23.10.1984
Sameinað þing: 8. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 406 í B-deild Alþingistíðinda. (238)
41. mál, framhaldsskóli
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Fyrri liður þessarar fsp. er: „Hvað líður undirbúningi á vegum menntmrn. að löggjöf um framhaldsskóla?“
Nú má ekki skilja það svo að í landinu sé engin löggjöf um framhaldsskóla. Það eru hins vegar ekki ein lög sem fjalla um framhaldsskóla, heldur fleiri lagabálkar.
Ég greindi frá því á þingi í fyrra að þá hefði ég horfið frá því að sinni að leggja fram. frv. til laga um samræmdan framhaldsskóla. Svo stendur enn og ástæðan er sú sem ég skal nú greina frá:
Þau frv. um það efni sem hafa verið lögð fram síðan 1976 hafa ekki náð fram að ganga og ég tel það dapurleg örlög stórra frumvarpa að fara inn og út af þingi a.m.k. fimm sinnum í röð án þess að menn vilji samþykkja þau þó að ekki sé enn notuð sama aðferðin, heldur reynt að gera sér grein fyrir hvernig stendur á þessu. Staðreyndin er sú að frá því að framhaldsskólafrv. var fyrst lagt fram hér á Alþingi hafa framhaldsskólar haldið áfram að þróast og það er nú orðið ljóst að framhaldsskólar með ýmsu sniði geta starfað hlið við hlið í landinu. Má líta svo á að það sé í þágu þeirra einstaklinga sem útskrifast úr grunnskóla að geta valið um fleiri en eina tegund framhaldsskóla.
Þegar tekið var að fjalla um lög um framhaldsskóla í kjölfar grunnskólalaganna og með hliðsjón af fyrstu áfangaskólunum var hugmyndin sú að steypa alla framhaldsskóla í sama mót, þ.e. mót fjölbrautaskólanna. Þetta mætti víða mótspyrnu og nú er talið sjálfsagt að skólar séu með mismunandi sniði. Þó er rétt að leggja áherslu á lágmarkssamræmingu á þann veg að nemendur geti flust á milli skóla og brauta án þess að tefjast mjög í námi.
Þar sem undanfarin ár hefur verið beðið eftir heildarlöggjöf um framhaldsskólana og menn hafa oft hallast að því að telja að allsherjarlausn felist í heildarlöggjöf, en það er vitanlega misskilningur, þá hefur öll önnur laga- og reglugerðarsmíð um þetta skólastig legið niðri þar til s.l. vor þegar sett voru lög um öldungadeildir sérstaklega og í sumar reglugerð í kjölfar þeirra laga. Í rn. er nú unnið að undirbúningi reglugerðar fyrir fjölbrautaskóla, en eftir slíkri reglugerð hefur einmitt verið beðið af fyrrgreindum ástæðum. Vonast ég til að hún geti greitt töluvert úr vanda sem menn hafa talið að við væri að etja á þessu stigi. Það er vitanlega rétt að verkmenntunin hefur sinn mikilvæga sess í framhaldsskólum af þessu tagi. Fjölbrautaskólarnir og áfangaskólarnir hafa sýnt mjög góðan árangur að þessu leyti og sýnt og sannað mikilvægi sitt, en engu síður tel ég jafnaugljóst að framhaldsskólar með öðru sniði eigi að geta starfað við hlið þeirra í landinu.