12.02.1985
Sameinað þing: 47. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2831 í B-deild Alþingistíðinda. (2296)

246. mál, viðskipti með skuldabréf

Fyrirspyrjandi (Stefán Benediktsson):

Herra forseti. Á þskj. 416 hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. viðskrh. um viðskipti með skuldabréf. Á lánamarkaði fara nú orðið fram stórfelld viðskipti með skuldabréf. Okurlánarar, eins og þeir áður hétu, heita nú fínni nöfnum og stunda það sem menn almennt kalla heiðarleg viðskipti með skuldabréf. Þessi skuldabréf eru bæði verðtryggð og óverðtryggð. Þau eru líka tryggð með veðum eða ekki tryggð með veðum. Þar um gilda mismunandi vinnubrögð við kaup og sölu þessara bréfa. En reglan er náttúrlega sú að maður sem vantar peninga býr til einhvers konar skuldabréf með einum eða öðrum hætti og fer með það til verðbréfasala. Sá hinn sami kemur því svo á markað fyrir hann og selur það með svo og svo miklum afföllum, þ.e. maðurinn skuldar einhverja ákveðna upphæð en hann fær ekki nema hluta af henni að láni raunverulega, þar sem mismunurinn er í raun og veru ágóði þess sem skuldabréfið kaupir. Á ferðinni eru í íslensku viðskiptalífi í dag risaupphæðir á þessum lánamarkaði og eftirspurnin á þessum markaði eykst nánast með hverjum degi. Eftirspurnin eftir lánsfé er orðin svo mikil, sagði maður mér í gær, að þeir hörðustu í okurlánamarkaðinum krefðust orðið 18% mánaðarvaxta af því fé sem þeir lána. En hinir, sem eru ekki alveg eins siðlausir, krefjast einhvers staðar á milli 6 og 10% mánaðarvaxta.

Ástæða þess að ég spyr hér er sú að eins og ég sagði áðan eru á þessum markaði skuldabréf af ýmsum toga. Hluti þessara skuldabréfa eru svokölluð verðtryggð skuldabréf, þ.e. skuldabréf sem verðbætt eru með einhvers konar vísitölu. Þau eru tengd einhverri ákveðinni vísitölu og verðbætast eftir því. Nú eru þó nokkuð mikil brögð að því á þessum lánamarkaði að þarna sé ekki farið algerlega að lögum.

Þannig er mál með vexti að í 39. gr. laga sem almennt ganga nú undir nafninu Ólafslög en eru lög um stjórn efnahagsmála nr. 13 frá 1979, í 39. gr. þessara laga, 1. tölul., segir: „að verðtryggðir sparifjárreikningar, kröfur og skuldbindingar séu ætíð skráðar á nafn.“ Það þýðir það að á skuldabréfinu sjálfu kemur fram nafn kröfuhafa. Það þýðir það líka að ef viðkomandi kröfuhafi framselur þessa kröfu til einhvers þriðja aðila verður nafn þess hins sama að koma fram á skuldabréfinu. Og það er þarna sem brestur verður á í framfylgd laganna. Fólk upplifir það orðið æ tíðar að fá kröfu um greiðslur af skuldabréfum, sem það hefur samþykkt, frá aðilum úti í bæ sem hafa þá keypt slík skuldabréf af hinum upphaflega kröfuhafa en er ekki nafngreindur. Það þýðir þá líka hvað skattayfirvöld snertir að þær tekjur sem þessir menn hafa af þessum skuldabréfum koma hvergi fram í framtölum.

Þess vegna spyr ég hér í 1. tölul. minnar fsp.: „Hefur rn. fylgst með því sérstaklega hvort ákvæðum 1. tölul. 39. gr. laga um stjórn efnahagsmála, frá 7. apríl 1979, um nafnskráningu verðtryggðra sparifjárreikninga, krafna og skuldabréfa, sé framfylgt?“

Í 2. tölul. spyr ég: „Hefur rn. fylgst með því hvort 1. gr. tilskipunar um áritun afborgana á skuldabréf frá 1798 sé framfylgt í bönkum, sparisjóðum og í viðskiptum manna?“ Ég bið menn að taka eftir því að á hinni prentuðu fsp. á þskj. 416, sem fyrir mönnum liggur, er prentvilla. Þar stendur í 2. tölul. ártalið 1978. Er þar líklega eingöngu því um að kenna að menn hafa ekki trúað því ártali sem þeir höfðu fyrir augunum. En þannig er mál með vexti að hér er enn í fullu gildi í íslensku viðskiptalífi tilskipun frá 1798 þar sem segir mjög skýrum og einföldum orðum:

„Eins og það er skylda lánadrottins, þegar skuldunautur borgar allan höfuðstól skuldabréfs, að skila honum aftur bréfinu með áritaðri kvittun, eins á hann, þegar nokkuð er afborgað af höfuðstólnum, að hafa við höndina frumrif skuldabréfsins, og vera skyldur til, í nærveru skuldunauts eða umboðsmanns hans, að rita bæði á bréfið sjálft það er afborgað er, og að gefa auk þess sérstaka kvittun fyrir því. Ef lánadrottinn skorast undan að gera þetta, þá er skuldunaut (sem vottast býður fram afborgun þá, er greiða skyldi) heimilt að fresta afborguninni.“

Að þessu er spurt vegna þess að það ber orðið á því í þessu skuldabréfafári, sem við búum orðið við hér, að bankar leiða hjá sér að skrá afborganir af skuldabréfum á bakhlið þeirra þegar afborgunin fer fram, hvað þá heldur að þeir geri það í viðurvist greiðandans og votta. Síðan er, þegar skuldabréfið er að fullu greitt, venjulega gengið frá þessum áritunum áður en skuldabréfið er afhent. Auðvitað eru gefnar kvittanir og farið að öllu leyti rétt þannig að lögum. En í 2. gr. þessarar tilskipunar konungs frá 1798 stendur því miður: „Kvittanir á lausu blaði fyrir afborgunum á höfuðstól, er skuldabréf er fyrir, skulu, ef afborganirnar eru eigi einnig ritaðar á skuldabréfið sjálft, aðeins hafa gildi gagnvart þeim, sem gaf þær út.“ Það þýðir það að ef þetta skuldabréf er selt í hendur þriðja aðila, þá gilda kvittanirnar ekki lengur ef gleymst hefur að skrá aftan á bakhlið bréfsins. Síðan leyfi ég mér að bera fram einfalda spurningu um afstöðu: Telur ráðh. þörf á að innleiða algera framtalsskyldu varðandi skuldabréf sem ganga kaupum og sölum, þ.e. svokölluð handhafaskuldabréf? En Ísland mun vera orðið eitt af fáum löndum í veröldinni þar sem nafnlaus handhafaskuldabréf eru leyfð sem gjaldmiðill.