14.02.1985
Sameinað þing: 49. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2924 í B-deild Alþingistíðinda. (2428)
102. mál, framleiðslustjórn í landbúnaði
Flm. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Sú till. sem ég mæli hér fyrir hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að kjósa fimm manna nefnd til þess að undirbúa og semja frv. um skipan framleiðslustjórnar, verðlagningar og sölumála í landbúnaði svo og annars þess sem lög nr. 95/1981, um Framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu, verðmiðlun og sölu á landbúnaðarafurðum o.fl. taka til. Markmið laganna verði að auka frjálsræði í viðskiptum, tryggja viðskiptalegt aðhald að vinnsluaðilum og að sem stærstur hluti hins endanlega söluverðs skili sér til bænda.“
Síðan kemur að kostnaður við störf nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði og till. um það hvenær áliti verði skilað.
Þau lög, sem hér um ræðir, munu vera nokkuð gömul að stofni til og þau fjalla um Framleiðsluráð landbúnaðarins. Það er ekkert smáræðisverkefni sem Framleiðsluráð landbúnaðarins hefur á hendi skv. þeim lögum sem hér um ræðir. Það hefur á hendi verðmiðlun, það hefur yfirstjórn með kvótakerfi, það hefur á hendi yfirstjórn kjarnfóðurgjalds, það ræður verðjöfnun á mjólk, það gerir tillögur varðandi verðlagningu og þar fram eftir götunum.
Nánar til tekið getur Framleiðsluráðið ákveðið verðmiðlunargjald af kindakjöti sem renni til sláturhúsanna vegna þess að fjármagnskostnaður þeirra sé mismunandi eða þá að fjarlægðin frá sláturhúsum á markaði sé mismunandi. Í öðru lagi getur það ákveðið verðmiðlunargjald af kindakjöti vegna þess að það sé mislangt frá búunum til sláturhúsanna. Í þriðja lagi getur það ákveðið verðjöfnunargjald til sláturhúsanna vegna stórgripaslátrunar og þá í tvennu lagi, annars vegar vegna nautgripa og hins vegar vegna hrossa, vegna þess að fjármagnskostnaður sé mismunandi eða fjarlægð á markað sé mismunandi. Það getur sömuleiðis ákveðið verðmiðlunargjald er renni til bændanna vegna stórgripaslátrunar vegna þess að það sé mislangt að fara í sláturhúsið.
Það getur í fimmta lagi ákveðið verðmiðlunargjald, og gerir það, sem fari til verðmiðlunar milli mjólkursölusvæða vegna þess að vinnslukostnaðurinn vegna fjármagnskostnaðar sé mismunandi í hinum mismunandi mjólkurbúum. Það getur í sjötta lagi, og gerir, ákveðið verðmiðlunargjald sem gangi til þess að jafna flutningskostnað á mjólkinni frá bændum til samlaganna. Í sjöunda lagi getur það ákveðið sams konar verðmiðlunargjald á egg og í áttunda lagi getur það ákveðið sams konar verðmiðlunargjald á kartöflum. Það getur ákveðið verðjöfnunargjald á mjólk til verðuppbóta á vörur þær sem Framleiðsluráðið telur þörf á að verðuppbætur fari til. Það getur líka ákveðið stofngjald til að standa undir stofnkostnaði nýrra mjólkurstöðva og ef það telur að þessar mjólkurstöðvar séu á traustum grunni reistar á ríkissjóður að styrkja stofnkostnaðinn að 1/4 með ríkisframlagi.
Það gerir tillögur til landbrh., sem hann getur þá ákveðið hvernig með skuli fara, um framleiðslugjald sem getur verið misstórt eftir bústærð. Það gerir líka tillögur til ráðh. um kjarnfóðurgjald og hvernig eigi að verja því í verðuppbætur til þeirra sem draga úr búrekstri, að því er helst verður séð. Og það gerir tillögur til landbrh. um kvóta í sambandi við kvótakerfi og um mishátt verð sem menn fá fyrir afurðir sínar með tilliti til þess hvernig kvótinn er afmarkaður.
Hlutverk Framleiðsluráðs er enn fremur að gera tillögur til sexmannanefndar um það hver sé kostnaður af vinnslu og dreifingu annars vegar kjötafurða og hins vegar mjólkurafurða. Það á líka að gera tillögur til sexmannanefndar um hver sé svokallaður geymslukostnaður. Framleiðsluráðið á líka að gera tillögur til sexmannanefndar um hver smásöluálagning eigi að vera. Og á hverjum tíma getur Framleiðsluráðið tilkynnt til sexmannanefndar að það hafi uppi óskir um að verðlagningu verði breytt.
Framleiðsluráðið gefur líka ákveðið mishátt útborgunarverð til framleiðenda, t.d. eftir árstíðum, og það er hlutverk Framleiðsluráðsins að verðskrá landbúnaðarvörur.
Hlutverk Framleiðsluráðsins hefur enn ekki verið tíundað til fullnustu því að Framleiðsluráðið ákveður hvaða mjólkurstöðvar skuli vera við lýði í landinu og ákveður mjólkursölusvæði. Og sláturhús verða ekki rekin öðruvísi en með leyfi Framleiðsluráðsins. Framleiðsluráðið hefur meira vald að því er varðar sláturhúsin en einungis það að þau megi reka og þar stunda slátrun því að Framleiðsluráðið hefur heimild til að ákveða hvað hvert sláturhús megi slátra mörgum sauðum, liggur mér við að segja, hversu miklu magni hvert sláturhús megi slátra. Það er líka hlutverk Framleiðsluráðsins að ákveða hversu miklu sé haldið eftir af verði á kjöti til að standa undir verðmiðlun.
Það er enn fremur hlutverk Framleiðsluráðsins að ákveða takmarkanir á kjötflutningum milli staða eða svæða ef því þykir það við þurfa og það á að ákveða styrki til mjólkurflutninga milli svæða ef því þykir ástæða til.
Þetta eru nokkur af þeim atriðum, kannske flest þau helstu, enda orðin allmörg, sem Framleiðsluráðið hefur á sinni könnu. Ég treysti mér ekki til að fullyrða að hér sé fulltíundað, en menn sjá af þessari upptalningu að vald Framleiðsluráðsins er æðimikið og það eru mörg gjöldin sem Framleiðsluráð getur ákveðið að leggja á, það eru mörg tækin sem það hefur vald yfir. Þó hef ég ekki minnst á það sem snýr að útflutningi því að í lögunum um Framleiðsluráðið eru einmitt ákvæði um, að til að tryggja greiðslu á þeim halla sem bændur kunni að verða fyrir af útflutningi landbúnaðarafurða skuli til þeirrar tryggingar vera varið fjárhæð sem svari 10% hið hæsta af heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar viðkomandi verðlagsár. Það stendur hvergi í þessum lögum að Framleiðsluráðið fari með þetta fé. Það stendur hvergi beinlínis í þessum lögum. Einungis er tekið fram að Hagstofan skuli reikna þá fjárupphæð sem hér um ræðir. Hins vegar rekur mig minni til þess að Framleiðsluráðið hafi fengið leyfi til að taka lán til að standa undir verðuppbótum umfram það sem þessar útflutningsbætur, eins og þær eru ákveðnar af Alþingi, risu undir á sínum tíma. Ég stend því í þeirri meiningu að Framleiðsluráðið hafi líka dálítið með útflutningsbæturnar að gera, enda kemur fram annars staðar í lögunum að það geti ákveðið verðjöfnunargjald til þess að standa undir kostnaði eða skakkaföllum sem menn verða fyrir vegna þess að ekki fáist fullt verð fyrir landbúnaðarvörurnar í útflutningi.
Þau lög sem hér um ræðir innihalda að sjálfsögðu mörg önnur ákvæði. Það eru t.d. ströng ákvæði um það í 28. gr. laganna, að ef kaupmaður eða verslun vilji fá leyfi til sölu á mjólk, rjóma eða skyri sé þeim sem hafi hlotið slíkt leyfi skylt að hafa ávallt á boðstólum allar vörutegundir sem mjólkursamsala og mjólkursamlögin hafa til sölu á hverjum tíma. Ekki veit ég hvers vegna þetta er gert, en manni þykir kvöðin rík, einkum þegar til þess er litið að Mjólkursamsalan í Reykjavík er nú farin að framleiða ýmsar vörur sem tæpast verða taldar mjólkurafurðir. Er þá skv. þessari grein öllum þeim verslunum sem vilja hafa mjólk til sölu skylt að taka þær aðrar vörur til sölu sem Mjólkursamsalan í Reykjavík framleiðir.
Það eru líka ákvæði um það hér og kannske eðlileg að enginn megi kaupa eða selja búfjárafurðir eða garðávexti á öðru verði en því sem ákveðið er í þessum lögum. Á þessu trúi ég að mann hafi slakað eins og. kunnugt er.
Eins og ég sagði eru þessi lög að stofni til nokkuð gömul og þau hafa hlotið ýmsar endurbætur. En úr því að hér er um svo víðtækt vald að ræða er kannske rétt að líta á hverjir fara með þetta vald.
Framleiðsluráðið er skipað sjö mönnum, kosnum af Stéttarsambandi bænda á fulltrúafundi þess, en auk þess fjórum mönnum sem koma frá eftirtöldum aðilum: Frá SÍS, þ.e. þeirri deild sem fer með landbúnaðarafurðir, frá Mjólkursamsölunni í Reykjavík, frá Sláturfélagi Suðurlands og einum fulltrúa frá mjólkurbúunum utan mjólkursölusvæðis Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Auk þess eru ákvæði um að þegar þeir fjalli um garðávexti, egg eða hross skuli fulltrúar frá viðkomandi samtökum fá að sitja fundina, en þeir hafi ekki atkvæðisrétt.
Þegar litið er á hlutverk Framleiðsluráðsins eins og það er skilgreint í lögunum er það einkar fróðlegt að skoða. Í 1. tölul. 2. gr. er sagt að það sé verkefni Framleiðsluráðs að fylgjast með framleiðslu, sölu og vinnslu landbúnaðarvara. Ekki verður gerð nein aths. við það svo framarlega sem þessi stofnun er fyrir hendi.
Í öðru lagi skal það stuðla að eflingu landbúnaðarframleiðslunnar. Ekki veit ég hvernig ber að skilja þetta, en vafalaust hefur legið til grundvallar á sínum tíma að menn hefðu hug á því að auka landbúnaðarframleiðsluna. Nú er öld svolítið önnur en þegar lögin voru sett í upphafi og sjálfsagt álitamál hvort þessi tilgangssetning stenst að öllu leyti miðað við núverandi aðstæður.
Í þriðja lagi á Framleiðsluráðið að stuðla að umbótum í vinnslu og meðferð varanna og í fjórða lagi að vinna að aukinni hagnýtingu markaða. Allt er þetta góðra gjalda vert.
En í fimmta lagi er það hlutverk Framleiðsluráðsins skv. þessum lögum að vinna að því að beina framleiðslu landbúnaðarins að þeim framleiðslugreinum sem landbúnaðinum eru hagfelldastar og samrýmast best þörfum þjóðarinnar á hverjum tíma. Mér er það stórlega til efs, ef við lítum yfir undangenginn áratug, að Framleiðsluráðið hafi haft þetta markmið nægilega vel í huga miðað við þær ógöngur sem við erum komin í með framleiðslumál landbúnaðarins.
Lögin taka til margs konar atriða sem varða þau stjórntæki sem Framleiðsluráðið hefur yfir að ráða og ég taldi upp hér áðan í svo mörgum liðum að varla varð tölu á komið, enda voru verðmiðlunar- og verðjöfnunargjöldin af margvíslegum toga eins og fram kom. En í þessum lögum eru líka nánari ákvæði um verðlagningaraðferðina og kemur þá sexmannanefnd til sögunnar. Sú sexmannanefnd sem hér um ræðir átti að vera skipuð annars vegar fulltrúum framleiðenda og hins vegar neytenda þó að neytendur hafi verið tregir til setu í nefndinni og þess vegna séu komin inn ákvæði um hvernig með skuli fara þegar neytendur tilnefna ekki fulltrúa sína og er þá tilnefningarvaldið hjá ráðh.
Sexmannanefnd ákveður skv. þessum lögum afurðaverðið til framleiðenda og heildsöluverð og smásöluverð og hún ákveður verðlagsgrundvöll sem gildir til tveggja ára hverju sinni. Í verðlagsgrundvellinum er fólgin upptalning á þeim rekstrarþáttum sem menn telja að tilheyri búvöruframleiðslunni, hversu mikil notkun sé á kjarnfóðri eða áburði og þar fram eftir götunum, hversu mikil notkun sé á hinum ýmsu rekstrarþáttum. Að því er varðar verðlagningu þessara þátta er hins vegar heimild til að endurskoða verðlagningu þáttanna ársfjórðungslega og það sama gildir ef ástæða þykir til að breyta verðlagningu á kaupi bóndans. En það sem er sérstakt við þessa verðlagningaraðferð er það að flest af því sem sexmannanefnd á að byggja verðákvarðanir sínar á á að gerast skv. tillögum frá Framleiðsluráðinu sem jafnframt hefur á hendi skv. lögunum gagnasöfnun varðandi mörg þau atriði sem á á að byggja, svo sem eins og varðandi vinnslu- og dreifingarkostnað, geymslukostnað og hæfilega smásöluálagningu.
Það er skoðun okkar flm. að fyllsta ástæða sé til þess og hafi reyndar verið fyrir löngu að endurskoða þessi lög. Þessi till. hefur vakað í hugum okkar og við höfum í sjálfu sér talað fyrir tillögum af þessu tagi mjög oft áður. Við teljum nauðsynlegt að það stjórnkerfi sem við lýði sé taki mið af núverandi aðstæðum.
Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um þá gagnrýni sem uppi hefur verið í þjóðfélaginu varðandi yfirstjórn landbúnaðarmála. Það er í rauninni einkenni núverandi kerfis að verð á landbúnaðarvörum til neytenda er hátt, en verð til bænda verður að teljast lágt í mörgum tilvikum. Þeim sem utan við standa sýnist hins vegar, og reyndar hef ég það úr samtölum við marga bændur, að milliliðir, vinnslustöðvar, hafi allt sitt á þurru og vel það og ekki virðist vera neinn svikkur á því hversu mikið þessir aðilar geti lagt í fjárfestingu á sama tíma og margir bændur berjast í bökkum. Það er m.a. af þessum sökum sem vinnslu- og dreifingarkerfi landbúnaðarins og stjórnkerfið hefur sætt vaxandi gagnrýni á undanförnum árum. Margt hefur komið upp á yfirborðið í þeirri gagnrýni og þeim athugunum sem framkvæmdar hafa verið. Fyrir skömmu framkvæmdi Hagvangur fyrir ríkisstj. athugun á kostnaði við framleiðslu einstakra mjólkurafurða. Þá kom í ljós að því væri ekki einu sinni haldið til haga í bókhaldi vinnslustöðvanna. Verðmyndun á hinum einstöku mjólkurafurðum, þ. á m. kakómjólk og mangósopa, sem var mikið deiluefni á síðasta ári, fékkst aldrei upplýst, um það vissu menn ekki neitt.
Þorvaldur Búason hefur ritað mikið um sláturkostnað og hann hefur leitt rök að því að mikill dulinn hagnaður sláturhúsanna hafi átt sér stað á undanförnum árum og því meiri sem verðbólgan var meiri. Þetta lá m.a. í því að skil til bænda komu seint og fé var varðveitt hjá sláturleyfishöfum og þeir höfðu möguleika til verðbólgugróða af þeim fjármunum sem þeir höfðu á milli handanna.
Það er ekki nýtt heldur að menn hafi haft áhyggjur af lélegri nýtingu fjárfestingar í vinnslustöðvum landbúnaðarins. Auðvitað getur verið vandi að nýta sumar af þessum vinnslustöðvum þannig að vel sé, svo sem eins og sláturhúsin. En það hafa fleiri atriði verið tínd til í þeim efnum, eins og mikil afkastageta og mikil stórhýsi í Borgarnesi, svo dæmi séu tekin og mætti víðar til telja. Enn sjáum við rísa margar dýrar stórbyggingar fyrir vinnslustöðvar og dreifingarstöðvar í landbúnaði án sýnilegs fjárskorts til framkvæmdanna þrátt fyrir samdrátt og þrengingar á mörgum öðrum sviðum þjóðlífsins.
Það er skoðun okkar flm. að öllum atvinnurekstri sé hollt að njóta viðskiptalegs aðhalds. En það má einmitt færa rök að því að slíkt viðskiptalegt aðhald skorti að því er vinnslustöðvar landbúnaðarins varðar og skýringanna á því, sem ég gerði að umtalsefni áðan, sé að hluta til að leita í því að hið viðskiptalega aðhald í þessari grein sé minna en æskilegt verði að teljast. Menn sjá það af öllum þeim verðjöfnunar-, stofngjöldum, framleiðslugjöldum og þar fram eftir götunum, sem Framleiðsluráðið getur lagt á, að viðskiptalegur árangur hjá einni vinnslustöð nýtist henni ekki nema að hluta. Við getum orðað það svo: Þeir sem standa sig illa, þeir sem hafa fjárfest um of, verða styrktir, ekki bara til fjárfestingarinnar heldur líka í framhaldinu, og hafa verið styrktir til að standa undir fjármagnskostnaði.
Það kann að vera — og er ekki ólíklegt-að meðan á uppbyggingunni stóð og hér var sífellt verið að auka framleiðsluna, eins og rétt var á sínum tíma, hafi jöfnunaraðgerðir af þessu tagi átt fyllsta rétt á sér og verið eðlilegar og skynsamlegar. En við búum við allt aðrar aðstæður eins og stendur. Þess vegna er nauðsyn að taka þetta til endurskoðunar. Markmiðið með þeim lögum sem í gildi eiga að vera og markmiðið með þeirri endurskoðun sem við erum að leggja til að hér verði framkvæmd hlýtur að vera og á að vera að auka hagkvæmni í vinnslunni og stuðla þannig að því að sem stærstur hluti hins endanlega afurðaverðs skili sér til bænda og að neytendum verði ekki gert að greiða óeðlilega hátt verð. Það er skoðun okkar flm. að ein leiðin til þess að stuðla að þessu sé að auka frjálsræði og einmitt, eins og ég gerði að umtalsefni hér áðan, að tryggja viðskiptalegt aðhald, enda kemur það fram í grg. með þessari till.
Það eru æðimörg ár liðin síðan Gylfi Þ. Gíslason gerði að umtalsefni að offramleiðsla í landbúnaði væri vandamál á Íslandi og gæti orðið vaxandi vandamál. Hann var þá og Alþfl., hverrar stefnu Gylfi túlkaði, stimplaður sem óvinur bænda, það væri ljótt að hafa á orði að það gæti verið vandamál að of mikið væri framleitt af landbúnaðarvörum. Við höfum líka, Alþfl.-menn, oft á undanförnum árum flutt till. og haft uppi málflutning um að þessi óheyrilegi útflutningur og öll þessi gjöld sem á þjóðina væru lögð vegna hans væru byrðar sem við gætum ekki borið, þetta væri óskynsamlegt og hér væri nauðsynlegt að grípa í taumana. Þá höfum við gjarnan verið stimplaðir óvinir bænda og ýmsir ritsnillingar og skriffinnar hafa verið sendir út á völlinn til að vaða elg og standa í rauninni í vegi fyrir skynsamlegri umræðu um þessi mál. Þeir hafa farið offari, ýmsir þeir skriffinnar, og það hefur enginn mátt æmta eða skræmta um landbúnaðarmál utan kerfis landbúnaðarmafíunnar, ef ég má orða það svo, utan þess kerfis sem fer með stjórn þessara mála, öðruvísi en þar risu upp hver á fætur öðrum ýmsir frammámenn og segðu mönnum að þeir hefðu ekki hundsvit á því sem þeir væru að tala um.
Loksins, tíu til fimmtán árum of seint, eru menn að vakna til vitundar um að stefnan hefur verið röng, sú stefna sem hefur verið fylgt í þessum efnum, framleiðslustefnan sé orðin úrelt, henni hefði þurft að breyta langtum fyrr. Þarna er seint í rassinn gripið, eins og sagt er, og hefur kostað okkur ómælda peninga og kostar bændastéttina nú verulegar þjáningar og fórnir.
Eftir þennan aðdraganda er yndislegt að sjá einn af þeim hagfræðingum sem eru í þjónustu Sambandsins lýsa eins og sólargeisla út úr því myrkviði sem þaðan hefur birst á undanförnum árum þegar fjallað hefur verið um þessi mál. Ég á hér við Guðmund Stefánsson, en eftir hann hafa birst greinar sem eru byggðar á erindi sem hann hefur flutt um þessi mál. Ég get ekki stillt mig um, herra forseti, að vitna nokkuð til þessara greina og fara með hluta úr þeim. Ef bændasamtökin hefðu borið gæfu til þess að hlusta á málflutning okkar Alþfl.manna fyrr og halda uppi málefnalegri og skynsamlegri umræðu er ég sannfærður um að við stæðum langtum betur nú en ella. Og það er athyglisvert að sjá í þessum greinum hversu margt af því sem við höfum haft uppi orð um og flutt tillögur um er tekið undir af þessum greinarhöfundi, Guðmundi Stefánssyni.
Hann getur þess í upphafi fyrri greinar sinnar að það hafi verið fljótlega upp úr 1960 sem viðvaranir fóru að heyrast um offramleiðslu, og hann bætir við:
„... en engar ráðstafanir voru gerðar til að hafa hemil á framleiðslunni og allt fram til 1978 jókst framleiðsla búvara, enda þótt þá væri löngu ljóst að markaðslegar forsendur væru ekki fyrir allri þessari framleiðslu, hvað þá fyrir framleiðsluaukningu.“
Hér er réttilega mælt, en þetta er harður dómur um Alþingi, um það stjórnkerfi sem við lýði hefur verið í landbúnaði, að það skyldi taka það 18 ár að taka aðeins við sér.
Hann bendir á það í grein sinni að á árunum frá 1978 hafi hins vegar náðst verulegur árangur í þessum efnum. Það er auðvitað rétt og ljóst af framleiðslutölum að miðað við þá feikna framleiðslu sem þá var hefur náðst árangur, þó að hann sé ekki nægilegur, í því að hafa stjórn á heildarframleiðslumagninu og draga úr því. En í þessu sambandi gerir Guðmundur einnig að umtalsefni afurðasölufyrirtækin. Hann bendir á að þegar samdráttur verði í framleiðslunni, eins og hafi átt sér stað frá 1978 og augljóslega þarf að verða eitthvað meiri miðað við þá stöðu sem nú er, hljóti að koma upp erfiðleikar hjá afurðasölufyrirtækjunum. Hann segir að það hafi reyndar komið í ljós erfiðleikar vegna þess að vanskil hafi aukist hjá mjólkurstöðvum og sláturleyfishöfum og þeir eigi í vaxandi erfiðleikum á báðum þessum stöðum við að greiða bændum fullt verð fyrir afurðir sínar og þess vegna „er full ástæða til að endurskoða skipulag mjólkuriðnaðarins“.
Og um þetta atriði segir hann:
„sum mjólkursamlögin eru orðin óþörf séð frá þeim sjónarhóli að án þeirra verði neytendum á viðkomandi svæði ekki séð fyrir nýmjólk. Sum hinna minnstu mjólkursamlaga mætti og á að leggja niður.“
Þetta er maður sem hefur kynnt sér sérstaklega hverjar aðstæður ríkja í landbúnaðinum.
Sama er uppi á teningnum að því er sláturhúsin varðar. Hann segir varðandi þau:
„Ég held. .. að slíkur samdráttur fari illa með hvert fyrirtæki og á það jafnt við um mjólkursamlög sem sláturhús.“
Og hann segir:
„Hér er endurskipulagningar þörf og margar þær forsendur sem lágu því til grundvallar að sláturhúsin voru staðsett eins og er í dag og eins mörg og raun ber vitni eru ekki til staðar lengur.“
Forsendurnar undir úthlutun sláturleyfanna eru sem sagt hrundar að áliti greinarhöfundar sem á vel til að þekkja í þessum efnum. Og hann bætir við:
„Það er landbúnaðinum meginnauðsyn að nýta þær fjárfestingar sem fyrir hendi eru eins og nokkur kostur er.“
Hér erum við einmitt komin að því atriði, sem ég gerði að sérstöku umtalsefni áður, að léleg nýting fjárfestingar í vinnslu og dreifingu hefði verið gagnrýnisefni og það er áreiðanlega fyllsta ástæða til að taka þessi mál nýjum tökum og tryggja betri nýtingu fjárfestingarinnar.
Greinarhöfundur segir líka í grein sinni að það sé sammerkt með íslenskum landbúnaðarrannsóknum að aðaláherslan hafi verið lögð á framleiðsluþáttinn. Það er auðvitað í samræmi við þá stefnu sem var réttilega mörkuð fyrir fjórum áratugum um nauðsyn þess að auka framleiðsluna. En nú eru önnur viðhorf uppi og einmitt á þeim forsendum bendir hann á nauðsyn þess að hyggja betur að ýmsum öðrum rannsóknarþáttum en einmitt þessum í framhaldinu. Hann segir að þó að rannsóknir að því er varði framleiðsluþáttinn séu eflaust góðar og gegnar telji hann að nauðsynlegt sé að leggja aukna áherslu á markaðs- og hagfræðirannsóknir og auk þess sé ástæða til að taka sérstaklega til skoðunar og leggja aukna áherslu á bútæknirannsóknir, ekki síst vinnu- og verktæknirannsóknir og rannsóknir á framleiðsluvörum landbúnaðarins. Þetta eru áreiðanlega orð að sönnu, miðað við þær aðstæður sem við búum við nú, og þetta sannar enn frekar en ég hef áður gert hér nauðsyn þess að taka málin í heild til endurskoðunar, að flytja áhersluna, vegna þess að það er harla óskemmtilegt að ætla sér að vera eingöngu með skömmtunarkerfi eins og kvótakerfið er eða taka af mönnum útflutningsbæturnar eins og hlýtur að gerast, þó væntanlega í áföngum því annað yrði allt of harkalegt. Menn verða sem sagt að laga sig að þeim aðstæðum sem eru ríkjandi núna.
Í þessu sambandi gerir greinarhöfundur, Guðmundur Stefánsson, líka að umtalsefni opinber framlög til landbúnaðarins. Þetta er eins og upp úr ræðu eftir krata hér á Alþingi, ekki bara á þessu ári, heldur á mörgum undanförnum árum. Hann bendir á að framlög af hálfu ríkisins virðist vera æðimikið bundin við hinar hefðbundnu búgreinar. Hann segir:
„Grænfóðurrækt hefur aukist verulega á þessum árum“ — sem eru 1976–1984 — „en nýræktir hafa dregist saman. Engu að síður voru veitt framlög að upphæð 14.3 millj. árið 1984 vegna nýræktarframkvæmda 1983. Þá voru greiddar á sama hátt 11 millj. vegna grænfóðurræktar.“
Svo segir hann:
„Þetta er gert á sama tíma og á öðrum vígstöðvum er barist þrotlausri baráttu fyrir að halda framleiðslunni í skefjum og helst draga úr henni. Þá má nefna,“ segir hann, „að 1984 voru greiddar rúmar 20 millj. vegna skurðgraftar, þar af tæpar 8 millj. vegna nýframkvæmda. Framlög til byggingar votheyshlaða voru árið 1984 4.1 millj. kr., en vegna þurrheyshlaða rétt rúmar 2.8 millj. Þetta hlutfall hefur haldist svipað mörg undanfarin ár þrátt fyrir margar yfirlýsingar um að efla þurfi votheysgerð eins og reynslan reyndar sýnir að er nauðsynlegt.“
Og greinarhöfundur heldur áfram:
„Nú er ég ekki að hafa á móti því að hið opinbera veiti fjármuni til uppbyggingar í hefðbundnum búgreinum. Það er hins vegar umhugsunarefni að á sama tíma og viðurkennt er að nýsköpunar sé þörf og að efla þurfi nýjar búgreinar, þá er, mælt á verðlagi ársins 1984, varið 76 millj. árið 1983 til stuðnings og uppbyggingar á hefðbundnum búskap í formi jarðabótaframlaga. Sama ár veitti Framleiðnisjóður 2.4 millj. til loðdýraræktar og 1.9 millj. til fiskiræktar og veiðimála. Til hefðbundinna búgreina veitti sjóðurinn 1.5 millj. og til vinnslustöðva í landbúnaði 3.6 millj.“
Og greinarhöfundur bætir við:
„Allir hljóta að sjá að hér er ærið bil milli orða og athafna. Framlög hins opinbera hafa í reynd eingöngu stutt hinn hefðbundna búskap, en nýgreinar, þar sem menn eygja vaxtarmöguleika, eru að mestu látnar afskiptalausar.“
Og hann heldur áfram:
„Það er erfitt að skilja hvers vegna reynt er að stuðla að aukinni grænfóðurræktun, hvers vegna verið er að styðja nýrækt og framleiðslu þegar allt þetta stuðlar að framleiðslu vara sem ekki er markaður fyrir og offramleiðsla á.
Það er mitt álit,“ segir hann, „og ég veit að fjölmargir eru því sammála, að allt styrkjakerfi hins opinbera þarfnist endurskoðunar. Ég held að nauðsynlegt sé að stórauka opinber framlög, a.m.k. næstu árin meðan uppbygging á sér stað, en hitt er ekki síður nauðsynlegt að þessum fjármunum sé varið í samræmi við nýja stefnu í landbúnaði, til að styrkja hana og stuðla að framgangi hennar.“
Ég tek vissulega undir það sem hér er sagt.
Í seinni grein sinni fjallar Guðmundur Stefánsson m.a. um verðlagningu og það sem nú er farið að kalla markaðsfærslu búvara. Þar bendir hann á að verðlagning búvara hafi í meginatriðum haldist óbreytt í 40 ár þótt ýmsar minni háttar breytingar hafi verið gerðar. Hann telur að þetta hafi hentað vel hér á árum fyrr en á síðari tímum hafi aðstæður breyst, einkum á þá lund að neytendur geri kröfu um aukna þjónustu, og þessi viðhorf geri það m.a. að verkum að verðlagning sexmannanefndar hefur oft verkað stíf og erfitt að laga hana að breyttum verslunarháttum. Hér kemur vissulega fram sjónarmið sem er í samræmi við þá þáltill. sem ég hér flyt og þau orð sem flutt voru henni til stuðnings.
Hann bendir líka á að því sé ekki að neita að ekkert nýtt hafi gerst í markaðsfærslu t.d. á kinda- og nautakjöti og hann bendir á að flestir séu að komast á þá skoðun að ekkert selji sig sjálft og þess vegna sé nauðsyn á hugarfarsbreytingu í markaðsmálum. Ég minnist þess, herra forseti, að hafa hér fyrr, bæði á þessu þingi og á síðustu þingum, gert sérstaklega að umræðuefni það sem ég hef kallað sölumál landbúnaðarafurða og nauðsyn þess að aðlaga þær að markaðinum. Það hefur átt við bæði innanlands og jafnframt, svo framarlega sem við erum að selja landbúnaðarafurðir til útlanda, að við gerðum það á hinum erlendu mörkuðum.
Greinarhöfundur segir síðan að hann telji að það sé nauðsynlegt að gera verðlagningu á búvörum liprari, þannig að auðveldara sé að aðlaga hana þörfum og einkennum markaðarins hverju sinni. Þetta er auðvitað hin hliðin á því máli sem fjallað er um í þeirri þáltill. sem ég mæli hér fyrir.
Í framhaldi af þessu og þeim nýju aðstæðum sem uppi eru í landbúnaðinum fjallar greinarhöfundur um lánamálin. Þá kemst hann að þeirri niðurstöðu að einmitt þar hafi líka verið fylgt rangri stefnu. Hann telur að það séu hæpin vinnubrögð hjá stofnlánadeildinni, og ég tek undir það, að neita nýbúgreinum um lán á þeim grundvelli að þær hafi ekki greitt til deildarinnar. Þetta er vissulega alveg rétt. Ef menn hafa áhuga á því að nýjungar komist á verða menn auðvitað að stuðla að því. Ekki er þess að vænta að grein sem ekki hefur verið til hafi nokkurn tíma greitt til deildarinnar.
Hann segir að það sé mikið áhyggjuefni að ekki sé meira fjármagn látið ganga í nýbúgreinar og það sé ljóst að lán til hefðbundinna búgreina séu langfyrirferðarmest og hafi haldist að raungildi nokkuð jöfn á undanförnum árum. Það liggur sem sagt í því sem hér er sagt að breyta hefði átt um stefnu. Ég er sammála að veita auknu fé í hinar nýju búgreinar og þá á kostnað hinna hefðbundnu að einhverju leyti og þá út frá þeim forsendum að það er ekki framleiðslustefna sem á að gilda lengur, heldur verður að gilda markaðsstefna í landbúnaðinum og við stjórn þeirrar greinar. Framleiðslustefnan er orðin úrelt og markaðsstefnan verður að taka við.
Í framhaldi af þessu gerir greinarhöfundur að umtalsefni þá leiðbeiningarþjónustu sem bændur njóta. Þá bendir hann á réttilega að fjöldi bænda og flestir ráðunautar hafi alist upp við og verið menntaðir við önnur skilyrði og aðrar aðstæður en nú eru. Framleiðslustefnan, þar sem meiri ræktun, stærri byggingar, meiri afurðasemi og aukin framleiðsla voru lykilorðin, hefur ráðið ríkjum á undanförnum árum. Að þessu leyti eru aðstæður að öllu leyti breyttar núna.
Hann segir: „Erlendir markaðir fyrir kjöt og mjólkurafurðir hafa brugðist.“ Það er vissulega rétt. Á það var bent af hálfu Alþfl. upp úr 1960 hver hætta væri í þessum efnum, en með þeim niðurgreiðslum sem nú eru hjá Efnahagsbandalagi Evrópu er gersamlega óhugsandi að við fáum nema lítið brot af kostnaðarverði fyrir þær landbúnaðarafurðir sem við hér framleiðum, þannig að enn frekar hafa stoðirnar kippst undan því að skynsamlegt sé að selja landbúnaðarafurðir á erlendum markaði. Þess vegna segir hann: „Vandamál bænda eru nú miklu fremur rekstrarlegs eða hagræns eðlis en tæknilegs. Þeir þurfa í síauknum mæli leiðbeiningar um búreikninga, rekstraráætlanir, fjárfestingar, greiðsluáætlanir.“ Hann leggur til, og ég tel að það sé rétt, að áhersla verði nú lögð á þessa þætti.
Hann bendir einnig á að ráðunautarnir séu ekki menntaðir í rekstrarfræðum og þess vegna þurfi sérstakt átak að því er þann þátt leiðbeiningar og ráðgjafar varði og hann gagnrýnir enn að of lítil áhersla hafi verið lögð á leiðbeiningar í nýjum búgreinum sem ætlað var að bæta upp samdrátt í hefðbundnum greinum. Komum við þá aftur að því atriði sem ég gerði að umtalsefni í umr. um aðra þáltill. sem varðaði varnir gegn fisksjúkdómum. Þar hafði ég eftir norskbúsettum fyrrverandi skólabróður mínum að Íslendingar væru göslarar og þeir mundu áreiðanlega fara með fiskiræktina í vaskinn eins og svo margt annað. Ég leyfði mér að segja að í því fælist svolítið sannleikskorn. En í þessum orðum liggur nákvæmlega það sama og við Stefán Valgeirsson gerðum að umtalsefni í þeirri umr., nefnilega að hinar nýju búgreinar, hvort heldur það er minkarækt, refarækt, laxarækt, fiskirækt, hvað eina sem það er, eru atvinnugreinar sem krefjast kunnáttu, natni og nákvæmni og til þess verða menn að læra. Þess vegna er ömurlegt til þess að hugsa að leiðbeiningastarfsemi í þessum greinum, rannsóknarstarfi, uppeldisstarfi, kennslustarfi, verklegri kennslu, skuli ekki hafa verið sinnt, enda höfum við fengið að sjá áföllin í minkaræktinni, í refaræktinni og reyndar í laxaræktinni líka.
Í lokaorðum sínum segir greinarhöfundur að hann hafi í stuttu máli rakið þá stefnubreytingu sem hafi verið að eiga sér stað og bætir svo við:
„Ég held að flestir geti verið sammála um að „kerfið“ hafi í mörgum, allt of mörgum, tilfellum ekki brugðið við sem skyldi.“
Ég leyfi mér að bæta því við að ég flokka undir kerfið Alþingi, löggjafarsamkomuna, ríkisstj., Framleiðsluráðið og sexmannanefnd.
Hann heldur áfram:
„Ég held líka að landbúnaðurinn sé enn mitt inni á breytingaskeiði og að mikilvægt sé að hann komi sem sterkastur út úr því gagnvart þjóðfélaginu í heild. Á því veltur í raun framtíð landbúnaðarins sem öflugs atvinnuvegar sem keppt getur við annað atvinnulíf um vinnuafl og veitt þeim sem við hann starfa sambærileg kjör og aðrir atvinnuvegir gera.“
Hér er einmitt komið að lykilatriðinu sem hefur legið allt of mörgum hulið allt of lengi og staðið landbúnaði fyrir þrifum.
Greinarhöfundur heldur áfram:
„Til þess að þetta geti orðið er nauðsynlegt að horfst sé mjög ákveðið í augu við þann vanda sem við er að eiga.“
Tími er nú til kominn að menn geri það, segi ég.
Menn hafa verið að tala um þetta allar götur síðan 1960 og vandinn hefur verið að magnast stig af stigi í framleiðslustjórninni, í sölumálum, í leiðbeiningarstarfseminni, í því að koma upp nýjum búgreinum. Verkin tala ekki nægilega skýru máli.
Greinarhöfundur heldur áfram:
„Það er ljóst að ekki eru við núverandi aðstæður möguleikar á að greiða öllum þeim sem hefðbundna búvöruframleiðslu stunda þau laun né veita þeim þau kjör sem viðunandi geta talist.“
Þetta er harkalegt. En sé þetta rétt, sem er ástæða til að ætla að sé, knýr það á um skjót viðbrögð til þess að þeir aðilar sem búskapinn stunda lendi ekki í algerum ógöngum.
Greinarhöfundur heldur áfram:
„Annaðhvort fækkar bændum við þessa framleiðslu verulega eða þeir fara í auknum mæli að stunda aðra atvinnu með búskapnum.“
Þegar Gylfi Þ. Gíslason eða aðrir talsmenn Alþfl. stunduðu uppsetningu af þessu tagi fengu þeir aldeilis að heyra það hér í þingsölunum. En nú sést að þeir sögðu það sem var satt og það sem var rétt og sáu örlítið fram á veginn. Sannleikurinn er stundum óþægilegur. Þetta er staðreynd þessa máls og þetta gerist nema aðrar búgreinar komi í stað þeirra sem menn hafa stundað fram að þessu.
Greinarhöfundur heldur reyndar áfram og segir: „Spurningin er bara hvort þeir eiga almennt kost á nokkurri annarri vinnu og hvort þá sé um nokkuð annað að ræða en ganga frá eignum og atvinnu og setjast að á mölinni. Ef koma á í veg fyrir þá þróun er nauðsynlegt að hefja markvissari nýsköpun atvinnutækifæra í sveitum og efla þá kosti sem vænlegir eru til vaxtar. Fjármagni þarf að beina í auknum mæli til nýrra búgreina, en gæta þess þó jafnframt að eðlileg endurnýjun geti átt sér stað í hinum hefðbundnu. Styrki og framlög sem beinlínis ganga í berhögg við tilgang framleiðslustjórnar ber að afnema og beina því fjármagni til nýsköpunar.“
Þegar við þm. Alþfl. höfum talað um þessa styrki á undanförnum árum höfum við fengið orð í eyra, en hér eru sérfræðingar landbúnaðarins að segja nákvæmlega þau orð sem við höfum verið að koma á framfæri á undanförnum árum. Ráð hefði nú verið að hlusta betur og taka upp alvarlega og málefnalega umræðu um málið þegar við höfum gert þetta að umtalsefni en að standa í fúkyrðum og skömmum og leigja jafnvel sérstaka skriffinna til þess eins og gert hefur verið af hálfu bændasamtakanna.
Greinarhöfundur heldur áfram:
„Ég tel að allt of stór hluti kerfisins“ — og ég leyfi mér að túlka það svo aftur að kerfið séu þeir aðilar sem ég taldi upp hér áðan, Alþingi, ríkisstj., Framleiðsluráð, — “hafi nýtt illa þann tíma sem hefur verið til umþóttunar og nánast hjakki í sama fari.“
Það er galli, herrar mínir og frúr. Það nánast hjakkar í sama farinu.
Greinarhöfundur heldur áfram:
„Á þessu þarf að verða breyting. Stjórnvöld verða að vera reiðubúin til að marka ákveðna stefnu í atvinnumálum og þar með talið stefnu í málefnum landbúnaðarins. Þau verða að hafa þor til að framfylgja þeirri stefnu sem mörkuð er og hinir ýmsu hlutar landbúnaðargeirans verða að haga starfsemi sinni í samræmi við þá stefnu sem ríkir á hverjum tíma og vera reiðubúnir til að takast á við sífellt ný og breytileg verkefni.
Ef það er ekki gert, þá blasir við stöðnun og stöðnun fylgir hrörnun. Það er því landbúnaðinum lífsnauðsyn að vera sífellt í sókn og hann verður að sækja þangað sem eitthvað er að sækja.“
Með þeim orðum lýkur Guðmundur Stefánsson grein sinni.
Ég verð að segja, herra forseti, að mér fannst þessi grein svo athyglisverð og bera svo af ýmsu því sem maður hefur fengið að sjá frá svokölluðum sérfræðingum í landbúnaðarmálum á undanförnum árum að fyllsta ástæða væri til að tíunda hana nokkuð greinilega. Sannleikurinn er sá, að þessi grein kemur í rauninni tíu árum of seint. Sannleikurinn er sá, að sú stefnubreyting sem hér er beðið um hefði átt að eiga sér stað fyrir langalöngu. Þá hefðum við ekki upplifað allar þær þjáningar sem menn hafa þurft að þola í þessari grein á undanförnum árum. En gert er gert. Og þó að það sé hryggilegt til þess að vita hversu mjög menn tíðka það hér á Íslandi að sofa á verðinum og horfa ekki fram á veginn, eins og þetta dæmi sannar, verðum við að taka á þeim viðfangsefnum sem við stöndum frammi fyrir á hverjum tíma, jafnvel þótt við vitum að það sé í rauninni verið að gera það allt of seint.
Herra forseti. Ég skal ekki fjölyrða meira um þessi mál á þessu stigi. En þau orð sem ég hef hér látið mér um munn fara og sú grein sem ég hef hér til vitnað hljóta að vekja menn til umhugsunar um nauðsyn skynsamlegrar umræðu um þessi mál, nauðsyn þess að uppstokkun eigi sér stað.
Nú hef ég heyrt nýverið að á vegum hæstv. landbrh. færi fram endurskoðun á lögunum um Framleiðsluráð landbúnaðarins og nýs lagafrv. væri að vænta bráðlega. Ég hef að vísu heyrt það áður. Það er ekki í fyrsta skipti sem sagt er að það frv. muni koma bráðlega. En hverjir eru það sem eiga að hafa samið það frv. til l., hlýt ég að spyrja, ef það er þá að fæðast? Eru það kerfiskarlarnir sem hafa staðið vörð um það kerfi sem hefur verið við lýði og atað alla þá óhróðri sem hafa viljað málefnalega umræðu um þau vandamál sem hér er við að stríða og hafa óttast að hér stefndi í ógöngur eða eru það nýir menn með ferskar tillögur, góðar hugmyndir? Eru fulltrúar neytenda í hópi þeirra sem standa að samningu þessa frv.? Er hér á ferðinni sú bylting sem nauðsynleg er, sú uppstokkun sem nauðsynleg er til þess að ná raunverulegum árangri og tryggja stefnumörkun?
Í upphafi máls míns gerði ég að umtalsefni ótal liði sem Framleiðsluráðið ætti að taka ákvörðun um, varðandi gjaldtöku, varðandi verðlagningu, varðandi kostnaðarþætti, varðandi sláturhús, varðandi mjólkurbú og þar fram eftir götunum. Ég tel augljóst að þetta kerfi eigi að einfalda. Ég held að jafnvel þótt frv. komi frá hæstv. landbrh. um þetta efni á næstu vikum sé engu síður ástæða til þess fyrir Alþingi að kjósa sérstaka nefnd, eins og hér er gerð ályktun um, til að skoða þessi mál sérstaklega og líta á þau. Það getur vel skeð að hér verði samþykkt á Alþingi breyting á lögum um Framleiðsluráð landbúnaðarins. Það getur vel verið að það verði skref í rétta átt. Ég held að þetta sé svo stór málaflokkur og varði Alþingi svo miklu að eðlilegt sé að Alþingi kjósi, eins og hér er gert ráð fyrir, sérstaka nefnd til að skoða það, jafnvel þótt einhver breyting yrði samþykkt á lögunum í þessu tilfelli. Hitt er svo annað mál að jafnvel þótt frumvörp séu lögð fram er ekki víst að þau verði samþykkt á þeim vikum og mánuðum sem lifa þings til vors og þá gæti verið fyllsta ástæða til þess fyrir Alþingi að hafa einmitt starfandi nefnd til að skoða þetta frv. til þess þings sem næst kemur á eftir. Þess vegna, herra forsefi, fel ég að hvað svo sem líður þeirri endurskoðun á framleiðsluráðslögunum, sem sagt hefur verið nú eins og oft áður að væri í gangi í landbrn., eigi að samþykkja þá þáltill. sem ég mæli hér fyrir og njóta góðs af þeim möguleikum, sem sú till. veitir, að Alþingi taki ákveðið frumkvæði í þessum efnum.
Herra forseti. Að lokinni umr. legg ég til að till. verði vísað til atvmn.