20.02.1985
Efri deild: 45. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3058 í B-deild Alþingistíðinda. (2544)
281. mál, hagnýting Seðlabankahúss
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég lýsi stuðningi mínum við tillgr. þessarar þáltill. sem fjallar um hvernig nýta beri ákveðna byggingu hér í bænum. Málefni Seðlabankans hafa margoft verið til umr. hér á Alþingi, en lítið hefur hingað til verið um beinar tillögur um málefni sem bankann varða ef undan er skilið frv. hv. þm. Eyjólfs Konráðs Jónssonar og hv. þm. Valdimars Indriðasonar um að lækka innistæðubindingu í bankanum niður í 10%. Það frv. er nú til meðferðar í fjh.- og viðskn. þessarar deildar. Mér þykir vera vel við hæfi að á grundvelli þess og þeirrar till. sem hér er nú til umr. taki n. málefni Seðlabankans til nokkuð ítarlegrar umfjöllunar.
Það hefur t.d. vafist fyrir mörgum, þ. á m. ýmsum hv. þm., hvernig Seðlabankinn geti átt eitthvað sem kallast eigið fé bankans þar sem hann er ríkisbanki, hvernig hann getur átt eitthvað sem tilheyrir ekki ríkinu. Það hefur líka komið fram að margir vita ekki, þ. á m. hæstv. fjmrh., fyrir hvaða fé Seðlabankinn er að byggja það stórhýsi sem tillgr. fjallar um, hvort það er fyrir eigið fé bankans eða einhverja peninga sem vaxa á peningatré í fjárhirslu bankans.
Sem nm. í fjh.- og viðskn. lýsi ég mig reiðubúna til að athuga gaumgæfilega málefni bankans í n. og stjórn efnahagsmála sem tengjast bankanum og ég tel einsýnt að framkvæmdir við umrædda byggingu verði stöðvaðar á meðan. Því styð ég þá till. sem hér er til umr.