19.02.1985
Sameinað þing: 50. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3020 í B-deild Alþingistíðinda. (2486)

286. mál, kjör og starfsaðstaða framhaldskólakennara

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Það er augljóst að í allri sinni málefnafátækt ætlar stjórnarandstaðan að reyna að kynda enn betur undir þeim eldi sem þegar hefur verið kveiktur í sambandi við launamál kennara. (HG: Sem ríkisstj. hefur kynt.) Ja, þessi ríkisstj. bjó ekki til þann launaskala kennara sem þeir vinna við. Það var önnur ríkisstj. á milli sem gerði ekki neitt í því að leiðrétta launamál kennara. Við skulum átta okkur á því að það er sótt að ríkisstj. núna til að leiðrétta þann launamun sem orðinn var löngu áður en hún tók við. En við skulum ekki þræta um það. Þessi deila er í gangi. En allar deilur eiga sér einhverja lausn. Lausn finnst alltaf. Það er tímaspursmál hvenær sættir komast á. Ég veit að það augnablik er fyrirkvíðanlegt fyrir aumingja vesalings Alþb.-mennina sem hafa þá engan eld að kynda á þeim vígstöðvum lengur.

Ég kom upp til að svara hv. 11. þm. Reykv. sem beindi til mín spurningu. Ég er með hana á blaði skrifaða af hv. þm., en fyrri liður hennar hljóðar svo:

„Tekur ráðh. undir þau rök Indriða H. Þorlákssonar að meðallaun háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna eigi að vera allt að 6% lægri en meðallaun háskólamenntaðra manna á hinum almenna vinnumarkaði vegna þess að konur eru fjölmennari meðal háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna en annars staðar?“ — Ég vona að ég hafi lesið þetta rétt.

Nú vil ég taka það fyrst fram að ég hef rætt við formann launamálanefndar ríkisins, Indriða H. Þorláksson, sem hér er vitnað til, og hann segir mér, og ég trúi honum vel, það er trúverðugur starfsmaður, að þessi ummæli, sem eftir honum eru höfð, séu rangtúlkuð. Þau eru rangtúlkuð og slitin úr sambandi. En ef þau væru rétt, eins og gert er ráð fyrir hér í fsp., er mitt svar nei.

Spurning númer tvö:

„Er það stefna stjórnvalda að viðhalda kynbundnu launamisrétti með þessum hætti og nota misréttið sjálft sem rök til að viðhalda því?“ — Ég vona að ég fari rétt með þetta.

Svar mitt er að sjálfsögðu nei og hefði líklega verið það sama frá öllum ríkisstjórnum. Ég vona að ég hafi þá svarað þeirri spurningu líka.

Hitt er svo annað mál að hv. 2. þm. Austurl. — held ég ég fari rétt með — spurði á hvern hátt yrði staðið að lausn á sérkjarasamningum við kennara. Ég get ekki svarað því öðruvísi en að staðið verður að þeim á hefðbundinn hátt, á sama hátt og vant er. — Svo er verið að leggja fyrir mig spurningu hér nú um hvernig útkoman verður úr slíkum samningaumleitunum. Mér er ekki nokkur leið að svara því. Ég get alveg eins snúið spurningunni við: Hvernig halda þm. að niðurstaðan verði af næstu viðræðum milli kennara og launamálanefndar ríkisins?