18.02.1985
Neðri deild: 42. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3006 í B-deild Alþingistíðinda. (2473)
Umræður utan dagskrár
Forseti (Ingvar Gíslason):
Forseti vill, áður en hann gefur næsta manni á mælendaskrá orðið, minna á að við höfum rætt þetta mál nú í fullan klukkutíma og það lifa ekki nema um það bil 50–52 mínútur af þessum fundi og enn eru þrír á mælendaskrá. Það eru því vinsamleg tilmæli forseta að menn stytti svo mál sitt að við getum lokið þessari umr. áður en fundartíma lýkur.