14.02.1985
Sameinað þing: 49. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2919 í B-deild Alþingistíðinda. (2407)

Um þingsköp

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég vil beina því til hv. 4. þm. Reykn. hvort hún viti til þess að þm. hafi krotað á veggi í símaklefunum og þá hverjir. Það er grundvallaratriði að stunda ekki hópdóma og mér finnst undarlegt ef þær leikreglur eiga að takast upp.