19.02.1985
Sameinað þing: 50. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3038 í B-deild Alþingistíðinda. (2511)

276. mál, veiði á smokkfiski

Fyrirspyrjandi (Skúli Alexandersson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. sjútvrh. fyrir greinargóð svör við spurningum mínum. Þau staðfesta ákveðinn grun um það að þrátt fyrir þessa sérstöku fiskgengd sem hér var inni á fjörðum og flóum tókst ekki að afla þess beitumagns sem okkur var nauðsynlegt. Og það staðfestir frekast þann þáttinn að þrátt fyrir það að við erum með mjög mikla aflastjórn hér í landinu þá hafi svona slys átt sér stað. Þessu er alls ekki hægt að gefa annað nafn en slys, þegar jafnnauðsyn leg afurð og smokkfiskur er hér inni í hverjum firði og flóa þá skuli hún ekki vera veidd, og að nú skuli ekki vera til í landinu nægileg beita fyrstu mánuði eftir að þessi fiskur var hér raunverulega inni í hverjum firði og flóa.

Hitt kemur manni líka undarlega fyrir sjónir að gegn þeim tilraunum sem rn. stóð fyrir, þ.e. að veiða þennan fisk í hringnót og flottroll, skuli hafa verið uppi slík andstaða sem hæstv. ráðh. upplýsti. Og það vekur furðu að það skuli hafa orðið þess einhvern veginn valdandi að ekki var veitt meira en raun ber vitni af þessum fiski. Ég vil þó ekki tengja það saman. Ýmsar aðrar ástæður hafa frekar valdið því að svo lítið varð um smokkveiðina en það að hún veiddist ekki í hringnót eða flottroll. Um hringnótaveiðina er það að segja að við urðum nokkuð varir við það t.d. vestur við Breiðafjörð að bátur hafði veitt smokkfisk í hringnót vestur á fjörðum og bauð hann til frystingar við Breiðafjörð. En þær upplýsingar bárust um leið að slík veiðiaðferð hefði verið höfð uppi að menn höfðu ekki mikinn áhuga. Veiðiaðferðin hafði verið á þann máta að fiskurinn var fenginn í hringnót, en til þess að auðvelda það að ná fiskinum í skipið var notuð dæla. Og menn voru almennt ásáttir um það að eftir að slíkur fiskur hefði verið settur í dælu væri hann ekki ýkja girnilegur til beitufrystingar. Sú mun einnig hafa orðið raunin á. Þar sem þessi smokkur hefur verið frystur mun hafa komið í ljós að hann hafði skemmst svo við dælinguna að hann er ekki áhugaverður sem beita.

Ég fékk einnig þær fréttir að það skip sem hafði fengið leyfi til að fara á flottroll, skip frá Þingeyri, hefði einhverra hluta vegna ekki farið á þessar veiðar vegna einhverrar tregðu frá rn. Það sem fyrst og fremst varð þess valdandi að ekki var veitt meira af smokki en gert var í haust voru þó ekki þessir þættir, heldur fyrst og fremst það að í gildi var aflakvóti á smábáta, aflakvóti sem menn gerðu ráð fyrir að mundi skerða þeirra veiðitímabil. Trillukarlar lögðu sem sagt ekki í það að hætta þorskveiðum til þess að fara að veiða smokkfisk vegna þess að þeir bjuggust við því að sá tími sem þeir hefðu heimild til að stunda þorskveiðarnar mundi verða styttur, enda varð raunin sú. Það var viss áhætta fyrir litlu bátana að hætta við þorskveiðar og fara á smokkfiskveiðarnar. Það var meiri áhætta að fara á smokkveiðarnar ef það lá ekki fyrir að þeir gætu haldið áfram veiðum eftir að smokkfiskgöngunni lyki. Ég lít svo á að sú aflastjórnun sem ríkjandi er í landinu hafi orðið þess beint valdandi að ekki var veitt meira af þessum fiski í haust en raun ber vitni.