20.02.1985
Neðri deild: 43. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3076 í B-deild Alþingistíðinda. (2562)

111. mál, áfengislög

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Ég þarf ekki að endurtaka það sem hæstv. forsrh. sagði um afskipti saksóknara af bjórblöndun. Hins vegar vil ég vekja athygli á því að nýlega hefur saksóknari óskað eftir því að rannsókn fari fram á starfsemi fyrirtækis hér í borginni þar sem átti að fara fram blöndun og sala á áfengi á nokkuð annan hátt en þann sem hér hefur verið lýst, með því að hella saman tveimur drykkjartegundum. Vænti ég þess að niðurstaða fáist um lögmæti þeirra áforma. Kannske liggur málið þá nokkuð skýrara fyrir á eftir.

Ég hef vitanlega séð umrædda áfangaskýrslu áfengismálanefndarinnar um áfengismálin. Eins og kom fram hjá forsrh. hefur hún verið tekin fyrir í ríkisstj. og ég hef óskað eftir því að þar yrði tekin afstaða sem fyrst. En það hefur því miður ekki verið gert enn þá. En í sambandi við þau vínveitingaleyfi, sem ég hef veitt að undanförnu, þá eru þau veitt til matsölustaða, til matargesta, þar sem viðkomandi sveitaryfirvöld hafa talið það æskilegt og þá til samræmis við það sem aðrir matsölustaðir hafa á viðkomandi svæði.