18.02.1985
Neðri deild: 42. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3006 í B-deild Alþingistíðinda. (2474)
Umræður utan dagskrár
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég skal að sjálfsögðu reyna að virða kurteisleg tilmæli virðulegs forseta um að lengja ekki meira þessa umr. en ég tel óhjákvæmilegt.
Þeir hafa nú báðir talað hér um stund, hæstv. félmrh. og hv. þrautavarahúsnæðismálaráðherra ríkisstj., hv. þm. Halldór Blöndal. Það er nefnilega svo, að þegar mikið liggur við í húsnæðismálunum kemur þessi aðstoðarhúsnæðismálaráðherra ríkisstj. hér á þingi í ræðustól á hæla hæstv. félmrh. og bætir um betur eins og hann gerði núna. Maður hafði það á tilfinningunni að hann væri ekkert allt of ánægður með frammistöðu hæstv. félmrh. Það var ýmislegt sem hann þurfti að hnykkja á og hann kom því að í framhjáhlaupi að það væri erfitt fyrir þá sjálfstæðismenn og hæstv. fjmrh. að ráða fram úr þessum málum og gjarnan mætti hæstv. félmrh. hjálpa til. Það væri ekki verra þó hann aðstoðaði fjmrh. við lausn þessara flóknu og þungu vandamála.
Reyndar mátti skilja á hv. þm. Halldóri Blöndal að það væri ekkert að í þessum efnum. Það var nú öðru nær. Hann var reyndar sannfærður um, og lauk þannig hjartnæmum kafla sínum um manngæsku þessarar ríkisstj., að fátt mundi afla henni meira fylgis en einmitt þetta myndarlega átak í húsnæðismálunum — eða ég skildi a.m.k. orð hans þannig. Það er ágætt að hv. þm. beri sig vel og sé kokhraustur og gaman að heyra einhvern koma hingað upp og verja þessa ríkisstj., það gerist ekki allt of oft nú orðið, en ég verð þó að segja það, herra forseti, að ég kann betur við að menn komi í þennan ræðustól og séu hreinskilnir og viðurkenni málin eins og þau liggja fyrir. Það vil ég taka fram að hæstv. félmrh. gerði það að nokkru leyti í sinni ræðu. Hann viðurkenndi hreinskilnislega að við erfið vandamál væri að glíma, að staða byggingarsjóðanna væri mjög erfið og reyndar ört versnandi og þar biðu óleyst vandamál. Það finnst mér sýnu heiðarlegri og hreinskilnari málflutningur en hv. þm. Halldór Blöndal reyndi að halda uppi fyrir húsnæðismálastefnu þessarar ríkisstj.
Það er óhjákvæmilegt, herra forseti, að fara aðeins yfir kosningaloforð stjórnarflokkanna í húsnæðismálum vegna þess að menn fjargviðrast hér yfir því að ákveðnum þm. finnist efndirnar hafa verið nokkuð í skötulíki. Því ætla ég, með leyfi forseta virðulegs, að vitna í kosningastefnuskrá Sjálfstfl. frá 1983. Ekki man ég nú hvort það hét „leiftursókn“ eða „einn flokkur til ábyrgðar“, en eitthvað svoleiðis gæti hafa staðið á forsíðunni. En kaflinn um húsnæðismálin hét „Einn fyrir alla — átak í húsnæðismálum“. Þar stendur m.a. að þeir sem eru að eignast sína fyrstu íbúð fái 80% lán með betri kjörum en aðrir. Framsóknarmenn voru nú ekki að hafa fyrir því að binda þetta við þá sem væru að eignast, byggja eða kaupa í fyrsta sinn. Þeir sögðu ósköp einfaldlega: Húsnæðislán nemi 80% af byggingarkostnaði og verði til 42 ára. (Gripið fram í: Og skuldbreytingu á afganginum.) Þetta var í plaggi þeirra framsóknarmanna sem mun hafa heitið „Festa, sókn, framtíð“ og í grænum lit. — Svo maður sleppi þessu plaggi ekki alveg svona billega, þá stóð t.d. í annarri línu fyrir ofan línuna um húsnæðismálin að flokkurinn héti því að tryggja fullt jafnrétti kynja til starfa, launa og lífshamingju — og geri aðrir betur! Sennilega er þetta merka framlag þeirra og átak í húsnæðismálum liður í því að tryggja jafnrétti allrar þjóðarinnar til lífshamingju og skoðanakönnun Jóhannesar Nordal liður í upplýsingasöfnun í því efni.
Ég vil spyrja hæstv. félmrh., ef hann er áfram í því skapi að gefa hreinskilin og góð svör og viðurkenna þann vanda sem við er að glíma, hvernig útkoma byggingarsjóðanna er ef hann tekur þær 185 millj., sem eru sá vandi sem velt var milli ára og þýða aukin útgjöld á árinu 1985 fyrir sjóðina vegna lána sem hefðu ella átt að borgast á síðasta ári, og bætir við hann sjóðsstöðu, þ.e. hallanum á sjóðunum, eins og hann var gerður upp í árslok. Ég hef grun um að sá halli hafi verið allnokkur og þætti fróðlegt ef hæstv. félmrh. vildi sundurliða fyrir okkur hver hann var um áramót og hversu miklum yfirdrætti hjá Seðlabanka var þegar búið að breyta í löng lán á árinu 1984.
Það er annað, herra forseti, sem er kannske ekki minna atriði og hvílir ekki léttar á herðum þeirra sem ráðist hafa í húsbyggingar eða kaup á íbúðum á síðustu árum. Það er sú ránskjaravísitala sem notuð er til að framreikna þessi lán og framreikna vexti og verðbætur og afborganir af verðtryggðum lánum hjá Húsnæðisstofnun. Það hefur verið upplýst í merku blaði hér í höfuðborginni, sem heitir Þjóðviljinn, að undanförnu hvernig þessi ránskjaravísitala, sem ég nefni svo, hefur leikið húsbyggjendur á undanförnum mánuðum og hvernig t.a.m. hækkanir á áfengi og tóbaki — og svo sjálfsagt á bjór ef hann verður leyfður — hækka skuldir húsbyggjenda. Þannig hafa hækkanir á þessum vörum einum, þ.e. áfengi og tóbaki um rúm 50% á síðustu ellefu mánuðum hækkað lánskjaravísitölu um 1.2% sem getur þýtt skuldaaukningu hjá viðskiptamönnum Húsnæðisstofnunar, sem hafa fengið lán t.a.m. í Byggingarsjóði ríkisins, fullt lán, þeirra sem byggja í fyrsta sinn, um einar 7000–8000 kr. Skuld vegna íbúðar í Byggingarsjóði verkamanna getur af þessum sökum hækkað um allt að 15 000 kr. vegna hækkana á áfengi og tóbaki einu saman á síðustu ellefu mánuðum. Þetta eru fróðlegar tölur og ég held að hv. þm. og varahúsnæðismálaráðherra, Halldór Blöndal, ætti að punkta það hjá sér. (HBl: Hvernig var þetta meðan Svavar var húsnæðisráðherra? Hvernig var það þá?) Svavar Gestsson er á mælendaskrá og mun að sjálfsögðu svara fyrir sig eins og hans er von og vísa. Og þá getur hv. þm. Halldór Blöndal einnig skráð sig á mælendaskrá og reynt að taka þátt í umræðum samkvæmt fundarsköpum hér í hv. Nd.
Ég beini því til hæstv. félmrh. að það er gott og blessað að lengja aðeins í snörunni hjá þeim sem eru að hengjast, eins og hann er að gera með ráðstöfunum sínum þessa dagana, og ekki mæli ég því í móti að mönnum sé veitt ráðgjöf um það hvernig andlátið beri að, en ég held að hitt væri sýnu nær að gera þær ráðstafanir sem í senn tryggðu að greiðslubyrði lánanna héldist í hlutfalli við kaup á hverjum tíma og gerðu fólki kleift að koma yfir sig húsnæði með skikkanlegu móti. Þetta tvennt verður að fylgjast að því annars verða þessar ráðstafanir allar saman hjóm eitt.
Ég er þeirrar skoðunar, og um það hef ég reyndar ásamt fleiri þm. Alþb. flutt frv. hér á Alþingi, að lánskjaravísitalan sé ónothæf við þær aðstæður sem nú eru í íslensku þjóðfélagi. Það er siðleysi af verstu tegund að afnema verðtryggingu á laun, en halda fullri verðtryggingu skv. ránskjaravísitölu á skuldbindingum þeirra sömu manna sem ríkisstj. hefur þannig skammtað skít úr hnefa. Lágmarkskrafa í þessu tilefni væri að tryggja að greiðslubyrðin og framreikningur þessara lána væri þá frekar miðaður við byggingarkostnað og mældur skv. byggingarvísitölu einni, þannig að jafnhjákátlegir hlutir eins og ég rakti hér áðan og mælast í framfærsluvísitölu, sem síðan hefur áhrif á lánskjaravísitölu, kæmu ekki til með að íþyngja húsbyggjendum.
Ég get tekið annað dæmi. T.d. mundu lækkaðar niðurgreiðslur á matvörum, á landbúnaðarafurðum, sem væntanlega þýðir að þessar vörur verða dýrari í innkaupi, þýða á sama tíma — það bjargræði aukningu á skuldum húsbyggjenda. Ríkisstj. hefur einmitt stundað það að lækka niðurgreiðslur. Þannig hefur hún í senn gert matvælin dýrari í innkaupi og skuldir húsbyggjendanna meiri, og segir þetta nú ýmislegt um manngæsku stjórnarinnar sem hér hefur þegar verið til umræðu í þessu efni.
Hæstv. félmrh. viðurkenndi hér, þannig að það þarf út af fyrir sig ekki að fara fleiri orðum um það, hvað orðið hefur um efndirnar á öllum loforðum og samþykktum ríkisstj., t.a.m. samþykktinni góðu frá 26. sept. 1983. Ég get vitnað um það af minni persónulegu reynslu að til mín hafa leitað viðskiptavinir Byggingarsjóðs ríkisins sem gerðu fokhelt á tímabilinu októberdesember 1983 og bíða enn þá eftir síðasta hluta af sínu nýbyggingarláni. Þannig snúa nú efndirnar að mönnum sem þó gerðu ekki fokhelt fyrr en mánuðum eftir að samþykktin margnefnda frá því í sept. 1983 var undirrituð af hæstv. félmrh. Alexander Stefánssyni.
Einnig væri það fróðlegt fyrir hæstv. þrautavarahúsnæðismálaráðherra, ef hann væri hér í salnum, að vita að lánsupphæðir þeirra sem eru að kaupa notaðar íbúðir hafa staðið í stað í talsvert á annað ár og hafa ekki hreyfst. Það er mjög athyglisvert að þegar talsmenn ríkisstj. ræða efndir sínar í húsnæðismálum kjósa þeir yfirleitt að fjalla eingöngu um lán til þeirra sem eru að byggja sína fyrstu íbúð og fá lán hjá Byggingarsjóði ríkisins. Það er sem minnst rætt um hina sem standa í því að kaupa íbúð í fyrsta sinn eða að skipta á húsnæði. Þar eru mjög fróðlegar tölur. T.d. fær tveggja til fjögurra manna fjölskylda, sem er að skipta um íbúð, 115 þús. kr. í lán. Það er nú ekkert annað. Hún hefur að vísu átt íbúð fyrir, en það getur verið tveggja herbergja kompa. Það skiptir ekki máli hversu breitt bilið er á milli þeirrar fasteignar sem seld er og hinnar sem er keypt. Það geta verið 2 millj. þess vegna. Þessi fjölskylda fær 115 þús. kr. mest í lán frá Byggingarsjóði ríkisins. Þessi upphæð hefur staðið óbreytt frá því í okt. 1983. Sé um fyrstu kaup að ræða eru þetta að vísu hellar 290 þús. kr. En hvað halda menn að það sé hátt hlutfall af staðalíbúð sem hér hefur verið nefnd? Það eru 11.5% af staðalíbúð. Málið er því ekki bara afgreitt með því að vitna til þess að núna fáist lánuð 29.1% ef um er að ræða byggingu í fyrsta sinn. Það eru fleiri viðskiptavinir stofnunarinnar en þeir einir. Ég held að hæstv. félmrh. og hv. þm. Halldór Blöndal ættu að athuga einnig hvernig þeir koma út úr þessu dæmi.
Hæstv. félmrh. viðurkenndi það, og það fannst mér ágætt og gott hjá honum, að sú áætlun um fjármögnun frá lífeyrissjóðunum, sem þeim yrði ætlað skv. lánsfjáráætlun að standa við, væri hæpin og það væru allar líkur á því að þar vantaði jafnvel 175 millj. kr. upp á. Raunhæft væri það. Þar er ég honum alveg sammála. Ég er reyndar, því miður, ekki viss um að þeim 700 millj., sem hann ætlar lífeyrissjóðunum að inna af hendi, geti þeir skilað vegna annarra skuldbindinga sinna í þjóðfélaginu. Og ég skil vel starfsmenn Húsnæðisstofnunar sem hreinlega neita að reyna að setja upp framkvæmdaáætlun og greiðsluáætlun fyrir þjóðina eins og óvissan er í þessum efnum. Það er því auðvitað okkar verk, sem sitjum á löggjafarsamkundunni og förum með fjárveitingavaldið, að reyna að tryggja þannig fjárhag byggingarsjóðanna að starfsfólki stofnunarinnar, sem vill leggja sig allt fram, sé gert kleift að gera réttar áætlanir. Það hefur ekki verið hægt og ég held að sökinni verði ekki með nokkrum rétti skellt á það ágæta fólk. Hún liggur hjá þeim sem ákváðu og ákveða fjárveitingar til byggingarsjóðanna.
Ég held að í slíkt óefni stefni með fjárhag Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna að hvort sem við ræðum það mál lengur eða skemur í dag muni á næstu mánuðum og næstu árum einmitt þetta atriði, þ.e. ört versnandi eiginfjárstaða byggingarsjóðanna, koma aftur og aftur til umræðu hér þangað til ráðin verður þar einhver varanleg bót á. Sá háttur, sem viðgengist hefur undanfarin misserin, að vísa þessum sjóðum í sífellt vaxandi mæli á óhagkvæman lánamarkað, þar sem þeir taka í stórum stíl lán á mun verri kjörum en þeir síðan endurlána til sinna viðskiptamanna, getur auðvitað ekki endað nema á einn veg. Það sjá allir hugsandi menn og hæstv. húsnæðismálaráðherrar einnig. Ég held að lausn vandans felist í því að sjóðunum verði með tekjuöflun að auðnast á næstu árum að mynda eigið fé og byggja upp fjárhag sinn þannig að þeir verði í framtíðinni í stakk búnir til að sinna sínu hlutverki. Það er stefna okkar þm. Alþb., sem flutt höfum um það frv. hér á hv. Alþingi, að einmitt þetta verði gert, að tekna verði aflað með skattlagningu á þeim aðilum sem hafa fé handa á milli og hafa makað krókinn í tíð þessarar ríkisstj. og þeir látnir borga inn í húsnæðiskerfið þannig að það verði gert fjárhagslega sjálfstætt á ákveðnu tímabili og þannig gert kleift að uppfylla skyldur sínar við húsbyggjendur.