19.02.1985
Sameinað þing: 50. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3039 í B-deild Alþingistíðinda. (2514)
296. mál, innheimta erfðafjárskatts
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Virðulegi forseti. Til að svara fsp. á þskj. 477 skal upplýst að skv. bráðabirgðauppgjöri ríkisbókhalds nam innheimta erfðafjárskatts tæpum 45.9 millj. kr. s.l. ár. Áætlun fyrir árið gerði hins vegar ráð fyrir 40 millj. kr. innheimtu. Í ár er hins vegar aðeins reiknað með að tekjur af erfðafjárskatti nemi 25 millj. kr. Ástæðan fyrir lækkun tekna af skattinum er hin nýju lög um erfðafjárskatt sem tóku gildi um mitt s.l. ár. Með þeim lögum voru allar viðmiðunarfjárhæðir, svo sem skattþrepin sem staðið höfðu óbreytt í mörg ár, hækkaðar mjög verulega og verða þær framvegis verðtryggðar. Af þessu leiðir verulega lækkun álagningar erfðafjárskatts. Afar erfitt er að meta tekjutapið af þessum sökum, en í forsendum fjárlaga fyrir yfirstandandi ár er reiknað með að það nemi þriðjungi tekna eða um 15 millj. kr. Þessi áætlun er þó afar óviss.
Þá skal þess getið að í frv. til lánsfjárlaga er lagt til að framlag ríkissjóðs til erfðafjársjóðs verði að hámarki 19.4 millj. kr. þrátt fyrir að ákvæði laga um erfðafjárskatt kveði á um að tekjur af skattinum skuli renna í erfðafjársjóð.
Að lokum er rétt að vekja athygli hv. fyrirspyrjanda á því að málefni erfðafjársjóðs og erfðafjárskatts heyra undir félmrh. Því er rétt að beina fsp. af þessu tagi til hans þó svo að ég hafi tekið mér bessaleyfi að þessu sinni að svara.