18.02.1985
Efri deild: 44. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 2979 í B-deild Alþingistíðinda. (2455)

309. mál, atvinnuleysistryggingar

Helgi Seljan:

Virðulegi forseti. Ekki þarf að hafa mörg orð um þetta frv. út af fyrir sig. Það er til bóta í öllum greinum, enda kannske einn örfárra sjáanlegra ávinninga kjarasamninga þeirra sem gerðir voru í haust. Hinir hafa flestir verið fjarlægðir snyrtilega og rækilega. Hitt er annað mál að þrátt fyrir miklar leiðréttingar á undanförnum árum, allt frá því að þessi lög tóku gildi í kjölfar kjarasamninganna 1955, vita allir að þær bætur, sem hér eru greiddar, eru víðs fjarri lifibrauði. Þær eru enn fjær skuldbindingum fólks gagnvart húsnæði sínu og ýmsu öðru og ég tala nú ekki um þar sem ein fyrirvinna er fyrir fjölskyldu.

Ég ætla ekki að fara út í þetta efnislega, vegna þess að frv. tel ég til bóta. Það er aðeins rétt að minna á það í sambandi við þetta að atvinnuleysisbæturnar í þessu landi snerta fyrst og fremst einn hóp manna framar öðrum. Það eru að vísu til fámennir hópar, sem þetta snertir einnig, en fyrst og síðast snertir þetta fiskverkunarfólkið hér á landi og þá konur kannske öðrum fremur. Allt of víða brennur þetta nú á í dag. Ég hafði eitt dæmi um þetta fyrir augunum í mínu kjördæmi í sumar á Seyðisfirði. Þetta vandamál varðandi atvinnuleysið í frystihúsunum og hina smánarlega stuttu kauptryggingu sem fólk er með leiðir hugann að þeirri þróun sem hefur orðið í siglingum skipanna þó ég sé ekki að mótmæla þeim eða andmæla þeim, en kannske enn þá frekar þróuninni í gámamálunum sem hefur verið til umr. hér nýlega einnig. Þannig mætti lengi telja.

Ég ætla ekki að fara út í það hversu nátengt þetta mál, þ.e. atvinnuleysistryggingarnar í heild, eru því máli sem núna er til meðferðar í þinginu varðandi kauptrygginguna. Það getur hv. 6. landsk. þm. gert miklu betur en ég. Það eru órofa tengsl á milli þess réttindamáls sem þar er verið að flytja og svo aftur bóta þeirra sem hér er verið að lagfæra að nokkru.

Ég vil aðeins í þessu sambandi leggja áherslu á þetta og minna sjálf okkur á það enn og aftur hvaða fólk það er sem býr við mest óöryggi í þessum efnum, hvaða fólk það er sem þarf á þessum atvinnuleysisbótum að halda og verður oft að láta sér þær nægja tímunum saman. Ég minni á að jafn nauðsynlegt og það er að eiga góða löggjöf um þetta, sem tryggi lágmark, tryggi reyndar enn betri og öruggari greiðslur en nú eru, þá er vitanlega nauðsynlegra að tryggja atvinnuna og gera hana örugga, ekki síst hjá því fólki sem ég ræddi um áðan, fiskverkunarfólkinu. Það á að vera höfuðmarkmið hverra stjórnvalda umfram allt annað, meira að segja umfram verðbólguvandann, að afvinnuleysisbætur séu óþarfar með öllu.

Ég nefndi dæmi frá Seyðisfirði í sumar. Það var ömurlegt dæmi. Það var ömurlegt að koma í það pláss þá þar sem allt byggðist á fiski og verða var við vonleysið og vantrúna á það að nokkurn tíma yrði risið upp úr öskustónni aftur, finna að það hvíldi í raun og veru eins og mara yfir byggðarlaginu öllu. En fyrst og síðast kom þetta við afkomuna á heimilunum og ekki síst þar sem fyrirvinnan var ein og átti allt sitt undir vinnunni í frystihúsinu.

Þetta vildi ég segja og um leið ítreka að mér var kunnugt um það að stjórnvöld brugðust allvel við þessum vanda, m.a. ráðh. Austfirðinga og aðrir, svo ég gefi þeim nú „kompliment“ enda ekki svo oft sem maður hefur efni á því, unnu að því allvel að leysa úr þessu máli á Seyðisfirði. En það voru bara önnur yfirvöld sem réðu. Þau yfirvöld hétu bankayfirvöld. Þau réðu og töfðu lausnina von úr viti. Það er dapurlegt dæmi um vald á vitlausum stað.