13.02.1985
Neðri deild: 41. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2910 í B-deild Alþingistíðinda. (2391)
175. mál, verndun kaupmáttar
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Ég vil nú byrja á því að þakka hv. 3. þm. Reykv. og formanni Alþb. fyrir þessa tilraun til að svara ýmsum fsp. frá mér. Ég var einkum og sér í lagi að leggja fyrir hann spurningar um það hvernig hann sjálfur mæti reynsluna af lélegum landsstjórnarárangri Alþb. á umliðnum árum og ég er tiltölulega ánægður með það að í staðinn fyrir skæting þá verð ég að meta það svo að þetta hafi verið tilraun, nokkuð svo heiðarleg, til endurmats á þeim hlutum.
Það er nefnilega svo að það er alveg nauðsynlegt fyrir þá sem bjóða öðrum til samstarfs og gera það bréflega og biðja um nýtt landsstjórnarafl, sé það svo að reynslan af störfum þeirra á umliðnum árum sé slæm, einkum og sér í lagi út frá sjónarmiði venjulegs fólks, vinnandi fólks, launþega, þá verður að fara fram veruleg vinna við að meta þessa reynslu á raunsæjan máta áður en mikið meira getur orðið af endurnýjun á þeirri reynslu.
Ég vil skjóta því inn í á persónulegum nótum, af því að persónuleiki skiptir líka máli í pólitík, að hv. 3. þm. Reykv. er að mörgu leyti ákaflega frambærilegur stjórnmálamaður. Þetta er skörulegur maður, prýðilega máli farinn, kominn með næga pólitíska reynslu til þess að vera vel heima í ýmsum hlutum. Þar að auki er það ekki lakara að í honum má finna lýrískan streng sem gerir manninn skemmtilegan í umgengni. Eiginlega má segja að mínu mati eftir að hafa hlýtt á þessa tiltölulega hreinskilnu umræðu að það eina sem nú vantar á til þess að fullkomna þetta sköpunarverk drottins er eiginlega að skipta um forrit. Það þarf að skipta um pólitískt forrit. Og það kemur fram í ræðunni.
Hv. 3. þm. Reykv. ræddi hér um verðbólgu, reynsluna af viðureign Alþb. í þremur ríkisstjórnum við verðbólgu. Það var dapurleg lesning. Það fer ekki á milli mála að árangurinn varð hörmulegur. Þarna þarf að læra betur, þarna þurfa þeir Alþb.-menn að læra miklu betur því að það sem formaðurinn sagði um þau mál fær ekki staðist.
Í annan stað var rætt um verðtryggingu og vexti. Þar er formaðurinn mjög á villigötum og þarf alveg nauðsynlega að læra betur áður en mikið lengra verður fram haldið þessum umræðum. Að því er varðar hina sögulegu lexíu, þá getum við látið það liggja á milli mála. Það er vísað til reynslunnar af viðreisnarstjórninni. Það sögulega mat skiptir nú kannske ekki meginmáli að öðru leyti en því, að þegar kemur að því að meta afstöðu vinstri manna til annars vegar ríkisforsjár og hins vegar samkeppni á markaði og fríverslunarpólitíkur, þá þarf formaðurinn enn að læra miklu betur því að þar á hann margt ólært.
Aðrar sögulegar lexíur frá Rauðku gömlu á kreppuárunum, reynslunni af stjórnarþátttöku Alþfl. fram að 1970 eru að vísu svo fjarlægar því viðfangsefni sem við erum að fást við nú að ég ætla ekki að fara um það mörgum orðum. Frásagnir hv. þm. af reynslunni af samstarfi við Framsfl. eru út af fyrir sig lærdómsríkar fyrir alla þá sem hér eru inni og hafa gildi fyrir framtíðina. Það eina sem er undrunarefni, úr því að Alþb.-forustan telur að reynslan af samstarfi við Framsfl. frá kreppuárum, sem var nú allur annar flokkur, hafi verið svona slæm, er að þeir skuli hafa endurtekið þann leik í 20 ár að hafa byggt upp samstarf við Framsfl. alla eyðimerkurgönguna á viðreisnarárunum frá í stórum dráttum 1960–1971 og síðan ekki séð aðra flokka vænlegri til samstarfs allan tímann frá 1971 til 1983, hafandi þó haft þessa sögulegu reynslu fyrir sér um það hvers eðlis sá flokkur væri og hvað væri hægt að gera og hvað ekki í samstarfi við þann flokk í ríkisstj.
Um landbúnaðarmálin er það að segja að þar á Alþb. enn mikið ólært. Mikið vantar á að Alþb. hafi endurmetið hræðilega reynslu af ráðsmennsku sinni í fjmrn. að því er varðar uppstokkun á skattakerfi.
Þegar formaðurinn nefnir stjórnkerfi og nauðsyn á breytingum á því, þá erum við sammála um það. Við búum við stjórnkerfi sem er silalegt, seinvirkt, þar sem embættismenn sitja lon og don á sínum stað og eru raunverulega valdapólitíkusar. Þarna hafa stjórnmálamenn brugðist. En þarna skiptir geysilega miklu máli að forustumenn Alþb. læri líka lexíuna upp á nýtt, þ.e. hver er afstaðan til ríkisforsjár og ríkisrekstrar. Það er komin allt of mikil yfirbygging í nafni ríkisbákns á Íslandi og reynslan af því er slæm. Það þarf ekki bara að endurskipuleggja þetta ríkisbákn, það þarf ekki bara að setja ákveðnar vinnureglur um hreyfanleika, ráðningartíma o.s.frv. Það þarf líka að tryggja að í þjónustu ríkisins komi hæfir starfskraftar sem þýðir að launakerfið er ónýtt. En það þarf í grundvallaratriðum að meta hvert skal vera hlutverk ríkisvaldsins. Þar á Alþb. eftir að draga þá lexíu af reynslunni að hlutverk ríkisvaldsins á að vera mjög takmarkað. Það á hins vegar að vera þeim mun markvissara í þeim þáttum þar sem því er beitt. Þetta er grundvallarlexían að því er varðar báknið. Þetta er geysilega þýðingarmikil lexía fyrir hvern þann stjórnmálaflokk sem hyggst í alvöru og af einlægni og af bestu getu vinna að hagsmunum vinnandi fólks eitthvað að gagni.
Þetta voru fróðlegar umr. Kannske ættum við tveir að biðjast velvirðingar á því að þessar umr. fari fram. Þetta eru umr. í alvöru um stjórnmál og fulltrúar annarra flokka hafa kannske á því takmarkaðan áhuga. Kannske er rétt að við tökum þessar umr. upp á öðrum vettvangi. Ég væri t.d. alveg tilbúinn að beina því til formanns Alþb. að við mættum til fundar, hvort heldur væri í Háskólabíói, Austurbæjarbíói eða Laugardalshöll, til að ræða okkar í milli reynsluna af stjórn Alþb. s.l. átta ár og um leið meginþættina í þeirri stefnu sem kenna má við jafnaðarstefnu, róttæka umbótastefnu, hvernig þurfi að breyta íslensku þjóðfélagi næstu tíu árin. Ekki efa ég að þeir mundu streyma þar að, karlarnir neðan af höfn, vinnandi fólk víðs vegar að af öllum vinnustöðum Reykjavíkur. Það er kannske fyrst og fremst við það fólk sem við eigum erindi miklu fremur en þá sem hér sitja að svo stöddu. Ég ætla m.ö.o. ekki að taka upp umr. hér og nú í smáatriðum eða svara hv. 3. þm. Reykv. í efnisatriðum um verðbólgu og vexti, um vísitölukerfi. Ég hef reyndar gert það þegar og við breytum sjálfsagt ekki skoðunum hvors annars í því efni.
Það merkilega er að þessar umr. leiða í ljós hversu ólíkir þeir flokkar eru sem við erum hvor um sig fulltrúar og formenn fyrir. Það er út af fyrir sig ekkert nýtt. Þessir flokkar hafa verið keppinautar og andstæðingar út frá grundvallarviðhorfum til stjórnmála í bráðum 70 ár. Hugmyndagrundvöllur Alþfl. er lítt breyttur að því leyti að við höfum frá upphafi haslað okkur völl sem flokkur lýðræðissinnaðra jafnaðarmanna, en hugmyndagrundvöllur Alþb., miðað við forvera þess, er náttúrlega gerbreyttur. Ég hef orðað það svo, að Alþb. sé nú orðið pólitísk flóttamannasamtök frá fortíðinni. Ég þarf ekki að rökstyðja það frekar. Þetta byrjaði sem kommúnistaflokkur og það olli miklum breytingum í íslensku þjóðfélagi. Sú staðreynd, starfsemi kommúnista í íslensku þjóðfélagi, varð sögulega til þess að kljúfa verkalýðshreyfinguna, koma í veg fyrir að hér risi öflugur, róttækur sósíaldemókratískur flokkur. Það er að verða mönnum æ ljósara nú að þetta hafi haft hörmulegar afleiðingar í íslensku þjóðfélagi, fyrir vinnandi fólk sérstaklega. Það er hins vegar liðin tíð.
Þessi umr. hefur hins vegar leitt í ljós að þó að forustumenn Alþb. vilji nú ekki kannast við fortíð sína og vilji ekki ræða hana, þá eiga þeir enn margt ólært um hvernig róttækur verkalýðsflokkur á að setja fram stefnu og stjórna í þjóðfélagi sem kennt er við blandað hagkerfi og lýðræði. M.ö.o.: hugmyndaarfurinn er ekki endurskoðaður nema að hluta, þ.e. afstöðuna til Sovétríkjanna, gulagsósíalismans, verja þeir ekki lengur, en þeir eiga ólærða alla hina lexíuna, sem sósíaldemókrataflokkar lærðu strax á árunum fyrir stríð, nefnilega um hið takmarkaða hlutverk ríkisvaldsins við stjórnun slíkra þjóðfélaga, um nauðsyn þess að endurmeta hugmyndaarfinn um ríkisforsjá, ríkiseinokun, um að endurmeta oftrúna á stofnanalausnir í mannlegum samskiptum, um það að viðurkenna gagnsemi samkeppni á markaði út frá sjónarmiðum hagsmuna neytenda að því er varðar verðlag, um nauðsyn þess að gefa framtaki einstaklinga, hugmyndum þeirra, dugnaði þeirra, áræði þeirra að vissu marki lausan tauminn vegna þess að ef við ekki gerum það endum við í stöðnunarþjóðfélagi. Efnahagslegar framfarir byggjast á því, en um leið að standa fast á þeim grundvallarsannindum, sem eru rétt, úr hugmyndaarfi jafnaðarmanna, að hlutverk ríkisvaldsins er að koma í veg fyrir að hér verði innleitt óbeislað markaðskerfi sem mundi leiða til þjóðfélags allsnægta og örbirgðar. M.ö.o.: hlutverk ríkisvaldsins er fyrst og fremst að hafa áhrif á tekju- og eignaskiptinguna í átt til jafnaðar. Hlutverk jafnaðarmanna er að koma í veg fyrir með fyrirbyggjandi umbótum að þjóðfélagið leysist upp í andstæða hópa sem eiga fátt sameiginlegt. Þetta er kannske hið eiginlega pólitíska hlutverk lýðræðissinnaðra jafnaðarmanna í þjóðfélögum af þessu tagi. Þarna eiga forustumenn Alþb. ólærðar nokkurra áratuga lexíur, þ.e. um afstöðuna til ríkisvaldsins, ríkisbáknsins, ríkisíhlutunar, afstöðuna til gildishugmyndanna um samkeppni á markaði þar sem þær eiga við nú og annarra raunsærra hagstjórnaraðferða að því er varðar verðbólgusamskipti við verkalýðshreyfingu og önnur slík kerfi.
Þetta ætla ég ekki að ræða, herra forseti, frekar, þó að tilefni gæfist til. Ég árétta að ég er tilbúinn til að ræða þessi mál nánar á öðrum vettvangi við formann Alþb. hvenær sem er, hef reyndar áður boðið honum upp á slíkar umr., er hann því miður hafnaði, taldi sig þá ekkert eiga vantalað við Alþfl. Nú heyrist mér að hann telji sig eiga það og það er af hinu góða.
Ég er nefnilega ekki þeirrar skoðunar að einn maður eða einn stjórnmálaflokkur sé yfir það hafinn að ræða við aðra. Ég tel það skyldu okkar að vera reiðubúnir að rökstyðja hugmyndir okkar og skoðanir hvenær sem er. Ég er alveg reiðubúinn að ræða við forustumenn Alþb. hleypidómalaust allar þær hugmyndir sem þeir hafa fram að færa um leið og ég áskil mér að sjálfsögðu réttinn til að gagnrýna þá í ljósi staðreynda um þátttöku þeirra í ríkisstjórnum á undanförnum árum.