14.02.1985
Sameinað þing: 49. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2919 í B-deild Alþingistíðinda. (2404)

Um þingsköp

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Ég kem nú hér í ræðustól sem forseti Ed. Þetta var nokkuð undarleg uppákoma hjá hv. 5. þm. Vestf. að finna hvöt hjá sér til að fara hér í ræðustól til að gera athugasemd af þessu tagi. Ástæðan fyrir því að forseti Ed. setti þennan bréflappa inn í símaklefana var augljós og það vita hv. þm. best sjálfir. Ástæðan var sú að ég taldi að það væri drengilegra að gera slíka afhugasemd á þessum stað. Þetta var í raun og veru mín athugasemd og tilmæli um að gæta sín þegar við erum í símaklefanum að nota pennana ekki til þess að krota á veggina heldur á blöðin sem eru á borðunum. Og þetta var ekki gert með leyfi eins eða neins en mér þótti rétt að gera slíka athugasemd undir nafni.

Hitt er svo annað mál að það grunaði forseta Ed. ekki að þetta yrði hvati fyrir fréttamenn til þess að birta frétt í blaði og þar liggur kannske hundurinn grafinn.