12.02.1985
Sameinað þing: 48. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2859 í B-deild Alþingistíðinda. (2338)

287. mál, könnun á launum og lífskjörum

Páll Pétursson:

Herra forseti. Ég er samþykkur úrskurði hæstv. forseta um það að ekki sé ástæða til á þessu stigi eða úr því sem komið er að fara að gera vesen af hans hálfu vegna þessa tillöguflutnings.

Auðvitað er þetta nálega sama till. og auðvitað hefði verið hægurinn hjá hv. flm. síðari till., Gunnari G. Schram, að koma að máli við flm. fyrri till., hv. þm. Tómas Árnason og hv. þm. Gunnar G. Schram, og fá endurbætur fram á þeirra till. ef síðari till., sem rétt er, er aðeins víðtækari. Ég tel að þeir hefðu átt að geta komið sér saman um það á sínum tíma ef hv. þm. Gunnari G. Schram sýndist betur fara á því að hafa till. víðtækari en Tómas Arnason hafði stílað, því að ég geri ráð fyrir því, þó þeir séu báðir flm., að þá hafi nú Tómas samið tillögugreinina. En svo vel þekki ég lipurð hv. fyrrv. þm. Tómasar Árnasonar að hann hefði tekið því góðmótlega að víkja við orðum og breyta orðunum „Norðurlönd“ í „nálæg lönd“.

Mönnum geta alltaf orðið á mistök og það er alveg spurning hvort ekki er ástæða til þess að skrifstofa Alþingis hafi sérstaka gæslu á því að menn séu ekki að flytja sem þáltill. tillögur sem samþykktar voru í fyrra eða hitteðfyrra sem ályktanir Alþingis eins og einnig mun hafa komið fyrir. Á þessu þyrfti skrifstofan að hafa eitthvert kontról. Nú ég læt þess einnig getið, úr því að ég er kominn hér, að mér þykir það óviðfelldið ef stjórnarþingmenn taka frv. sem samin hafa verið á vegum ríkisstj. og væntanleg eru sem stjfrv. og flytja sem sín mál.