14.02.1985
Sameinað þing: 49. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2917 í B-deild Alþingistíðinda. (2397)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur yfirfarið kjörbréf Brynjólfs Sveinbergssonar mjólkurbússtjóra á Hvammstanga en þess er óskað að hann taki nú sæti á Alþingi í stað Páls Péturssonar sem er fjarverandi vegna utanfarar í opinberum erindum. Fyrir liggur bréf 1. varamanns Framsfl. í Norðurl.v., Sverris Sveinssonar, þar sem hann staðfestir að hann geti ekki tekið sæti á Alþingi nú.
Kjörbréfanefnd hefur yfirfarið kjörbréfið og hefur engar afhugasemdir fram að færa og mælir með því að það verði samþykkt.
Þá hefur kjörbréfanefnd yfirfarið kjörbréf Óla Þ. Guðbjartssonar skólastjóra á Selfossi, sem er 3. varamaður Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi, en þess er óskað að hann taki nú sæti á Alþingi í fjarveru Árna Johnsens sem er á förum utan í opinberum erindum. Fyrir liggur að 2. varamaður Sjálfstfl. í suðurlandskjördæmi, Guðmundur Karlsson, á þess ekki kost að taka sæti á Alþingi nú.
Kjörbréfanefnd hefur afhugað kjörbréfið og hefur engar athugasemdir fram að færa og leggur til að það verði samþykkt.