19.02.1985
Sameinað þing: 50. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3035 í B-deild Alþingistíðinda. (2509)
276. mál, veiði á smokkfiski
Fyrirspyrjandi (Skúli Alexandersson):
Herra forseti. Á þskj. 454 hef ég leyft mér að leggja fram eftirfarandi fsp. til hæstv. sjútvrh. um veiði, nýtingu og kaup á smokkfiski:
„1. a. Hvaða ráðstafanir voru gerðar á vegum sjútvrn. til að auðvelda og tryggja að aflað yrði smokkfisks til beitufrystingar úr þeirri smokkfiskgöngu sem var við Vestfirði og Vesturland í haust?
b. Hve mikið var fryst til beitu?
c. Voru gerðar tilraunir til að vinna smokkfiskinn til manneldis?
Eru markaðir fyrir slíka vöru?
2. a. Hve mikið var flutt inn af beitusmokki 1983?
b. Hve mikið er áætlað að flytja inn nú til notkunar á yfirstandandi vertíð og hvert er áætlað söluverð þeirrar beitu?“
Á síðastliðnu hausti var mikil smokkfiskgengd í fjörðum og flóum frá Snæfellsnesi vestur og norður á Húnaflóa. Smokkfiskur er talinn mjög góður til beitu en þó sérstaklega talinn tálbeita á haustmánuðum og fyrri hluta vertíðar. Nú á tímum fiskveiðistjórnunar, sem m.a. er að sögn til þess að skipuleggja rétta nýtingu fiskistofna, láta ekki sækja um of í nytjastofna og ekki heldur vannýta þá stofna sem óhætt er að veiða úr, hlýtur að vera spurt um það hvað gert hafi verið af stjórnunarvaldinu til að auðvelda og tryggja það að aflað yrði smokkfisks til beitu. Mín spurning kemur því í beinu framhaldi: Hvað rn. hafi komið til leiðar mikilli beitufrystingu af smokkfiski? Það er nú svo að þessi fiskur geymist mjög vel frosinn. Það hefði því ekki verið neitt hættulegt að frysta af smokkinum til áætlaðrar notkunar tveggja ára eða svo.
Hér áður fyrr var það næstum árvisst að smokkfiskur kæmi inn á firði á Vestfjörðum og fyrir Norðurlandi og væri veiddur til beitu. Með hlýnandi veðurfari og hlýrri sjó væri hægt að gera sér vonir um að sagan endurtæki sig, þessi fiskur yrði hér árviss. Smokkfiskur ku vera herramannsmatur og víða veiddur til manneldis. Það eru ekki mörg ár síðan að við nýttum ekki loðnuna til annars en beitu. Nú er hún unnin í stórum stíl til manneldis og er víst einnig mjög góð fæða. Gerði rn. ekki eitthvað til þess að kanna það hvort rétt væri að undirbúa framleiðslu á þessum fiski til manneldis? Nú mun vera fluttur inn smokkur frá Falklandseyjum til að sjóða hér niður í niðursuðuverksmiðjum. Er ekki hægt að nota hráefni af Íslandsmiðum til þessarar vinnslu?
Til að fá samanburð á því sem fryst var hér af beitusmokki í haust og því sem flutt hefur verið inn undanfarin ár spyr ég um innflutt magn árið 1983. Ég spyr ekki um innflutt magn á árinu 1984 vegna þess að ég veit að menn hafa búist við því á miðju því ári að hér veiddist það mikill smokkur að ekki væri ástæða til þess að flytja hann inn og síðari hluta ársins mun ekkert hafa verið flutt inn af smokkfiski. Ég spyr einnig hvað mikið sé áætlað að flytja inn á yfirstandandi vertíð af þessum beitufiski sem svo mikið var af hér við land í haust að hann hljóp á land í þvílíku magni að sums staðar var hann í bunkum í fjörum.
Undanfarið hafa heyrst auglýsingar í útvarpi um að von væri á Falklandseyjabeitusmokk til landsins og sjálfsagt mun eitthvað af honum vera komið nú þegar. Ekki mun hafa mátt tæpara standa með komu beitunnar til að forða því að til stöðvunar kæmi á línuflotanum áður en sú stöðvun varð sem nú hefur átt sér stað vegna verkfallsins. Það mun einnig hafa verið svo ástatt að beitusíld var að mestu til þurrðar gengin. Þá spyr ég um það hvað Falklandseyjabeitan muni kosta. Ég hef heyrt því fleygt að hún muni kosta allt að 40 kr. kg. Verðlagsráðsverð fyrir smokkinn veiddan á Íslandsmiðum í haust var gefið út 9,80 kr. fyrir kg, en að viðbættum um 40%, sem eru fyrir utan skipti, mundi greiðslan fyrir beitusmokkinn til vinnslustöðvar hafa verið milli 13 og 14 kr. Smokkur sem var keyptur til landsins 1983 kostaði frá 23 kr. upp í 30 kr. kg. Verðlagsráð hefur við sína verðlagningu ekki tekið mikið mið af því hvað útlendingum svo og innflytjendum íslenskum hafði árið 1983 verið greitt fyrir þessa vöru sem verðlögð var til skipta fyrir íslenska sjómenn á 9,80 kr. haustið 1984.