12.02.1985
Sameinað þing: 47. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2848 í B-deild Alþingistíðinda. (2318)

254. mál, nöfn fyrirtækja

Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. viðskrh. fyrir svörin og get tekið undir það sem hann sagði, að auðvitað þarf að halda lifandi umræðu meðal þjóðarinnar um íslenska tungu. En því verður ekki breytt að til einhvers erum við hér á hinu háa Alþingi að setja lög. Og þegar að þessum lögum er ekki farið hlýtur það að vera í verkahring viðkomandi ráðh. að sjá til þess að svo verði.

Ólafur Oddsson, kennari í íslensku við Menntaskólann í Reykjavík, reit ágæta grein í sunnudagsblað Morgunblaðsins 9. sept. s.l. Þar segir hann, með leyfi forseta:

„Fyrir rúmum tveimur öldum vildi skólamaður nokkur að Íslendingar legðu niður móðurmál sitt og tækju upp danska tungu. Um svipað leyti var lagt til að Reykjavík, höfuðstaður landsins, yrði heiðruð með nafninu Christiansvig. Þessar tillögur náðu sem betur fer ekki fram að ganga en hin erlendu máláhrif voru þá og reyndar lengi síðar afar sterk. Íslandsvinurinn Rasmus Rask taldi árið 1818 að íslensk tunga mundi fljótlega deyja „ef ekki verða rammar skorður við reistar“. Ýmsir þjóðhollir menn veittu hér öflugt viðnám og okkur er hollt að minnast auglýsinga Stefáns Gunnlaugssonar frá 7. febr. 1848 þess efnis að íslensk tunga eigi best við í íslenskum kaupstað“.

Ég held að þessi orð séu gjörsamlega tímabær nú. Auðvitað er ég ekki þar með að segja að nöfn á íslenskum fyrirtækjum ráði úrslitum um örlög íslenskrar tungu. En það er satt að segja óþolandi að þessi kaupsýsluíslenska, eins og Baldur Jónsson, formaður íslenskrar málnefndar, svo réttilega kallaði hana í annarri grein í Morgunblaðinu, ráði hér ríkjum og þegar við göngum um okkar eigin kaupstað blasi við okkur að annað hvert fyrirtæki í bænum heiti nöfnum eins og þeim sem ég taldi hér upp áðan.

Það veldur mér því nokkrum vonbrigðum að hæstv. ráðh. sagði ekki afdráttarlaust að hann mundi kalla á sinn fund eigendur þessara fyrirtækja og benda þeim á löggjöf landsins og ekki síður reyna að hafa áhrif á þá sem málsvari mennta og menningar í landinu sem hæstv. íslenskur ráðh. Ég held að hér þurfi að herða mjög tökin ef þessi lög, sem við settum hér 1982, eiga ekki gjörsamlega að verða að engu höfð. Því að það er alveg hárrétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að þetta fer ört í vöxt. Þeim rökum hefur oft verið beitt að hér séu einnig gróin og gömul fyrirtæki sem hafi heitið erlendum nöfnum um árabil. Nægir að nefna London og einhver slík fleiri. En ég held að einhvern tíma verði að hefja þessa baráttu og það verði að nota svipuð rök og þegar lögin voru sett um ríkisborgararétt á Íslandi og menn fengu að halda sínum eigin nöfnum en hafa ekki leyfi til að halda við erlendum nöfnum. Ég held að hér verði að ganga betur fram og ég vildi gjarnan heyra hæstv. ráðh. segja að hann hyggist virkilega hefja einhverjar aðgerðir í þessu máli.