23.10.1984
Sameinað þing: 8. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 401 í B-deild Alþingistíðinda. (232)
68. mál, lögverndun á starfsheiti grunnskólakennara
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Hv. 5. þm. Austurl. sagði hér að sú yfirlýsing mín að unnið skyldi að þessu frv. og Bandalag kennarafélaga beðið að tilnefna menn í nefnd til að vinna að þeim undirbúningi hefði verið skilyrt. Þetta er alrangt og á því vil ég vekja athygli. Ég skil ekki hvað kemur hv. þm. til þess að halda slíku fram, nema ef vera skyldi að hann væri eitthvað leiður yfir því að hafa ekki verið búinn að leggja fram frv. sitt áður en þessi yfirlýsing lá fyrir.