12.02.1985
Sameinað þing: 47. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2854 í B-deild Alþingistíðinda. (2326)

252. mál, auglýsingakostnaður vegna sölu spariskírteina ríkissjóðs

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Þessar umr. hafa farið svolítið öðruvísi en ég hafði búist við. Hér var spurt og ég tel að ráðh. hafi svarað, en ýmislegt annað hefur komið inn í þessar umr., m.a. það að næst ætti Alþingi að fara að auglýsa og mér skildist að hv. 10. landsk. þm. vildi þá fá að leika aðalhlutverkið með því að dansa á borðum. Ég ætla að fá að dansa við hana ef úr því verður. Við getum sameiginlega komið fram þó að það kosti kannske einhver atkv. — Við dönsum illa, virðulegi þm.

Hv. síðasti ræðumaður boðaði að hann mundi óska eftir því að sundurliðaður kostnaður yrði lagður fram í tölum. Eftirfarandi tafla, sem ég hef hér, sýnir annars vegar áætlunarkostnað við auglýsingaherferðina á tímabilinu janúar-apríl 1985 og hins vegar áfallinn kostnað til og með 11. febrúar. Ég tek fyrst áfallinn kostnað miðað við 11. febrúar: Til dagblaðanna fóru 1 millj. 15 þús. Það skiptist þannig að Morgunblaðið hefur fengið 587 þús., Dagblaðið/Vísir hefur fengið 284 þús., Nýi Tíminn 43 þús., Þjóðviljinn 43 þús., Helgarpósturinn 29 þús., Alþýðublaðið 29 þús. Ríkisútvarpið hefur fengið 649 þús. samtals. Það skiptist þannig að Rás 1 hefur fengið 90 þús., Rás 2 130 þús. og sjónvarpið 429 þús. Ég er hér með sundurliðaðan áætlaðan heildarkostnað líka, þannig að samtals eru þetta 5 millj. kr. Til að spara hv. fyrirspyrjanda fyrirhöfn get ég látið hann hafa afrit af svari mínu.