13.02.1985
Efri deild: 43. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2884 í B-deild Alþingistíðinda. (2371)
291. mál, umferðarlög
Flm. (Salome Þorkelsdóttir):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breytingu á umferðarlögum nr. 40 23. apríl 1968, með síðari breytingum. Flm. þessa frv. auk mín eru hv. þm. Karl Steinar Guðnason, Davíð Aðalsteinsson, Eyjólfur Konráð Jónsson, Eiður Guðnason, Helgi Seljan, Stefán Benediktsson og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir.
Frv. þetta var flutt á síðasta þingi og var þá afgreitt frá Ed. en var ekki afgreitt úr allshn. Nd. Það er endurflutt nú með þeirri breytingu að í stað þess að lögbinda notkun ökuljósa allan ársins hring er lagt til að lögbinding gildi frá 1. sept. til 30. apríl ár hvert. Þessi breyting, að ganga ekki jafnlangt og í fyrra frv., er gerð til þess að koma til móts við þá sem eru andvígir breytingu að þessu leyti frá gildandi lögum í þeirri von að frv. nái þá fram að ganga. Flm. eru þeirrar skoðunar að notkun ökuljósa séu þýðingarmikill þáttur í aðgerðum til að koma í veg fyrir umferðarslys og fækka þeim. En staðreyndin er því miður sú að þriðja hvert banaslys hér á landi verður í umferðinni og þar slasast helst börn, unglingar og gamalt fólk.
Með þessu frv. er ekki verið að leggja aukin útgjöld á ríkissjóð umfram aðra. Það er fyrst og fremst verið að leggja til að gerð verði breyting á umferðarlögum sem leggur ákveðnar skyldur á herðar ökumönnum. Kostnaðarauki fyrir hvert ökutæki er óverulegur ef haft er í huga hve gífurlegur kostnaður er af slysum. Ljósin eyða að vísu orku sem talin er svara til einnar aukafyllingar á bensíntank bilreiðar á ári og perur þarf e.t.v. að endurnýja oftar. En að slíkur kostnaður ætti að hafa úrslitaþýðingu telja flm. fráleitt þegar haft er í huga að þetta er liður í aðgerðum til að koma í veg fyrir slys í umferðinni.
Mikilvægi ljósanotkunar ökutækja er tvíþætt. Úti á þjóðvegum er það fyrst og fremst tillitssemi við aðra ökumenn, sem á móti koma, að nota ljósin. Gangandi vegfarendur í yngstu aldurshópunum og þeim elstu hafa ekki allir fullt sjónskyn. Ýmsir eru sjóndaprir og hreyfihamlaðir að meira eða minna leyti og viðbragðsflýtir margra skertur vegna aldurs eða af öðrum ástæðum. Að kveikja ökuljós á farartækjum veitir þessum vegfarendum mikið öryggi. Í skýrslu, sem landlæknisembættið hefur tekið saman um slys í umferðinni, kemur fram sú hörmulega staðreynd að í aldurshópnum 7–20 ára eru slys algengasta dánarorsök hér á landi. Öllum ráðum verður því að beita til að tryggja öryggi í umferðinni.
Í Svíþjóð var það lögleitt 1. okt. 1977 að ökumenn væru skyldugir til að nota ljós allt árið. Í athugun sem fram fór var gerður samanburður á slysum næstu tvö árin fyrir gildistöku laganna um lögbundna ljósanotkun í akstri að degi til og fyrstu tvö árin eftir gildistökuna. Fyrir samþykkt laganna notuðu 50% ökumanna ökuljós en eftir gildistökuna yfir 95%. Talið var að umferðaróhöppum að degi til, þar sem slys urðu á fólki og fleiri en eitt farartæki kom við sögu, hafi fækkað um 11%. Fækkun slysa eftir tegundum var sem hér segir:
Mest fækkaði slysum þar sem hlut áttu að máli bifreið og vegfarandi á reiðhjóli eða bifhjóli. Þar fækkaði slysum um 21%. Slysum fækkaði um 17% þar sem gangandi vegfarendur og bifreiðar áttu í hlut. Minna dró úr slysum sem urðu vegna árekstra bifreiða. Þeim slysum, sem urðu vegna árekstra bifreiða er komu hvor á móti annarri, fækkaði um 10%. Slysum í árekstrum á gatnamótum fækkaði um 9%. Slysum í árekstrum bifreiða, er voru á leið í sömu átt, fækkaði um 2%.
Ákvæði 2. gr. frv , varðandi skólabifreiðar er þáttur í þeirri viðleitni að tryggja sérstaklega öryggi ungra vegfarenda. Þarf e.t.v. ekki að hafa mörg orð um mikilvægi þess atriðis. Á fundi, sem ég sat á s.l. ári þar sem umferðarslys voru til umr. — það var ráðstefna á vegum Umferðarlæknisfræðifélagsins — barst mér bréf frá einum fundarmanna. Þetta bréf tel ég vera gott innlegg inn í þennan þátt málsins og ég vil, með leyfi forseta, lesa það. Það er varðandi skólabifreiðar:
„1981–1983 bjó ég í London, Ontario, Kanada og tók þar bílpróf. Skólabifreiðar voru merktar mjög vel með stórum ljósum sem blikkuðu er bifreiðin stansaði til að hleypa börnum inn eða út. Umferð aftan við og framan við stansaði. Brot á þessu varðaði tafarlausri sviptingu ökuleyfis og var í flokki hörðustu refsinga við umferðarlagabrotum. Fólk virðir þetta og fer þá um leið að hugsa um börn almennt í umferðinni. Í London, þar sem búa 270 þús. manns“ — þetta er London í Ontario, Kanada — „varð ekkert slys á skólabarni á leið úr eða í skóla 1982–83.“
Þetta segir þessi bréfritari og þótti mér, herra forseti, gagnlegt fyrir hv. þdm. að heyra frá reynslu þeirra þarna í Kanada af þessu máli.
Ég vil að lokinni þessari umr. leggja til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.