14.02.1985
Sameinað þing: 49. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2941 í B-deild Alþingistíðinda. (2431)

102. mál, framleiðslustjórn í landbúnaði

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að fara að halda langa ræðu um þessa till. þó að e.t.v. sé ekki vanþörf á því að ræða þessi mál. Ef hægt er að ræða þau mál þannig að reynt sé að fara ofan í saumana á þeim vandamálum sem blasa við og ef það yrði einnig til þess að við öll, hv. alþm., mundum skilja þessa hluti betur að umr. lokinni væri ekki vanþörf á slíkri umr. En ég geri ráð fyrir að undirbúningslítið sé ég ekki maður til að taka það þannig í gegn að það yrði að því gagni sem þyrfti að verða.

Í upphafi vil ég minna hv. 3. þm. Reykn. á að fyrir 1960 voru samningar um að landbúnaðurinn mætti hækka verð innanlands til að hægt væri að flytja út eitthvað af framleiðslunni og bændur fengju þannig sæmilegt heildarverð fyrir sína framleiðslu. Um það var samið og stóðu að því viðreisnarflokkarnir, Sjálfstfl. og Alþfl., á sínum tíma að taka upp það kerfi sem hefur síðan gilt í þessum málum. Ég geri ráð fyrir að hv. þm. Kjartan Jóhannsson sé ekkert að firra Alþfl. ábyrgð á þessum málum frekar en aðra, ég ætla honum það ekki, en ég vil úf af hans orðum minna á þessa staðreynd.

Það er mikill misskilningur, að mér sýnist, sem kom fram, ef ég hef skilið þm. rétt, í sambandi við vinnslustöðvarnar. Í sambandi við vinnslustöðvarnar er það þannig að þeir bændur sem framleiða t.d. mjólk á ákveðnu svæði standa að öllu leyti að vinnslu og dreifingu á mjólkinni. Þar sem ég þekki til er þetta gert upp eins og hvert annað fyrirtæki. Það er kannske hægt að deila um hvort hægt væri að reka vinnslustöðvarnar einhvern veginn öðruvísi, það er alltaf hægt að deila um alla hluti, en þetta er gert upp. Þessi mál væri hægt að endurskoða. Alþingi gæti látið endurskoða þessa reikninga til að komast að hinu sanna í þessu efni. En ég er alveg sannfærður um að í ljós kæmi að það eru allt aðrar ástæður en menn telja sem valda því að vinnslu- og dreifingarkostnaður er það hár sem raun ber vitni. Ég vil líka undirstrika að fyrir 2–3 árum, þegar þetta var kannað, var vinnslu- og dreifingarkostnaður hærri í öllum nágrannalöndunum en hér. Það ættu menn að athuga.

Það er verið að tala um að verið sé að verðjafna á milli mjólkurbúanna sérstaklega. En það eru ýmsar ástæður fyrir því. Lögum var breytt — ég man ekki hvort það var 1978 eða 1979 — þannig að það mætti einnig verðjafna fjármagnskostnaði. Það var vegna þess að sum mjólkursamlögin byggðu til að framleiða

ákveðnar vörutegundir sem var mikið dýrara að framleiða en aðrar, einmitt til þess að það væru ekki allar stöðvarnar að fjárfesta í því sama. Þegar á heildina er litið var þessi fjárfesting langtum minni með þessu móti en ef hver og ein vinnslustöð hefði farið að fjárfesta í því að geta framleitt allar þessar tegundir. Það er að mörgu að hyggja í þessu efni.

Það kom fram í umr. á Alþingi á dögunum að sláturkostnaður hefði verið áætlaður allt of lágur. Þessi kostnaður er m.a. svona mikill vegna þess að ekki hefur fundist leið til að nýta sláturhúsin nema 7–8 vikur á ári. Það er erfitt viðfangs þar eð heilbrigðisyfirvöld gera ákveðnar kröfur um byggingu þessara húsa. Það eru bundnar hendur þeirra sem með þessi mál fara og ekki á þeirra valdi hvernig bygging og rekstur fer fram í þessum húsum. Ég sé mig neyddan til að benda á þetta.

Stofnlánadeildin neitaði ekki neinum manni sem bað um lán í sambandi við loðdýrarækt á síðasta ári. Ég vil að það komi fram. Meira að segja þó að þeir hefðu ekki sótt um fyrir tilskilinn tíma fengu allir sem báðu um lán til að fara út í að byggja og setja á stofn loðdýrabú. Um hitt er ég sammála hv. 3. þm. Reykn., að tíminn frá 1959 hefur ekki verið notaður sem skyldi í þessum efnum. Ég kom fram með þá tillögu þá að breyta jarðræktarlögunum og fá þannig peninga til að breyta framleiðslunni í landbúnaði. En ekki var staðið við að láta þá fjármuni af hendi, þrátt fyrir lagafyrirmæli, fyrr en á síðasta ári. Þá var það í fyrsta sinn gert. Það var látið af hendi miðað við greiðsluna sem átti að vera á því ári en ekki þann hala sem hafði skapast.

Það var bagalegt að svo fór vegna þess að í sauðfjárrækt hefur orðið mikill samdráttur, jafnvel yfir 20% í mörgum héruðum. Þá gefur það auga leið að erfitt verður fyrir þá sem eiga við að búa, þeir halda ekki kaupi. Ef að menn eygja ekki aðra tekjumöguleika er það líklegt að æðimargir gefist upp á næstu árum. Þess vegna er nauðsyn að taka á þessum málum öðruvísi en hefur verið gert og langtum ákveðnara.

Hv. þm. talaði um að nauðsynlegt væri að nýir menn með ferskar tillögur kæmu að þessu frv. til að semja nýtt frv. miðað við þær aðstæður sem eru fyrir hendi. Það er ágætt að til séu menn með ferskar tillögur en þeir þurfa að hafa einhverja innsýn og skilja þessi mál. Þetta eru flókin og vandasöm mál og ef illa tekst til með löggjöf í þessu efni gæti það orðið alvarlegt áfall, ekki einungis fyrir landbúnaðinn heldur fyrir þessa þjóð, því að mikið kostar það okkur ef verulegir fólksflutningar yrðu t.d. til suðvesturlandsins og margar byggðir færu ef til vill í eyði, eins og horfir í þessum málum.

Hv. 1. þm. Norðurl. v. talaði um að einhver deila væri á milli stofnlánadeildar og þeirra sem eru í fiskirækt í sambandi við lán til þeirrar atvinnugreinar. Ég vil einungis minna hv. þm. á að eins og lögin eru í dag er ekki heimild fyrir því að lána öðruvísi en hver og ein framleiðslugrein greiði ákveðið gjald í stofnlánadeild. Það þarf þá að breyta lögunum. Það þýðir ekki að saka stofnlánadeildina um að hún hagi sér þannig. Stjórn stofnlánadeildar verður að fara að lögum. Gjaldið var lækkað til þessara greina fyrir um 3–4 árum (Gripið fram í.) Þannig að þeir þurftu ekki þar á eftir að borga nema helminginn á móti hinum hefðbundnu greinum. Við vissum ekki annað en að búið væri að gera samkomulag, enda fór þetta í gegnum þingið. Það hefur ekki enn a.m.k. orðið niðurstaðan að þeir borguðu sitt gjald, miðað við það samkomulag sem gert var og miðað við þau lög sem að gilda. Auðvitað verður með einhverjum ráðum að laga þessi mál. Ég vil að þetta komi fram.

Það er margt hægt að segja um horfurnar fyrir landbúnaðinn. Ég hef þá trú að ef við ekki getum rekið blómlegan landbúnað á Íslandi verði þéttbýliskjörnunum víða um land líka hætt. Ég held að við getum aldrei lifað menningarlífi í þessu landi öðruvísi en að nokkuð blómlegur landbúnaður sé rekinn hér. Ef menn hafa trú á því á annað borð ættu hv. alþm. að sameinast um að búa þannig að þessum atvinnuvegi að hann hafi svipuð kjör og aðrir. Það verður ekki gert með því að svelta stofnlánadeildina. Stofnlánadeildin getur ekki frekar en aðrir lánað, hvorki til hefðbundinna búgreina né nýrra, fjármuni sem hún ekki fær í hendur. En ég sé ekki annað en að ef þær upphæðir standast sem stofnlánadeildin á að fá verði ekki mikið gert á árinu 1985, a.m.k. ekki af nýjum framkvæmdum, því miður.

Ég hef þá trú, miðað við það sem er að gerast í kringum okkur, að það sé e.t.v. styttra í það en margir halda að við höfum möguleika á að flytja út vörur frá landbúnaðinum. Það er að grípa um sig, a.m.k. sums staðar í kringum okkur, ótti vegna þeirrar miklu mengunar sem er í þessum löndum. Það kom fram hjá Sigurði Markússyni á fundi þar sem ég hlustaði á hann ekki alls fyrir löngu að skýringin á því að við getum haldið uppi þessu háa fiskverði í Bandaríkjunum sé m.a. sú að Bandaríkjamenn vita að hér er hreint og ómengað land. Sé rétt að það sé orðið hluti af verði fiskjarins, menn vita að vatn hér og aðstæður eru slíkar, hvers vegna er þá ekki hugsanlegt að einnig sé hægt að selja landbúnaðarvörur á meira verði en hefur verið gert hingað til? Það er nú orðið þannig, m.a.s. á Norðurlöndum, að mörg fiskivötnin og margar árnar eru dauðar af mengun. Þær eru orðnar fiskilausar. Skógarnir í Evrópu, þriðjungurinn af þeim, eru að deyja. Þannig er nú ástandið. Það getur vel verið að ég reynist ekki sannspár í þessu efni, en sé hitt rétt, sem Sigurður Markússon hélt fram, að Bandaríkjamenn líti þannig á að rétt sé að gefa okkur meira fyrir fiskinn af þessum ástæðum þá gæti hitt ekkert síður staðist.