12.02.1985
Sameinað þing: 48. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2860 í B-deild Alþingistíðinda. (2340)

151. mál, saga íslenskra búnaðarhátta

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Atkvgr. verður frestað Það er hart að þurfa að segja að það er ekki til fyrirmyndar að þm., sem eru fyrir augnabliki hér á þessum fundi, hverfa af fundi þó þeir viti að það þurfi minnst að fara fram atkvgr. um sex mál til þess að koma þeim til nefndar. En það er nú eins og svo oft áður þegar maður finnur, að það á ekki við þá sem hegða sér vel og eru viðstaddir, heldur hina.