18.02.1985
Neðri deild: 42. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3013 í B-deild Alþingistíðinda. (2476)

Umræður utan dagskrár

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Ég þakka hv. 5. þm. Reykv. fyrir að hefja þessa umr. sem hefur nú reyndar teygst dálítið út um víðan völl eins og venjulega með utandagskrárumr. Umr. um vanda húsnæðiskaupenda eru háværar þessa dagana. Sá vandi er margþættur, en hæst ber óbærilega greiðslubyrði lántakenda sem vaxið hefur langt umfram greiðslugetu vegna misgengis í þróun kauptaxta og lánskjara. Ég vil ekki eyða tímanum núna í að ræða þann vanda frekar, til þess ætti að gefast tækifæri síðar í umr. um þáltill. Kvennalistans um það að miða verðtryggingu húsnæðislána við vísitölu kauptaxta en ekki lánskjaravísitölu eins og raunar þegar hefur verið ögn minnst á hér fyrr í dag.

Því miður virðast stjórnvöld ekki hafa getað sameinast um aðra leið til lausnar þeim vanda en að bjóða lán á lán ofan. Það stangast hins vegar illilega á við þá staðreynd sem verið er að ræða hér í dag, þ.e. fjárvöntun byggingarsjóðanna og óhæfilegan drátt á greiðslu lána úr þeim skv. reglugerðum. Beint framlag ríkisins hefur aldrei vaxið jafnmikið og nú í ár, sagði hv. 2. þm. Norðurl. e. og vissulega er töluvert til í því, að vísu aðeins á pappírnum enn þá. Það er auðvitað ekki nóg að setja háar tölur í fjárlögin ef ekki fæst fé til að standa við slík fyrirheit.

Upplýst hefur verið að húsnæðismálastjórn standi nú í viðræðum við Seðlabanka og verður nú ekki bara vonað heldur hreinlega ætlast til þess að þær viðræður beri árangur og nauðsynlegt fjármagn fáist til lausnar þessum vanda. Það olli nokkrum vonbrigðum að svör hæstv. félmrh. voru ekki mjög skýr um þetta.

En það var annað sem ég vildi aðeins víkja að. Fáum dettur í hug að leggja niður skyldusparnað, sagði hæstv. félmrh. hér áðan. Það dettur nú reyndar ýmsum í hug. Okkur Kvennalistakonum dettur það sannarlega í hug, þ.e. við viljum leggja skyldusparnað niður í núverandi mynd og kemur vel til greina að taka upp svokallaðan hvetjandi sparnað í staðinn, sem t.d. væri í þá veru að þeir, sem leggja fyrir fé til húsnæðiskaupa, sitji fyrir um lán frá byggingarsjóðunum eða fái fyrirgreiðslu í samræmi við sparnað. Þetta er nú á frumstigi enn þá, en við höfum töluvert velt þessu fyrir okkur.

Við teljum ekki rétt að neyða ungt fólk til sparnaðar á þann hátt sem verið hefur, enda hefur reyndin orðið sú að skyldusparnaður er í mínus eins og kom fram hjá hæstv. félmrh. áðan.

Ég skal nú ekki, herra forseti, lengja þessar umr. frekar en tek undir gagnrýni og fsp. hv. 5. þm. Reykv. Það virðist augljóst að húsnæðismálakerfið stendur á býsna völtum fótum og er brýnt að styrkja það frekar. Meðan slík vandamál koma upp, eins og þau sem urðu tilefni þessarar umr., er undarlegt að heyra slíka sjálfhælni héðan úr ræðustólnum sem hv. 2. þm. Norðurl. e. viðhafði hér áðan, en a.m.k. flokkur hans vill ekki sækja neitt fé til þessara mála og allar tillögur stjórnarandstöðunnar fara ákaflega fyrir brjóstið á þeim, hvort sem nefndur er skyldusparnaður á hátekjumenn, stighækkandi eignarskattur, Seðlabankahagnaðurinn eða eitthvað annað. En einhvers staðar verðum við að fá fé.