild Alþingistíðinda. (2276)
Um þingsköp
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Það skal tekið fram að gefnu tilefni að forseti hlutast til um það að ýtt sé á eftir svörum við skriflegum fsp. Og það hefur verið gert í þessu tilfelli sem öðrum þegar ástæða hefur verið til. Það hefur nokkrum sinnum verið talað af hálfu skrifstofunnar við rn. og síðast var talað í morgun við rn. áður en vitað var um að sú athugasemd sem hér hefur verið gerð kæmi fram. Á blaði sem afhent var forseta fyrir þennan fund stendur um þetta efni:
„Verkfall tafði. Er komið á lokastig. Verið að vinna að ákveðnum viðbótarupplýsingum. Væntanlegt í næstu viku.“
Ég vona því að það standi sem rn. hefur tilkynnt enda er það í samræmi við það sem hæstv. menntmrh. hefur hér sagt.