14.02.1985
Sameinað þing: 49. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2965 í B-deild Alþingistíðinda. (2441)
204. mál, geymsla kjarnorkuvopna á íslensku yfirráðasvæði
Flm. (Guðrún Helgadóttir):
Herra forseti. Það er nú svo mjög liðið á þennan fund að erfitt er að segja allt sem ástæða er til að segja eftir þær ræður sem hér hafa verið haldnar. Ég skal því reyna að stytta mál mitt mjög.
Hæstv. utanrrh. gefur mér ástæðu til þess að fá það á tilfinninguna að allar tilraunir til að ræða þessi mál hér á hinu háa Alþingi séu næsta gagnslitlar. Hér sýnast menn halda áfram að berja hausnum við steininn. Hæstv. utanrrh. var mjög hneykslaður á að ég skyldi gefa til kynna að herstöðin í Keflavík væri kjarnorkuvopnahreiður vegna þess að hér væru ekki kjarnorkuvopn. Ég hef aldrei sagt að hér væru kjarnorkuvopn og ég hef ástæðu til að trúa því að svo sé ekki. Það er bara ekki mergurinn málsins. Það er löngu sannað að hér er uppbygging í gangi og hefur verið fyrir móttöku kjarnorkuvopna ef á þyrfti að halda og enginn heilvita maður mótmælir því að Orion P-3 flugvélarnar séu til þess gerðar að bera kjarnorkuvopn. Í umræddri grein í The New York Times, sem er virt blað og ég held að full ástæða sé til að taka þó nokkurt mark á, segir svo, með leyfi forseta:
„Embættismenn óttast,“ segir blaðið, „að fleiri uppljóstranir af þessu tagi geti valdið því sem þeir kalla „ofnæmi fyrir kjarnorkuvopnum“, en merki þessa ofnæmis“ — ef við notum þeirra orðalag — „hafi komið fram á Nýja-Sjálandi og í Vestur-Evrópu nýverið. Kjarnorkuvopnin, sem yrðu flutt til landanna fjögurra, þ.e. Bermúda, Puerto Rico, Kanada, Íslands, eru kjarnorkudjúpsprengjur, svo kallaðar B-57 sprengjur. Hver þeirra hefur um 10 kíló tonn af sprengikrafti sem er samsvarandi 10 þús. tonnum af TNT og er aðeins minna en Hiroshima-sprengjan. Þessum sprengjum yrði varpað úr P-3 Orion flugvélum til þess að eyðileggja kafbáta eða hefta leið þeirra. Þessar vélar eru yfirleitt“, segir blaðið, „árið um kring staðsettar í löndunum fjórum.“
Hvers vegna skyldi nú þessi tegund flugvéla vera staðsett í löndunum fjórum? Er ekki full ástæða til að halda að það sé vegna þess að þessi leyfi, sem Bandaríkjastjórn hefur gefið án vitundar íslenskra stjórnvalda til að flytja kjarnorkusprengjur til landsins, á svokölluðum hættutímum, séu ástæðan fyrir veru þessara véla hér t.d.?
Ég nenni ekki að munnhöggvast við hæstv. utanrrh. um manninn William Arkin, ég hef engan sérstakan áhuga á honum sem persónu. Ég veit að hann er ekki í Alþb., hann hefur aldrei farið með mér í Keflavíkurgöngu, hann er ekki einn af félögum mínum. William Arkin er vísindamaður, sem vinnur við vísindastofnun og það er eðli vísindalegra rannsókna að reyna að hafa það sem réttara reynist. Þess vegna er fullkomlega fáránlegt að vera alltaf að tala um það að maðurinn skuli hafa viðurkennt að hann hefði rangt fyrir sér. Það væri slæmur vísindamaður sem ekki gengist við því að ákveðinn grunur, sem hann hefði haft, hefði ekki verið á rökum reistur.
William Arkin er Bandaríkjamaður, hann er ekki andstæðingur Bandaríkjastjórnar, hann er sérfræðingur í vígbúnaði, hann er sérfræðingur í kjarnorkuvopnum og hann er að rannsaka ástand þeirra mála en ekki að stunda ólitískan áróður. Þetta er ákaflega mikilvægt atriði. Ég held að það sé hárrétt sem hv. þm. Haraldur Ólafsson sagði hér áðan, að okkur beri að þakka komu hans hingað vegna þess að vissulega hefur sú umr., sem varð hér á hinu háa Alþingi, valdið því að Bandaríkjastjórn verður eflaust að endurskoða afstöðu sína til þess hvað hún telur sig geta gert með hliðsjón af varnarsáttmálanum.
Menn hengja sig endalaust í það að það sé gagnslaust að lýsa ákveðin lönd og svæði kjarnorkuvopnalaus, það verði að fara fram tvíhliða samningur jafnframt. Auðvitað þurfa stórveldin að semja, um það verður ekki deild. En ég get ekki skilið hvernig það getur verið til skaða að einstök ríki taki af allan vafa um að þau vilji ekki leyfa kjarnorkuvopn í ríkjum sínum og á löndum sínum, hvorki í friði né ófriði. Ég tel því að það sé fjarstæða, sem hv. þm. Kjartan Jóhannsson 3. þm. Reykn. sagði áðan, að till. sú, sem hér hefði verið mælt fyrir, sé verri en ekki.
Hér var minnst á Olof Palme. Olof Palme hefur gefið út sem sína skoðun í norrænum dagblöðum núna allra síðustu daga eftir fundinn í Osló hjá SAMAK að hann telji að nú verði norrænar ríkisstjórnir að vinna að drögum að samþykkt um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd. Palme hefur sagt það afdráttarlaust. Sama hefur Anker Jörgensen sagt. Báðir hafa þeir sagt að í kjölfar þess verði að sjálfsögðu að fara fram umr. milli stórveldanna en einhvers staðar verður að byrja á að stöðva þá skelfingu sem vígbúnaðarkapphlaupið er.
Það er engin tilviljun hvaða lönd hafa verið hér til umr. sem hugsanlegar kjarnorkubirgðastöðvar Bandaríkjamanna. Ef við hefðum hér kort af heiminum væri auðvelt að sjá hvers vegna þessi lönd hafa verið valin. Utanrrh. hæstv. talar eins og hann geri sér ekki ljóst hvers vegna Ísland er svo áhugavert í augum Bandaríkjamanna og eflaust Sovétmanna líka. Ástæðan fyrir því að mér verður tíðræddara um vígbúnaðarkapphlaup Bandaríkjamanna er einfaldlega sú að við erum hér með bandaríska herstöð. Ég býst við að ég mundi tala í nákvæmlega sömu veru og verða tíðræddara um Sovétríkin ef Sovétríkin hefðu hér herstöð. Um þessi mál er ekki lengur hægt að ræða á svo móðursýkislegan hátt sem hér var gert á árum áður. Sú fræðsla, þær upplýsingar sem borist hafa frá ýmsum aðilum á síðustu árum hafa sem betur fer breytt þessari umr. Menn vita meira um hvað verið er að gera í vígbúnaðaruppbyggingunni í heiminum. Mér er það lítið áhugamál að pexa hér um hvort kjarnorkusprengjur Sovétmanna séu æskilegri en Bandaríkjamanna, ég held að þar sé enginn munur á.
Í skandínavískum blöðum las ég í dag að friðarsamtök, sem heita Traktat nå í Noregi, hafi nýlega ákveðið að fulltrúar þeirra heimsæktu til skiptis nokkrum sinnum nú á þessu ári leiðtoga Sovétríkjanna og forseta Bandaríkjanna. Fyrsta heimsókn er nú afstaðin til Moskvu. Þar fengust þær yfirlýsingar frá sovéskum stjórnvöldum að Chernenko teldi að það ætti að stöðva vígbúnað úti í geimnum. Þessu ber auðvitað að fagna. Við skulum vona að honum sé alvara um það. En það er ákaflega erfitt að trúa á friðarvilja stórveldanna þegar svo er komið að jörðin nægir ekki fyrir kjarnorkuvopn þeirra heldur verður að taka geiminn líka.
Ég held að það sé alveg nauðsynlegt að Alþingi Íslendinga lýsi því yfir að það sé vilji þess að Ísland verði um aldur og ævi kjarnorkuvopnalaust svæði. Alþingi Íslendinga hefur aldrei ályktað um það. Vissulega hafa utanrrh. þjóðarinnar sagt það hver á fætur öðrum, en hið háa Alþingi hefur aldrei ályktað um það. Mér er fyrirmunað að skilja hvernig sú ályktun sem slík gæti hugsanlega verið til skaða.
Herra forseti. Hér er orðið æðifátt í salnum og næsta þýðingarlítið að endurtaka enn einu sinni það sem oft hefur verið sagt um þessi mál. Ég mun því láta þetta nægja að sinni. En ég trúi því og treysti að hv. utanrmn. taki nú á þessum málum af myndarskap. Því verður ekki á móti mæli — og það er ekki sagt hæstv. núv. utanrrh. né forverum hans til lasts — að við höfum ástæðu til að vantreysta stórveldunum í þessum viðskiptum. Í tíu ár hefur legið fyrir leyfi Bandaríkjastjórnar til að flytja kjarnorkuvopn til Íslands á hættutímum án þess að íslensk stjórnvöld hafi haft hugmynd um. Af þessu hljótum við að verða að læra. Við verðum að gera kröfu um að engin slík leyfi verði veitt, það sé lýðum ljóst að Alþingi Íslendinga hafnar slíku og mótmælir slíku og með samþykkt þessarar till., sem hér hefur verið mælt fyrir í kvöld, eru a.m.k. tekin af öll tvímæli um vilja Alþingis, vilji þjóðarinnar liggur fyrir.