20.02.1985
Efri deild: 45. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3072 í B-deild Alþingistíðinda. (2551)

281. mál, hagnýting Seðlabankahúss

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Að gefnu tilefni má segja það að skv. orðanna hljóðan fjallar þessi till. um Seðlabankahús og nýtingu þess. Hér hafa hv. ræðumenn fléttað inn í þá umr. starfsemi Seðlabanka og peningamál og efnahagsmál sem óneitanlega hljóta að tengjast Seðlabanka. Það hlýtur því að vera erfitt að skilgreina eða setja takmörk um efnisinnihald ræðna hv. þm. Þar af leiðandi hefur forseti ekki séð ástæðu til að gera aths. við innihald þeirra.