12.02.1985
Sameinað þing: 47. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2851 í B-deild Alþingistíðinda. (2322)
252. mál, auglýsingakostnaður vegna sölu spariskírteina ríkissjóðs
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Ég ætlaði ekki að blanda mér í þessa umr. Það voru fáein orð, sem hv. fyrirspyrjandi, hv. 10. landsk. þm., mælti hér áðan, sem urðu þess valdandi að ég ákvað að segja nokkur orð.
Í fyrsta lagi þykir mér undarleg sú afstaða hennar og margra flokkssystkina hennar að agnúast við auglýsingar. Nú skal ég fyrstur manna viðurkenna að auglýsingar eru misjafnar og töluvert skortir á það í okkar þjóðfélagi að haft sé eftirlit með því að auglýsingar séu réttar. En réttar auglýsingar með upplýsingum eru fréttir og þær eru upplýsingaþjónusta við neytendur. Við lifum í þjóðfélagi, hvort sem okkur líkar það betur eða verr, þar sem auglýsingar eru þáttur af upplýsingamiðluninni í þjóðfélaginu. Hv. þm. hristir höfuðið. Það getur hún vel gert, en engu að síður er þetta staðreynd.
Ég er alveg sannfærður um að fjmrn. átti einskis annars úrkosta en að taka þátt í þeim leik sem hér er leikinn og ýmsum finnst ganga fulllangt. Auðvitað verður rn. sem keppir um peninga við bankana að hafa sig í frammi. Ég veit að flokksbróðir hv. 10. landsk. þm., hv. 3. þm. Norðurl. v. Ragnar Arnalds, hefði gert nákvæmlega það sama í þessari stöðu, að hafa úti öll spjót til að tryggja ríkissjóði fjármagn. Og hvað sem má segja um auglýsingar fjmrn. hafa þær vakið athygli og vakið mikla athygli þegar þekktur gamanleikari í konulíki kemur á fund hæstv. fjmrh., að því er manni sýnist í auglýsingunni, og þeir tala sama mál sem báðir virðast skilja!
En það sem gerði að verkum að ég kvaddi mér hljóðs var það að ég heyrði að hv. þm. Guðrún Helgadóttir var að hnýta í þá sem hafa atvinnu af því að búa til auglýsingar. Ég fullyrði að þeir sem vinna við auglýsingagerð hér á landi fyrir sjónvarp og kvikmyndahús eru mjög vel starfi sínu vaxnir og ef rétt væri á málum haldið gæti sú kunnátta og tækniþekking, sem hér er til staðar, orðið útflutningsvara til hinna Norðurlandanna og raunar víðar vegna þess að þær auglýsingar, sem hér eru gerðar fyrir sjónvarp og kvikmyndahús, standast fyllilega samkeppni við það sem gert er í löndunum í kringum okkur. Ég sé satt að segja ekki hvaða ástæðu hv. þm. Guðrún Helgadóttir hefur til að hnýta í það fólk sem starfar að þessu. Þetta er heiðarleg vinna. Það var á henni að skilja að þetta væri illa unnið og lélegt. Ég mótmæli þeim ásökunum hennar. Ég þekki nokkuð til þessara hluta að því er kvikmyndagerðina varðar og ég fullyrði að þeir sem þessi störf vinna hér eru vel sínu starfi vaxnir. Hennar ummæli um þá voru ómakleg og óeðlileg og henni sæmst að draga þau til baka.