13.02.1985
Efri deild: 43. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2890 í B-deild Alþingistíðinda. (2379)
291. mál, umferðarlög
Valdimar Indriðason:
Herra forseti. Ég vil að gefnu tilefni þakka tillitssemi flm. frv. við mig að þeir skyldu breyta frv. í þá veru sem ég óskaði eftir af því að ég er ekki kominn nógu langt á þroskabrautinni, eins og ég segi sjálfur, í þeim efnum. Við skulum öll vona að það komi það besta út úr þessu, en ég er ekki kominn lengra á þeirri þroskabraut enn þá en svo að ég sé ekki annað en það verði meiri og minni brögð að því, einkum í þéttbýlinu, t.d. hér í Reykjavík, á svona dögum eins og í dag, að menn kveiki ekki ökuljósin. Hins vegar er ég sammála því að úti á vegum er mun meira ekið með ljósum en áður. Það er auðvitað áróðri að þakka að það er gert og því verður ekki breytt. Ég segi að sem betur fer má aka þar með ljósum. Þó að gildandi lög segi að það skuli gerast við viss birtuskilyrði eru flestir farnir að gera þetta og er það af hinu góða. En það á allt annað við þegar við keyrum á vegum úti á landsbyggðinni, í ryki og eftir hæðóttum vegum, en hér í þéttbýlinu. Þar geta ljósin frekar ruglað heldur en hitt. Ég er þetta langt á eftir í þroskanum að ég sé ekki að þörf sé á að lögbinda svo stranga ljósaskyldu í mesta þéttbýlinu.