20.02.1985
Efri deild: 45. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3070 í B-deild Alþingistíðinda. (2550)
281. mál, hagnýting Seðlabankahúss
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Virðulegur forseti. Ég minni á að jafnvel þó að hv. þm. reyni að gera það tortryggilegt þó einhver ráðh. grípi fram í, er sá ráðh. bara þm. með nákvæmlega sama rétti. Hv. síðasti ræðumaður hefur hvorki meiri né minni — og síst meiri — rétt en aðrir þm.
Hitt er annað mál að þegar á dagskrá er ákveðið prentað skjal, sem segir um hvað á að fjalla, eru menn ekki viðbúnir almennum umr. um gælumál viðkomandi þm. Það er þetta sem ég geri aths. við. Þm. hefur enga heimild til að vaða vítt og breitt út fyrir þau mál sem eru á dagskrá. (Gripið fram í.) Já, það getur verið. Ef þm. vill deila á forseta fyrir að stoppa það ekki skal hann gera það. Ég deili ekki á forseta fyrir það, ég deili á þm. Hann er nógu þingreyndur til að vita hvað er á dagskrá, sérstaklega þegar hann flytur till. sjálfur.
Hann talar hvað eftir annað, í hvaða ræðu sem hann heldur, um efnahagsmál Bandaríkjanna, þau eiga að vera einhvers konar flaggskip lýðræðisþjóða, og það á að vera réttlæting fyrir því að jafnvel við erum með halla á fjárlögum. En þrátt fyrir peningainnstreymi alls staðar að úr veröldinni inn í Bandaríkin vegna hárra vaxta eru Bandaríkjamenn að fara á hausinn með sitt efnahagskerfi. Það er að springa. Ekki þarf annað en að fjármagnseigendurnir fái heldur minni vexti en þeir fá í dag. Þá taka þeir peningana sína aftur og eftir stendur Bandaríkjaforseti berrassaður með sitt efnahagskerfi. Við skulum átta okkur á því hvað er að ske. Við getum ekki lent í þessari aðstöðu vegna þess að erlent fjármagn fær ekki að streyma inn í landið umfram það sem ríkið tekur ábyrgð á, beint eða óbeint. Við skulum því ekki vera að ber saman tvo ólíka hluti.
Ríkisstj. hefur ekki aukið bindingu sparifjár. Aftur á móti hóf ríkisstjórnin 1974–1978 að binda sparifé lífeyrissjóðanna. Það er það eina sem við erum í vanda með núna. (HS: Það eina?) Eina, já. Það er það eina. Það vantar tekjurnar frá lífeyrissjóðunum. En ég ætla bara að segja að það var ekki með slíkum sparnaði, það var ekki með slíkum skyldum, sem voru lagðar á herðar sparifjáreigenda, að fyllt var upp í hið fræga gat sem hv. þm. gerði að umræðuefni. Það var gert með niðurskurði, fyrst milljarður við gerð fjárlaga og síðan milljarður við endurskoðun í maí s.l. Þannig voru fjárlög endanlega afgreidd.
Ég bendi á að halli á ríkissjóði er 2.8% af þjóðartekjum. (Gripið fram í: Þetta er ekki á dagskrá núna.) Ég er að svara því sem var á dagskrá tekið með leyfi forseta eða athugasemdalaust. Ef við berum okkur saman við frændþjóðir okkar, þá er Svíþjóð með 20% halla og 21.9% af heildarþjóðartekjum fara í greiðslu á vöxtum af erlendum lánum eingöngu.
Það getur verið að bygging Seðlabankans sé röng stefna. Það er auðvelt að leggja dóm á gjörðir annarra þegar maður þarf ekki á einn eða annan hátt að vera ábyrgur fyrir þeim né heldur vita ástæðuna fyrir þeim. Og það er auðvelt að taka hér og setja á höggstokk einn hæfasta mann þjóðarinnar. (EKJ: Hef é gert það?) Þú hefur gert það með þessari till. (EKJ: Ég óska eftir að ráðh. verði víttur fyrir þessi ummæli sín.) Það eru hans verk sem hér eru sett á höggstokk. Það á að skera frá hans stofnun (EKJ: Hvenær ætlar þú að víta hann?) sem honum hefur verið treyst fyrir. (Forseti: Ég vil biðja hv. þm. að gæta orða sinna.) Hvað er það sem hv. forseti er að víta hjá mér í ræðustól? (Forseti: Aðeins að biðja hæstv. ráðh. að gæta orða sinna.) Hvað er það í orðum mínum sem ég á að...? (Forseti: Það var höggstokkurinn.) Já, hvað er með það? Er það ekki gott íslenskt orð? Er það einhver misnotkun á orðinu? Það er verið að skera hérna frá Seðlabankanum ævistarf manns sem hefur verið að byggja Seðlabankann upp frá má segja vöggu og nú kannske til grafar því mér heyrist að það eigi að taka upp lögin og gera bankann að þeirri stofnun sem hann var þegar hann var sagður vera í skúffu hjá Landsbanka Íslands.
Ég er fyllilega reiðubúinn að skoða vel hvað Seðlabankinn er að gera, endurskoða það starf. Það þarf alltaf að endurskoða störf stofnana ríkisstofnana þá sérstaklega, þegar þær þróast og þróast kannske of hratt. Af hverju? Það skal ég ekki segja um.
Hitt er annað mál að það eru ekki bara hugmyndir hv. þm. Eyjólfs Konráðs Jónssonar að bindiskylda sé vond. Það er löngu áður en hann varð fastaþm. sem sú skoðun kom fram. Ég veit ekki betur en bankaráð Útvegsbanka Íslands hafi allt barist fyrir því þann tíma sem ég var bankaráðsformaður þar að hún yrði gefin frjáls, vegna þess-og það benti ég á og það er hægt að fletta upp í þskj. — að takirðu verkfærin af manni, og ég lít á peningana sem verkfæri þjóðarinnar, gerir hann ekki neitt. Takirðu verkfærin frá við skulum segja iðnaðarmanni, þó ekki sé nema trésmiður sem er beðinn um að negla nagla í spýtu, þá neglir hann ekki með hnefunum. Hann verður að fá hamarinn. Það eru peningarnir sem eru þessi vinnutæki. Hv. þm. er að gera tillögur annarra og hugmyndir að sínum og gerir það í löngum ræðum um tiltölulega lítið frv. sem á ekki að kalla á langar umr. um efnahagsmál almennt.
Virðulegi forseti. Ég skal ekki hafa þessi orð fleiri nema tilefni gefist til.