23.10.1984
Sameinað þing: 9. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 414 í B-deild Alþingistíðinda. (253)

Umræður utan dagskrár

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Eftir að ríkisstj. hafði tekið við bréfi frá Alþýðusambandi Íslands, sem dagsett var 18. 10. og hefur verið lesið hér á hinu háa Alþingi, hélt ríkisstj. aukafund 19. 10. og gerði svofellda samþykkt, með leyfi forseta:

„Ríkisstj. er reiðubúin til þess að halda án tafar áfram viðræðum við aðila vinnumarkaðarins um lækkun skatta og/eða aðrar opinberar aðgerðir sem stuðlað geta að samningum um kaup og kjör með sem minnstum peningalaunakostnaðarhækkunum, þannig að framhald verði á hjöðnun verðbólgu og kaupmáttur verði sem best verndaður.“

Í beinu framhaldi af þessari samþykkt ríkisstj. kvaddi ég á minn fund fulltrúa Vinnuveitendasambands Íslands, Alþýðusambands Íslands, Verkamannasambandsins og Landssambands iðnverkafólks. Á þeim fundi var einnig formaður Sjálfstfl. Við gerðum aðilum grein fyrir þessari samþykkt og um það var fullt samkomulag á þeim fundi að vinna að lausn málsins á þessum grundvelli. Það hefur verið reynt ítarlega nú um helgina og er reyndar enn í meðferð á vegum þessara aðila.

Áður en ég kem að því að svara hinum ýmsu spurningum hv. þm. vil ég leggja á það áherslu að þessi ríkisstj., eins og reyndar allar ríkisstj. sem ég man eftir, fylgir þeirri meginstefnu að hafa ekki bein afskipti af samningum á hinum frjálsa markaði og fylgir einnig þeirri stefnu gagnvart samningum við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja að þeir verði í samræmi við þá samninga sem gerast á hinum almenna markaði. Þessi ríkisstj. gerði eina veigamikla undantekningu frá þessu í upphafi síns starfsferils, vegna þeirra ákaflega erfiðu aðstæðna sem voru í þjóðarbúinu. Ríkisstj. taldi óhjákvæmilegt að binda kaup og kjör um nokkurn tíma eða nánar tiltekið í átta mánuði. Í samningunum sem fram fóru í febrúar var hins vegar fylgt þessu boðorði, ef ég má kalla það svo. Það þýðir náttúrlega ekki að ríkisstj. hafi ekki einhver afskipti þegar samningum lýkur. Svo var einnig í febrúar. Reyndar kom þá mjög fljótlega fram að samningar mundu ekki nást nema ráðstafað væri nokkru fé til hagsbóta fyrir þá sem lökust kjörin hafa. Í samráði við aðila vinnumarkaðarins beitti ríkisstj. sér þá fyrir ítarlegri athugun á vegum Kjararannsóknarnefndar á því hverjir þessir aðilar væru í þjóðfélaginu. Í samráði við aðila vinnumarkaðarins ákvað ríkisstj. síðan að verja um tæplega 350 millj. kr. í þessu skyni. M.ö.o.: ríkisstj. gaf ekki út fyrir fram hvernig þetta skyldi gert. Þetta var gert í nánum tengslum við þá kjarasamninga sem fram fóru.

Ríkisstj. hefur einnig í þetta skipti hagað afskiptum sínum á sama veg. Ríkisstj. telur ekki, og ég undirstrika það, að skynsamlegt sé að fastmótaðar tillögur eins og þær sem hér er spurt um, komi fram, heldur verði þetta að gerast í nánu samráði við aðila vinnumarkaðarins, enda er það undirstöðuatriði í tilboði ríkisstj. að þetta verður að tengjast þeim peningalaunahækkunum sem í almennum samningi verða og því er ekki hægt að afgreiða annað fyrst og hitt á eftir. Ég vek líka athygli á því sem gerðist 1977. Þá ákvað sú ríkisstj., sem þá sat, mjög víðtækar ráðstafanir til að stuðla að skynsamlegum samningum. Þá var ákveðið að auka niðurgreiðslur, þá var ákveðið að lækka skatta og þá var ákveðið að auka greiðslur í gegnum almannatryggingar. Þessu var meira eða minna spilað út. Því miður var niðurstaðan sú, að engu að síður urðu peningalaunahækkanir yfir 20% og allir þekkja það sem á eftir fylgdi í verðbólgu. Slíkt vill ríkisstj. forðast nú. Slíkt verður að forðast.

Ég skal svo koma að nokkrum þeim spurningum sem hv. þm. leggur fram. Ríkisstj. býður, eins og fram kemur í samþykktinni, skattalækkanir í tengslum við minni peningalaunahækkanir. Þessi hugmynd kom fram þegar fyrir rúmum mánuði. Þá var, með samþykki ríkisstj., þessari hugmynd hreyft í viðræðum VSÍ og ASÍ og sömuleiðis var þessari hugmynd fljótlega hreyft í viðræðum ríkisins við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja. Hv. fyrirspyrjandi telur að misjafnlega hafi verið á málum haldið á þessum tveimur stöðum. Ég hygg að ef svo er sé það vegna þess að launþegar á hinum almenna markaði hafi verið langt um opnari fyrir þessari hugmynd en félagar í BSRB.

Ég vil jafnframt upplýsa, sem reyndar hefur komið fram, að mjög fljótlega eftir að þessari hugmynd var hreyft hélt ég fund með fulltrúum VSÍ og Vinnumálasambands samvinnufélaganna, fund með ASÍ og nokkrum aðildarfélögum þess og fund með fulltrúum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og gerði þar, ásamt formanni Sjálfstfl., grein fyrir þessari hugmynd. Ég varð ekki var við að þar væri neinni spurningu ósvarað eða að þessir menn færu með nokkrar óljósar hugmyndir frá þeim fundi. Þar var skýrt tekið fram að við teldum að skattalækkanir, samtals tekjuskattur og útsvar, gætu orðið allt að 1100 millj. kr. í tekjuskatti og 300 millj. í útsvari, enda yrðu peningalaunahækkanir þá mjög takmarkaðar og til að byrja með ekki yfir 5–6% og samtals ekki yfir 10%. Ég vek einnig athygli á því sem ég sagði í ræðu minni hér á Alþingi, ég hygg að það hafi verið fimmtudaginn 11. þessa mánaðar. Þar setti ég þetta aftur fram sem einn möguleikann og að mínu mati þann skynsamlegasta í þessu máli, þ.e. ekki meiri peningalaunahækkanir en þessar skattalækkanir sem eru tvímælalaust hámark og baka ríkissjóði mikil vandræði eins og ég kem að hér á eftir. Hins vegar hefur alltaf legið fyrir að ef peningalaunahækkanir yrðu meiri hlytu skattalækkanir að verða minni. Þetta hefur ætíð legið fyrir.

Ég vek einnig athygli á því að í meðferð þessa máls samþykkti ríkisstj. að taka þátt í nefnd sem athugaði sameiginlega hvernig þessu yrði fyrir komið. Í þá nefnd voru skipaðir tveir menn af hálfu ríkisstj., Geir Haarde aðstoðarmaður fjmrh., sem verið hefur formaður nefndarinnar og Þórður Friðjónsson efnahagsráðgjafi ríkisstj. Í þessa nefnd komu jafnframt fulltrúar frá ASÍ, VSÍ og fulltrúar frá BSRB og fulltrúi frá samtökum sveitarfélaga. Þessi nefnd hefur haldið allmarga fundi. Hún hefur haldið fundi með það að markmiði að ná samstöðu um hvernig þetta mætti gera. Þetta er ákaflega svipað og gert var þegar kjarabætur til þeirra sem lökust hafa kjörin voru ákveðnar í samningunum í febrúar með góðum árangri. Þá var að vísu ekki nefnd skipuð, en það var stöðugt samráð sem leiddi til þeirra lykta sem ég tel að hafi verið mjög farsælar í samningunum í febrúar. Að sömu vinnubrögðum hefur nú verið stefnt.

Sú samþykkt ríkisstj. sem ég las áðan úr var gerð með samhljóða vilja-það eru ekki greidd atkv. í ríkisstj. — allra ráðh. Það var enginn sem mælti henni á móti. Allir mæltu með því að þessi leið yrði reynd. Það er því algerlega úr lausu lofti gripið að ekki sé samstaða innan ríkisstj. um þessa leið.

Þá spyr hv. þm. hvernig skattalækkun verði mætt og hvað skorið niður. Um það hefur þeirri nefnd, sem nú starfar enn, verið falið að fjalla og það hefur verið gert á nokkrum fundum. Það er ekki kominn árangur af því verki. Ég hef sagt hér á fundi, og fleiri talsmenn ríkisstj., að þessu verði líklega að mæta með þrennu móti: Í fyrsta lagi með niðurskurði, í öðru lagi með tekjuöflun og e.t.v. í þriðja lagi með aukinni lántöku og þá innanlands.

Ég tel að mjög væri vafasamt fyrir ríkisstj. að setja fram fastmótaðar hugmyndir og miklu skynsamlegra, eins og ég hef sagt, að hafa um þetta samráð við aðila vinnumarkaðarins.

Að sjálfsögðu hlýtur Alþingi að lokum að ákveða hvort það vill fara þær leiðir sem samstaða gæti náðst um. Ég hef orðað það svo að skynsamlegast væri, til að komast yfir þá erfiðleika sem við erum nú í, að fresta æðimörgum mikilvægum framkvæmdum og mæta þannig að verulegu leyti þeirri skattalækkun sem hér er um að ræða. Ég held einnig að viss tekjuöflun komi til greina, en ég tel að það væri ekki skynsamlegt af mér að fara að segja hverju eigi að fresta eða hvaða tekjuöflun eigi að koma á móti.

Hv. þm. spyr um útfærslu á skattalækkun. Á vegum þeirrar nefndar sem ég nefndi áðan og einnig á vegum ríkisstj. sérstaklega, og þá vitanlega fyrst og fremst á vegum fjmrn., hafa verið reiknaðar ýmsar leiðir til lækkunar á sköttum. Ég veit að hv. þm. er ljóst, enda kom það fram í hans fyrirspurn, að þetta kemur ákaflega breytilega niður. Gert er ráð fyrir að skattfrelsismörk hækki verulega frá því sem þau eru, en skattalækkunin komi þó öllum til góða. Það er búið að gera marga útreikninga sem nefndin, sem ég nefndi áðan, hefur haft til athugunar. Lækkun útsvars um 300 millj. kr. var við það miðuð að greiðslubyrði útsvars hækkaði ekki á milli ára, en það mundi gerast með þetta litlum peningalaunahækkunum ef útsvarsstigi yrði óbreyttur á milli ára. Einnig hefur farið fram athugun á fjárhagsstöðu sveitarfélaga. Einnig hefur félmrh. átt viðræður við fulltrúa sveitarfélaga. Þeir hafa reyndar einnig gengið á minn fund. Að sjálfsögðu yrði um þetta, ef til kemur, haft samráð við sveitarfélögin. Ég vil hins vegar lýsa þeirri skoðun minni, sem kemur reyndar greinilega fram í því sem liggur fyrir frá Þjóðhagsstofnun, að fjárhagsstaða sveitarfélaga hefur batnað verulega á þessu ári og ekki er óeðlilegt að þau leggi nokkuð af mörkum í þessu sambandi.

Þá minntist hv. fyrirspyrjandi á atriði sem hafa komið fram sérstaklega í bréfi ASÍ og reyndar á flestum þeim fundum sem ég hef átt með þessum aðilum, þ.e. vaxtalækkun og húsnæðismál. Reyndar getum við bætt við lagfæringu fyrir ellilífeyrisþega og fleira í þessu sambandi. Við höfum svarað því þannig til að við teldum slík félagsleg mál, sem þarna eru nefnd, mál ellilífeyrisþega o.fl., vissulega skoðunarverð og það yrði þá að ræða í tengslum við skattalækkun, enda segir í samþykkt ríkisstj. „lækkun skatta og/eða aðrar opinberar aðgerðir“. Það stendur ekki á okkur að ræða það og stuðla að því að það verði gert sem breiðust samstaða getur náðst um.

Vaxtalækkunin hefur oft verið nefnd. Vextir hafa að vissu marki verið gefnir frjálsir. Það mál er allt í skoðun hjá Seðlabankanum. Ég tel ákaflega erfitt að semja um vexti við launþega. Ég hef áður lýst þeirri skoðun minni að svona háir vextir geti ekki gengið til lengdar, bæði vegna nauðsynlegrar fjárfestingar í þjóðfélaginu og fleira, og ég hef lýst þeirri sannfæringu minni eftir ítarlegar viðræður við bankamenn um þessi mál að raunvextir muni lækka ef okkur tekst að halda hjöðnun verðbólgu áfram. Ég er sannfærður um að vextir hljóta að lækka með minni verðbólgu og það er það mikilvægasta sem við getum gert til að fá vextina niður.

Ég mun ekki svara þessu ítarlegar af þeim ástæðum sem ég nefndi áðan, tel það ekki vera skynsamlegt, en legg áherslu á að ríkisstj. vill áfram vinna að lækkun skatta og minni peningalaunahækkunum. Hún vill gera það og telur rétt að gera það í samráði við aðila vinnumarkaðarins eins og þegar félagslegar umbætur voru gerðar í febrúar.