23.10.1984
Sameinað þing: 8. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 400 í B-deild Alþingistíðinda. (230)
68. mál, lögverndun á starfsheiti grunnskólakennara
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Hv. 3. landsk. þm. spyr: Er hafinn undirbúningur að frv. til l. um lögverndun á starfsheiti grunnskólakennara?
Svarið er já. Nú fyrir um það bil þremur vikum kom formaður Kennarasambands Íslands að máli við mig og ræddi m.a. þetta atriði og ég tjáði mig fúsa til þess að vinna að slíku lagafrv. og vinna að framgangi þess, hafði enda hugleitt það mál allmikið. Nú nýlega hefur rn. farið þess á leit við Bandalag kennarafélaga að það tilnefni þrjá menn í nefnd til að undirbúa ásamt starfsmönnum rn. frv. til l. um lögverndun á starfsheiti grunnskólakennara og framhaldsskólakennara. Vænti ég þess að það líði ekki mjög margir dagar áður en slíkt frv. verður tilbúið.