12.02.1985
Sameinað þing: 47. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2845 í B-deild Alþingistíðinda. (2313)
286. mál, kjör og starfsaðstaða framhaldskólakennara
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Hæstv. menntmrh. greindi frá því hér áðan að hún væri tilbúin til þess að hafa umr. um þessi mál á næsta fundi í Sþ. ef fsp. yrðu þá teknar fyrir. Ég vil taka undir þessa áskorun hæstv. menntmrh. til hæstv. forseta um það að framhaldsumræða um þetta mál fari fram á fimmtudaginn kemur, það dragist ekki þangað til á þriðjudaginn í næstu viku. Ég tel það í rauninni algjörlega fráleitt, miðað við stærð þessa máls og eðli og það hvernig á stendur í tíma, að draga umr. um það þangað til í næstu viku, fram til 19. þ. m. Þess vegna skora ég á hæstv. forseta að sýna þingheimi og aðilum málsins þann skilning að umr. um þetta mál fari fram á fimmtudag. Það er í rauninni ekkert sem segir að fyrirspurnatími geti ekki verið á fimmtudag rétt eins og á þriðjudögum, þar ræður vilji hæstv. forseta. Og ég er viss um að það er vilji þm. flestra, ef ekki nær allra, að þessi umr. haldi áfram strax á fimmtudaginn.