13.02.1985
Efri deild: 43. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2876 í B-deild Alþingistíðinda. (2359)

198. mál, útvarpslög

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Hv. 11. þm. Reykv. á alla mína samúð fyrir að þurfa að inna hér það verk af hendi að tala fyrir þessu frv. sem ég segi aftur og enn, og tek þar undir með ritstjóra DV, Jónasi Kristjánssyni, að er vitlausasta plagg sem uppi er á Alþingi um þessar mundir.

Hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir lét hér þau orð falla að mín gagnrýni á þetta frv. hefði ekki verið málefnaleg. Nú skal ég telja upp fyrir hv. þm., ef hún hefur þolinmæði til að sitja og hlusta, nokkur þau atriði málefnaleg sem ég nefndi hér en hún hefur ekki svarað einu einasta orði.

Ég nefndi það að í frv. Kvennalistakvenna er gert ráð fyrir sama innheimtufyrirkomulagi og nú er við lýði. allir eru sammála um að það fyrirkomulag er ónýtt. Var þetta ómálefnaleg gagnrýni? Ég heyrði hana ekki minnast einu einasta orði á þetta. Ég sagði að fjármálahlið málsins væri öll í myrkri. Hún sagði hér áðan að það væri ekki hægt að gera áætlanir langt fram í tímann. Það er auðvitað rétt. Það er erfiðleikum háð. En samt er fjármálahlið þessa frv. öll í myrkri.

Í þriðja lagi gerði ég í töluvert löngu máli að umtalsefni hugmyndir þeirra Kvennalistakvenna, sem þær svo nefna sig, um valddreifingu og vitnaði þar til orða Petru Kelly, þingmanns á vesturþýska sambandsþinginu, sem segir í viðtali við vikuritið Time að þessar valddreifingarhugmyndir eins og Græningjarnir í Þýskalandi eru að reyna að útfæra, séu hámark hræsninnar vegna þess að þetta sé stjórnleysi. Ég fullyrði að öll þessi gagnrýni er málefnaleg. En hv. þm. Kvennalistans kaus að svara ekki þessari gagnrýni heldur gera það að meginefni ræðu sinnar að ég hefði sagt að þetta frv. væri vitlausasta plagg sem nú væri til umr. hér á Alþingi. Henni er það auðvitað frjálst og það má vissulega með sanni segja að það séu ekki mjög málefnaleg ummæli, ég skal fyrstur manna viðurkenna það. En þetta er nú engu að síður skoðun mín og ég er ekki einn um þá skoðun. Ritstjóri DV, Jónas Kristjánsson, hefur haldið þessu fram í leiðara og það er hann sem fullyrðir að Kvennalistinn hafi verið gabbaður til að flytja þetta frv. Það er ekki ég. Ég hef ekki þá þekkingu á málefnum Kvennalistans að ég gefi fullyrt það. (SDK: Ekki Jónas heldur:) Það veit ég ekkert um. Hins vegar fullyrðir hann það að Kvennalistinn hafi verið gabbaður til að flytja þetta frv. og ég er alveg sannfærður um að það er mergurinn málsins. En annað vildi ég segja hv. þm. Í minni ræðu sagði ég orðrétt, með leyfi forseta:

„Hv. þm. nefndi hér tvö nöfn“ — þetta er orðrétt tilvitnun í mína ræðu hér á mánudaginn — „sem höfunda frv. Það kom mér ekkert á óvart. Ég er ekki ókunnugur innanhúss í sjónvarpinu og í útvarpinu og það þarf engan fingrafarasérfræðing til að sjá hverjir hafa farið höndum um þetta frv. Og það eru fleiri en ég, hv. þm. Sigríður Dúna, sem telja þetta plagg ekki mjög gáfulegt.“

Og hvers vegna sagði ég þetta? Vegna þess, virðulegi forseti, og taki menn nú eftir, að hv. þm. Kvennalistans sagði orðrétt í sinni ræðu hér á mánudaginn:

„Að lokum vil ég við þetta tækifæri þakka þeim fjölmörgu Kvennalistakonum sem lögðu hönd á plóginn við samningu þessa frv. Einkum vil ég þar nefna þær Elínborgu Stefánsdóttur og Ingibjörgu Hafstað sem eru fulltrúar Kvennalistans í útvarpsráði.“

Meira en það. Elínborg Stefánsdóttir er starfsmaður sjónvarpsins, dagskrárfulltrúi í lista- og skemmtideild. Og á því voru mín ummæli byggð. Þau voru byggð á því sem hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir sagði hér í sinni ræðu og þessi yfirlýsing Starfsmannafélags Ríkisútvarpsins, sem ég hef nú raunar aðeins heyrt af en ekki séð, mér hefur ekki verið send hún, hún var bara send í fréttir Ríkisútvarpsins varðandi mín ummæli, hún er auðvitað marklaus. Það er yfirlýst af hálfu aðaltalsmanns Kvennalistans og flm. frv. að einn af starfsmönnum sjónvarpsins sé aðalhöfundur þessa frv. Ég sé ekki hvernig hv. þm. ætlar að snúa sig út úr þessu. Mér er lífsins ómögulegt að sjá það. Það stendur hér og fyrir því eru hennar eigin orð að einn af starfsmönnum sjónvarpsins sé aðalhöfundur frv.

Ég veit miklu meira, hv. þm. Sigríður Dúna, um þetta mál en ég kæri mig um að segja hér úr ræðustóli á Alþingi. Ég veit miklu meira um tilurð þessa frv. heldur en er við hæfi að ræða um úr ræðustóli hér. Þess vegna stend ég við það sem ég hef sagt, og hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir fyrir hönd Kvennalistans hefur staðfest það, að þetta frv. er að hluta til samið af starfsmanni sjónvarpsins, starfsmanni sem hefur átt sæti í útvarpsráði fyrir hönd Kvennalistans núna um nokkra hríð, með þeim erfiðleikum sem fylgja því fyrir starfsmann að eiga þar sæti, sem þýðir það að annan hvern fund verður viðkomandi starfsmaður alltaf að kalla varamann inn fyrir sig.

Ég ætla ekki heldur að gera þau mál frekar að umtalsefni hér. Það er engin ástæða til þess. En það stendur óhaggað og alveg sama hvernig hv. þm. reynir að snúa því að það eru hennar eigin orð um faðerni þessa frv., ef ég má nota það orð. Það er skilgetið afkvæmi þeirra sem hér voru tilefndir af hv. þm. Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur.

Ég ætla ekki, virðulegi forseti, að hafa um þetta fleiri orð. Þessu frv. verður vísað til nefndar og þar mun það áreiðanlega hljóta hægt andlát vegna þess að þeir sem ég hef átt kost á að ræða þetta mál við a.m.k., og er ég þá ekki að tala um nm. sérstaklega, eru sammála um það að þetta frv. rísi alveg undir því nafni að vera vitlausasta plagg sem nú er til umr. á Alþingi. Það mun væntanlega hljóta afgreiðslu, ég treysti því. Það eru menn með ágæta dómgreind í hv. menntmn. þessarar deildar og ég treysti því og veit að þetta frv. fer ekkert lengra sem betur fer. Og það er líka best fyrir þá sem að því standa.